Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 27

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 27
mínútur. Við þetta lækkar líkams- hitinn skjótlega um eitt eða tvö stig og mun minni líkur eru á frekari krömpum næstu klukkutímana. Einhver kann að spyrja hvort það slái ekki að blessuðu barninu og það fái lungnabólgu við þessar mannvonskulegu aðfarir. Því er fljótsvarað: Nei. Slíkt verður ekki nema við langvarandi kulda og vosbúð þannig að mótstaða líkarn- ans minnki gagnvart sýkingum frá umhverfinu. Sú trú virðist ennþá ótrúlega lífseig, einkum hjá eldri kynslóðinni, að hita beri að reka út með svita og því sé rétt að dúða böm með háan hita sem allra mest. Einmitt þessi misskilningur hefur beinlínis leitt til ófárra hitakrampa áður fyrr. Börn með um og yfir 40 stiga hita eiga að fá að vera fáklædd og sofa undir þunnri ábreiðu, ekki þykkri sæng. Þannig líður börn- unum yfirleitt best og þannig losn- ar líkaminn best við umframhita. f vel flestum tilvikum tel ég rétt að kallað sé á lækni þegar barn fær hitakrampa, a.m.k. í meiri háttar tilfellum. Væri barnið ennþá í krampakastinu mætti gefa lyf i æð eða jafnvel í endaþarm til að stöðva kastið, og annars konar langvirkara krampalyfi mætti síðan dæla í vöðva eða gefa inn í töfluformi til að hindra frekari krampaköst næsta sólarhringinn. Um leið yrði metið hvort meðferðar væri þörf gegn hitavaldinum sjálfum, eða jafnvel hvort ástæða væri til að leggja barnið inn á spítala til frek- ari rannsókna og meðferðar. Andstætt áreitikrömpunum geta hitakramparnir hugsanlega leitt til flogaveiki síðar meir. Þetta er þó sem betur fer tiltölulega sjaldgæft og yfirleitt aðeins ef kramparnir eru óvenju illvígir og standa lengur en i fimmtán mínútur og stuðla þar með að varanlegum breytinguni í vissum heilafrumum, af völdum súrefnisskorts. Oftast er mögulegt að koma í veg fyrir frekari hitakrampa í síðari hitaköstum, en aðeins ef daglegri fyrirbyggjandi lyfjameðferð er beitt, í hæfilega stórum skömmt- um. Yfirleitt er þó ekki farið út í STUÐNINGUR VII) HOVDURAS Fyrir hönd Krabbameinsfélags- ins hefur nýstofnuðu krabba- meinsfélagi í Hondúras verið af- hent gjöf til eflingar krabbameins- lækninga þar í landi. Forsaga málsins er sú að á fundi Kvenfélags Sanieinuðu þjóðanna í Tegucigalpa, höfuðborginni í Hondúras, 14. mars 1979 var ákveðið að félagskonur, sem eru eiginkonur starfsmanna Samein- uðu þjóðanna, aðstoðuðu krabba- meinsfélag, sem þá átti að fara að stofna, við að breyta hluta af gömlum spítala (San Felipe) þannig að hann gæti þjónað krabbameinssjúklingum, en Húndúras er verst á vegi statt í þessum efnum af öllum ríkjum Mið-Ameríku. Var ákveðið að hver kona leitaði aðstoðar krabba- meinssamtaka í sínu heimalandi. Ein félagskvennanna er Aðal- heiður Guðmundsdóttir, kona Sveins Einarssonar verkfræðings, og með bréfi dags. 2. maí 1979 fór hún fram á stuðning Krabba- meinsfélagsins. Var erindinu tekið vel og ákveðið að biðja Aðalheiði að afhenda þessu systurfélagi ávis- un að upphæð eitt þúsund dollarar (verðgildi nú um 400.000 kr.) frá Krabbameinsfélagi íslands og Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. í bréfi sem nýlega barst segir Aðalheiður að 29. janúar hafi hún afhent gjöfina stjórn hins nýstofn- aða félags, Asociación Hondurena de Lucha contra el Cáncer, að við- stöddum yfirlækni krabbameins- deildar sjúkrahússins. Segir Aðal- heiður í bréfinu að mikill fengur sé að þessu „framlagi að heiman". ■F- IA ASOCIACION HONDURENA CONTRA EL CANCER HACE DELUCHA DONACION 5 eida de Einarsson entrega un nativo de mil dólares , Venientes de la Sociedad del a Ce’r de Islandia, al licenciado nnel EUceda, tesorero de la j c,ación Hondurena de Lucha ^ntra el Cáncer, fundada lentemente en esta capital. arecen con ella en el orden ^tumbrado: Gloria de ■ e ard°, Chita de Colíndres, ar^,c*enta de la Asociación, de Carbajo, presidenta del Mlim 1 t é d e D ^u-oea-bid eJ9ya' director del 0sDrtament° de Oncología del anCLta* ^an Eelipe, Nora de ^ 1 Y la seriora Cecilia Ruiz. soc?S estatutos de esta r i maCl°n Se P*asmaron en SU *nc asamblea a la que |ev_Urr'er°n personalidades t'ta HteS de# *a ^etrópoli- Dona > e Colindres en su carácter ^J^sidenta de la Asociación m a s doctor Juan expresó en aquella ocasión, conceptos alusivos a la creación de tan benéfica entidad, delineó el historial que precedió a su fundación y agradeció la promesa de ayuda del jefe de la Junta .Militar de Gobierno, de otros altos funcionarios públicos y de re pr esentantes de la Organización Panamericana de la Salud, BID, y de la OEA. Cabe mencionar que la senora de Einarsson, en una visita a su país, logró la entrega de dicho donativo, como una demostración de buena voluntad y ayuda de la Sociedad del Cáncer de aquel país. Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 2 7

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.