Heilbrigðismál - 01.01.1975, Page 21
Skútabólgur
Tímaritið: Bekjemp kreft.
Mjög algengur fylgikvilli með kvefi er
skútabólga, eða kemur eftir það. Skútabólgur
er nafnið á smitun í loftholum andlitsbein-
anna. Andlitsbeinin eru ekki þétt í gegn. Ef
svo væri yrði höfuðið of þungt fyrir hálsinn
og hljómur raddarinnar lélegur. Þau eru með
þó nokkuð víðum holrúmum -skútum - sem
heita ýmsum erfiðum nöfnum á læknamáli,
eins og t. d.: sinus sphenoidalis og sinus eth-
moidalis. Oll eru holrúmin tengd nefinu með
ör-mjóum göngum og eru þakin samskonar
innþekju og nefið.
Allt sem ertit nefið getur haft áhrif á skút-
ana, þess vegna sýkjast þeir oft í sambandi
við venjulegt kvef. Skútabólgur geta verið
bráðar og einnig langvinnar. Sagan er eitt-
hvað á þessa leið: Samtímis kvefi eða eftir
það, kemur verkur ofan, neðan við eða bak
við augun og andlitið getur orðið viðkvæmt.
Höfuðverkurinn er sérkennilegur að því leyti,
að hann kemur venjulega á morgnana eftir
fótaferð og helst fram um miðjan dag. Hann
getur verið annarsvegar og versnað þegar
lotið er fram eða bograð, en linast við hita.
Langvinn skútabólga blossar venjulega upp
með kvefi og yfirleitt fylgir henni einhver út-
ferð úr nefinu. Utferðinni er hægt að snýta
út á venjulegan hátt, eða að hún rennur aftur
í nefkokið.
Kvefið er óeðlilega algengt og þrálátt og
batnar ekki á viku til hálfum mánuði eins og
fréttabréf um heilbrigðismál
venjulegt kvef. Sjúkdómurinn getur legið
niðri yfir sumarið. Langvinnar skútabólgur
geta valdið stöðugum hósta og lungnakvefi.
Ef þessi leiðindasjúkdóinur hefur fest rætur,
leiðir læknirinn hann iðulega í ljós með
gegnumlýsingu. Lampa með sterku ljósi er
stungið upp í munninn og vörunum lokað
utan um Ijósgjafann. Síðan er litið eftir hvort
skútarnir eða holrúmin lýsist eðlilega upp, eða
hvort skuggar séu í þeim. Þetta þarf að gerast
inni í dimmu herbergi. Bregðist þessi prófun,
koma röntgenmyndir til skjalanna, sem sýna
hvort nokkur vökvi sé í skútunum. Stundum
stingur læknirinn á þeim og skolar vökvann
eða gröftinn út.
Oft reynir læknirinn að eyða bólgunum og
smitinu með stórum skömmtum af fúkalyfj-
um. Misheppnist það, kann hann að verða að
opna skútana með uppskurði.
Það eru margar og mismunandi skoðanir á
árangrinum af öilum þessum aðgerðum, en
engar áreiðanlegar skýrslur eru til um raun-
verulegan hundraðshluta læknaðra tilfella. En
enginn hlýtur varanlegt mein af, þó þessum
viðurkenndu aðferðum sé beitt.
Bezt er að reyna að varast sjúkdóminn.
Reynið að komast hjá skútabólgu þegar þér
fáið kvef.
Það virðist einföld aðgerð að snýta sér, en
þó er til bæði rétt og röng aðferð. Ranga að-
ferðin — að þrýsta nösunum saman og snýta
17