Heilbrigðismál - 01.01.1975, Page 10
Liðagigt
Tímaritið: Bekjemp kreft
Liðagigt, þjáningarfullur sjúkdómur, gerir
fólk að öryrkjum og er ennþá hálfgerður
leyndardómur. Hann ásækir fólk á öllum
aldri og meðferðin nær lítið lengra en að
draga úr þjáningum.
Vísindamenn eru komnir með blóðvatn,
sem í tilraunaglösum hindrar brjóskeyðingu,
sem á sér stað hjá liðagigtarsjúklingum.
Hreyfanleiki í öllum liðum líkamans byggist
á liðbrjóskinu, sem burðarfleti. Það gerir
ganginn og allar hreyfingar mögulegar. Hin-
ar stóru sameindir sem mynda brjóskið, eru
jafnt og þétt brotnar niður og endurnýjaðar,
en þær gera heilbrigða liði hæfa til að stand-
ast hið geipilega álag, sem þeir verða fyrir.
En hjá fólki með liðasjúkdóma, en þó sér-
staklega liðagigt, örvast niðurrifsstarfið en
uppbyggingunni seinkar. Þetta veldur eyðingu
á brjóskinu og liðurinn skaddast alvarlega.
Sumir kenna liðagigtina veirum en aðrir
sjálfsónæmis viðbrögðum, en endanleg orsök
hennar hefur ekki enn verið leidd í ljós. Liða-
gigt er tímabilasjúkdómur, sem versnar og
batnar til skiftis. Allt sem læknarnir geta gert
er að bjarga sjúklingunum yfir vondu köstin
með verkjameðulum og gefa þeim gullspraut-
ur.
Hvernig eyðing fer fram
Mjúkar og óhindraðar hreyfingar allra
liðamóta líkamans, byggjast á endingu og
heilbrigði brjósksins, sem myndar burðarflet-
ina. Ein risasameind brjósksins, protesglycan,
endist um það bil í viku. Þegar um sjúklegt
ástand eins og liðagigt er að ræða, er senni-
legt að niðurbrot þessarar sameindar sé veru-
lega aukið. Aðfarir þess niðurbrots hafa verið
rannsakaðar og með þeim sannaðist að á-
kveðnir hvatar- enzym geta va'dið þessum
brjóskskemdum. Blóðvökvi gegn þessum vaka
hefur verið framleiddur í tilraunaglösum og
Vramh. á bls. 9.
6
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL