Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 14

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 14
Mynstur svefnsins hjá ungum manni sem sefur heila nótt (í átta tíma). Fjórða stigið er aðeins fyrri hluta nætur. Tímabil draumasvefns lengj- ast þegar líður á nóttina. Á fyrsta ári ævi sinnar sefur ungbarnið drauma- svefni um 45% af svefntímanum. Eftir þriggja ára aldur er draumatíminn kominn niður í um 25%. Þegar fólk eldist minnkar dýpsti svefninn og hjá öldruðu fólki má segja að fjórða stigið sé horfið. lausum svefni getur oft munað óljósar minnismyndir. Þeir sem vakna upp af draumasvefni geta venjulega greint frá Ijósum minnismyndum með atburðarás, og er það kallað draumur. Gagnstætt hinni miklu ró sem fylgir dýpstu stigum draumlauss svefns á sér stað mikil virkni í draumasvefni. Þá eru þverrákóttir vöðvar líkamans, að undanteknum andlits- og hálsvöðvum, nær alger- lega slakir svo að nálgast lömunar- ástand. Kannast margir við þetta af þeirri reynslu að vakna upp af draumi og geta ekki hreyft legg né lið nokkrar sekúndur (spinal motor inhibition). Ýmis önnur kerfi líkamans eru hinsvegar mjög virk á draumastigi og er það í samræmi við mikla virkni ósjálfráða tauga- kerfisins. Þessi virkni veldur sveifl- um á blóðþrýstingi, hjartsláttar- hraða, öndun, súrefnismagni blóðsins, starfsemi meltingarfæra, kynfæra og fleiri líffæra. Sjúklingar með skeifugamarsár framleiða langmest af þeirri magasýru sem myndast yfir nóttina á drauma- tímabilum. Fólk með kransæða- sjúkdóma vaknar stundum upp við hjartaverk og er það einnig talið gerast á draumatimabilum. Börn sofa lengur en fullorðið fólk og er draumatíminn hjá barni á fyrsta ári nær helmingur svefn- tímans. Heildarsvefntími fullvax- ins manns helst nær óbreyttur ævina út, en þegar fólk eldist minnkar dýpsti svefninn og má segja að stig fjögur sé horfið hjá öldruðu fólki. í samantekt má segja að ákveðnir þættir virðast vera mjög stöðugir í svefnmynstri heilbrigðs fólks. Tvenns konar svefn er alltaf til staðar, draumlaus (N-REM) og draumasvefn (REM). Lengd hverrar N-REM/REM umferðar er unt níutíu mínútur hjá fullorðn- um. Fólk sefur fyrst draumlausum svefni áður en draumastig hefst. Dýpstu stig svefnsins koma snemma á nóttunni (svefntím- anum). Undir morgunn er svefninn grynnri og skiptist þá á grunnur draumlaus svefn og löng drauma- tímabil. Hvaóa þýðingu hefur svefnskortur? Áður hefur verið fullyrt, að svefn sé nauðsyn en hversu nauðsynlegur er hann? Helsta aðferð til að fá svar við þessari spurningu er að svipta líkamann svefni og sjá hvað gerist. Unt aldir hefur svefnleysi verið notað til að brjóta niður mótstöðu fanga í yfirheyrslum og þykir ómissandi þegar „heilaþvottur" skal fara fram. Upp úr síðari heimsstyrjöld hófust kerfisbundnar rannsóknir á því hvert þol ntanna væri á þessu sviði og hver áhrif vökur hefðu á andlega og líkani- lega hæfni. I grófunt dráttum eru áhrif andvöku þessi: Eftir sólarhringsvöku byrjar at- hygli og einbeiting að slævast, verður óstöðug, gloppótt og síðar almennt sljó. Hæfnin til að halda athyglinni niinnkar, t.d. til að leysa reikningsþraut eða aka í umferð. Með vaxandi þreytu verða margir pirraðir og ergilegir og fólk hneigist til að skipta sér sem minnst af um- hverfinu og öðru fólki. Hæfnin til að leysa fjölþætt og flókin verkefni bilar fyrst, meðan hæfni til að inna af hendi æfða athöfn getur haldist lengi, einkum ef fólk fær að ráða vinnuhraða sínum. Á öðrurn og þriðja sólarhring fara líkamleg óþægindi að gera vart við sig. Aukin vöðvaspenna kemur fram sem höfuðverkur, svimi, eða hettutilfinning kringum höfuðið og andþyngsli. Sviði kernur í augu og þokusýn. Fólk fer að rugla sanian eigin hugsunum og utanaðkom- andi upplýsingum. Þá byrjar skynjunin að bila og rnargir eiga erfitt með að meta fjarlægð rétt, 1 4 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.