Heilbrigðismál - 01.03.1980, Side 5

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Side 5
Nauðsynlegt að móta heilbrlgðismálastefnu til langs tíma - jafnvel til aldamóta Rætt vlð Svavar Gestsson ráðherra A'okkrum vikum eftir að ríkis- stjórn Gunnars Thoroddsen tók við völdum gengum við á fund Svavars Gestssonar, nýskipaðs heilbrigðis- fáðherra, og lögðum fyrir hann spurningar um stefnu stjórnarinnar i heilbrigðismálum og viðhorf hans til þessara mála. Fórnarlamb hentistefnu? Af málefnasamningi rikisstjórn- arinnar er lítið hœgt að ráða um hvaða stefnu þessi stjórn hefur í heilbrigðismálum. Voru þeir sem sömdu sáttmálann sammála um að ástandið vœri viðunandi og litlu þyrfti að breyta? A undanförnum árum hafa ekki verið miklar umræður um heil- brigðismúl á vegum stjórnmála- flokkanna á íslandi. Ég hygg að umræður um heilbrigðismál hafi I ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen er það Svavar Gestsson (t. v.) sem er ráðherra félagsmála og heil- brigðis- og tryggingamála. Hann tók við af Magnúsi H. Magnússyni (t. h.) sem fór með þessa málaflokka í vinstri stjórninni frá 1. september 1978 og síðan í minnihlutastjórn Al- þýðuflokksins frá því í október 1979 til 8. febrúar 1980. Fyrrverandi og núverandi heilbrigðisráðherrar hitt- ust í Arnarhvoli daginn sem stjórn- arskiptin urðu og var þessi mynd þá tekin. Mynd: h. v. yfirleitt þá tengst einstökum at- höfnunt í þessum málaflokki, ann- að hvort húsbyggingum eða að- gerðum á einstökum sviðum eða svæðum, fremur en að menn hafi reynt að átta sig á vandamálunum í heild. Ég tel að stjórnmálaflokk- arnir hafi þannig brugðist mikil- vægri skyldu, en skylda þeirra er sú að fúst við alla helstu þætti þjóð- lífsins, ekki aðeins þá sem haldið er upp úr á hverjunt tíma af síðdegis- blöðunt eða þeim sent hafa atvinnu af því að framleiða áróður í land- inu. Stjórnmálaflokkarnir eiga að móta sér stefnu í hinum stóru málaflokkunt og þeir eiga að vita í hvaða forgangsröð þarf að sinna verkefnunum á hverju sviði. Hafi stjórnmálaflokkarnir ekki stefnu á Fréttabrél um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 5

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.