Heilbrigðismál - 01.01.1975, Side 23
Ný sígaretta
SÍGARETTA, gerð með það fyrir augum, að
hún valdi sem minnstri hættu á krabbameini,
verður ef til vill sett á markaðinn í Englandi,
þegar stjórnin og læknisfræðilegir sérfræð-
ingar hafa samþykkt hana.
Tóbaksfélag ríkisins og sérfræðingar í
trefjaframleiðslu ha'da upp tilraunum með
tóbak, búið til með efnafræðilegum aðferð-
um.
Tóbaksfélag ríkisins eyðir tveim milljónum
sterlingspunda á ári til þessara rannsókna og
býr til sígarettur með 50% nýrra efna, en
engin ákvörðun hefur verið tekin um 12
miljón sterlingspunda akrana, sem þarf að
rækta, svo að hægt verði að koma nýju síga-
rettunni á markaðinn.
Huntington rannsóknarstofnunin hefur
rannsakað á eigin kostnað hvaða hættur nýja
sígarettan kunni að hafa í för með sér fyrir
heilsuna. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar,
Alstair Worden læknir, segir: Tóbaksiðnaður-
inn er nú kominn í aðstöðu til að framleiða
sígarettu, sem hefur stórkostlega minnkaða
krabbameinshættu í för með sér.
Nýja reykingaefnið er jurtatrefjar að upp-
runa, sem er meðhöndlað efnafræðiíega. Þó
það valdi miklu síður krabbameini hjá til-
raunadýrum en venjulegt tóbak, þarf að
minnsta kosti 10 ára tilraunir til að leiða í
ljós, hvort það sé jafn meinlaust fyrir menn.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐlSMÁL
Aðrar hættur, sem fylgja tóbaksnautn,
verða að líkindum minni, með notkun nýju
sígarettunnar, þar sem myndun koltvísýrlings
við brennslu hennar verður sennilega mikið
takmörkuð, en þetta verður heldur ekki vitað
með vissu fyrr en eftir mörg ár.
Sjúkdómarnir, sem erfiðast verður að draga
úr, eru lungnaþemba og lungnakvef, þar sem
þeir orsakast aðallega af reykjarögnunum sem
flytja með sér níkótínið, en það er efni sem
reykingafólkið neitar að afsala sér.
Bráðabyrgðaniðurstöður af notkun nýju
sígarettunnar, sýnir ekki að neitt áberandi
hafi dregið úr lungnakvefi hjá fólki, sem
reykir hana, borið saman við afleiðingar af
sígarettum úr venjulegu tóbaki, með nýtísku
reyksíum.
Áætlunin um hættuminni sígarettur setur
tóbaksframleiðendurna í slæma klípu gagn-
vart lögunum. Tóbaksfélag ríkisins segist vera
miklu varkárara í afstöðu sinni til laganna,
síðan hinar miklu deilur og málaferii urðu út
af thaledomid-töflunum. Forstöðumaðurinn
segir, að ef við dæmum nýja sígarettutegund
lítið hættulega, verðum við að hafa öll rök
að baki okkur til að fella slíkan dóm, og ör-
uggir um að geta staðið við hann. Hann
verður að grundvallast á rannsóknum, sem
ekki geta skeikað. Við getum ekki slegið því
fram, út í loftið, að nýja sígarettutegundin
19