Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 33

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 33
aður sjór hefur umfram ferskvatn í fiskiðnaði, einkum við niðurlagn- ingu síldarafurða. Aðrir kostir við notkun á sjó í fiskiðnaði eru fyrst og fremst þeir, að af nógu er að taka hér þar sem sjórinn er, og það í næsta nágrenni fiskiðjuveranna. Ferskvatn þarf oftast að leiða unt langan veg í dýrum leiðslum. Á ráðstefnu sem haldin var á vegum Orkustofnunar, Heil- brigðiseftirlits ríkisins o.fl. á Hótel Esju fyrir ári var rætt ýtarlega um neysluvatnsmál, og kom fram að víða á landinu er farið að bera á vatnsskorti. Ekki þarf nema kóln- andi tíð og meiri þurrka til þess að vandræði verði fyrir dyrum. Sums staðar var hægt að fá takmarkað vatnsmagn úr góðum nærtækum lindum en ef vatnsfrekur iðnaður komst inn á kerfið þá þraut vatnið fljótlega. Hér er fiskiðnaður líkleg- ast vatnsfrekastur, þar má einnig nefna kjöt- og mjólkuriðnað o.s.frv. Víðast hvar annars staðar en á Is- landi verður slíkur iðnaður að afla sér vatns á eigin kostnað og að eigin frumkvæði nema af nógu sé að taka í vatnsbólum sveitarfélagsins, enda komi þá fullt verð fyrir. Mikil reki- stefna varð út af slíku máli á Seyðisfirði á sínum tíma. Menn hafa lengi trúað á óþrjót- andi vatnsbirgðir í jörðu hér, en nú er staðreyndin sú að víða er farið að gæta vatnsskorts m.a. vegna minnkandi úrkornu og lækkandi grunnvatnsstöðu, jafnvel hér á Reykjavíkursvæðinu ef þurrkar ganga. Úr þessu má bæta með þv! að nota hreinsaðan sjó í fiskiðnaði. Helslu heimildir: I. Lundborg, M., Lindhe, S., and Levin, ö. Transactions of Chalmar University of Technology, Götaborg, 1950. 2. Lundborg, m.. Levin. ö. and Lidahl, B., Institute of Marine Research Lysekil, Series Chemistry no. 1, Fishery Board of Sweden, Götaborg, 1951. 3. Martin Lundborg: Effectivety of practical electrolytic chlorination of sea water. Institutc of Marine Research, Lysekil, Sweden. Svensk Kem. Tidskr. 67(1955): II. Höfundur greinarinnar, Baldur John- sen lœknir, var forstöðumaður Heil- brigðiseflirlits rikisins frá stofnun þess, 1970, til 1976. Sjálfstætt fólk Af ýmsum ástœðum hafa málefni fatlaðs fólks verið mikið til umrœðu að undanförnu. I Morgunblaðinu 1. desember 1979 var rœtt við Halldór Rafn- ar, formann lHindrafélagsins, og levfum við okkur að birta hér hluta af svörum hans. Allt fatlað fólk eða öryrkjar er ekki endilega bundið hjóla- stólum en það er sennilega sú fötlun sem fólki dettur fyrst í hug þegar talið berst að fötluðu fólki. Fatlað fólk er einnig það sem er blint, heyrnarlaust eða þroskaheft, svo dæmi séu nefnd. Þótt þessir hópar eigi margt sameiginlegt og vinni saman þá eiga þeir einnig margvísleg sérmál hver og einn. En allir starfa fatlaðir saman innan Öryrkjabandalagsins, þar sem ríkir mikil eining og sam- staða um flest grundvallarmál. Innan þess eru nú tíu félög fatl- aðra og styrktarfélög fatlaðra. Um leið og almennt eru gerðar ráðstafanir til að bæta hag allra fatlaðra manna þarf að leggja ríkari áherslu á sér- þarfir hvers hóps fyrir sig í framtíðinni. Ég vil leggja á það áherslu að það sem fatlað fólk eða öryrkjar er að fara fram á er ekki for- réttindi, heldur jafnrétti á við aðra þjóðfélagsþegna. Enda er það svo, þegar horft er í kostnaðinn, sem eðlilega er oft gert, að mun ódýrara eða hag- kvæmara er fyrir þjóðfélagið að styrkja fatlaða til sjálfsbjargar heldur en að hafa þá ósjálf- bjarga á stofnunum. Fatlað fólk getur og vill bjarga sér sjálft og fatlaðir vinna við margvísleg störf eins og hverjir aðrir, við verslunar- og skrifstofustörf, iðnað, síma- vörslu og hvaðeina. Við viljum vera sjálfstætt fólk í sjálfstæðu landi. Benda má á að ef hús fólks brennur, eða ef eigur þess eyði- leggjast af náttúruhamförum, þá fæst slíkt greitt úr trygging- unt eða sjóðum. Ef fólk missir það sem dýrmætast er, heilsuna, þá verður hins vegar lítið um bótagreiðslur eða tryggingar. Þessu viljum við breyta og þetta er vandamál sem allir geta þurft að horfast í augu við fyrirvara- laust. Fróttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 33

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.