Heilbrigðismál - 01.01.1975, Page 26
Nýjar vonir tengdar
baráttunni við
krabbamein
Nýjar aðferðir við meðferð hvítblæðis -
leukaemia — sem læknar við 2 spítala í Lond-
on hafa með höndum — hafa reynst meira upp-
örvandi en nokkrar aðrar lækningatilraunir
við hvítblæði, sem reyndar hafa verið áður í
heiminum. Þessar athyglisverðu niðurstöður
voru birtar í Coventry fyrir nokkru af einum
fremsta sérfræðingi í meðferð krabbameins:
prófessor Peter Alexander.
Hann skýrði frá því á aðalfundi Brezka
læknafélagsins, að aðferðin fælist í að magna
varnaröfl líkamans gegn sjúkdómnum — hin-
ar svokölluðu ónæmisaðgerðir líkamans. Þess-
ar tilraunir hafa verið gerðar á Royal Mars-
den og St. Bartholmews-spítölunum.
Tilraunasjúklingarnir fá venjulega lyfja-
meðferð þar til nokkuð hefur dregið úr sjúk-
dómnum. Þá eru þeir sprautaðir með krabba-
meinsfrumum samkynja þeim sem valda sjúk-
dómi þeirra, ásamt B C G-berklabóluefni.
Þetta örvar ónæmisaðgerðir líkama sjúkling-
Cjlens
Lögregluþjónn á ?nótorhjóli stöðvaði bíl og benti
ökumanninum á að hann hefði ekið óleyfilega hratt.
Kemur ekki til mála, sagði maðurinn. Eg ók ekki
nema á 60 kílómetra hraða.
— ]tí, þér ókuð á 70, en hámarkshraðinn á þesstt
svœði er 50 km.
anna, sem miða að útrýmingu aðskotavefja í
líkamanum.
Prófessor Alexander sagði: árangurinn
hingað til lofar góðu. Það er ekki einungis,
að þeir, sem fá ónæmismeðferðina lifi betra
lífi en samanburðarhópurinn, sem fær ein-
göngu lyfjameðferð (chemotherapi), heldur
lifa þeir áberandi lengur en fregnir eru um af
nokkurri annari meðferð, og þar með eru tald-
ir þeir sjúklingar, sem fá allra öfgafyllstu
lyfjameðferð, sem gefin er í Bandaríkjunum.
Raymond Powels læknir, vísindalegur
ráðunautur við St. Bortholmews spítalann
og er maðurinn, sem ber aðalábyrgðina á
sjúklingunum, segir, að hin nýja meðferð
hafi verið í gangi undanfarin 4 ár. Hann á-
ætlar, að hópurinn sem hafði fengið ónæmis-
meðferðina lifði helmingi lengur en sjúkling-
arnir sem fengu aðeins hina venjulegu lyfja-
meðferð.
Bj. Bj.
- Hcettið þér þessu nú, sagði maðurinn, mér
cetti sjálfum að vera kunnugast að ég ók ekki nema
á 60 km hraða. Eg mótmceli þessum fjarstceðum
yðar harðlega.
A nœsta augnabliki rak konan hans höfuðið út
um bílgluggann og hreytti út úr sér: Verið þér ekki
að þessu. Það er tilgangslaust að þjarka við mann-
inn minn þegar hann er fullur.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
22