Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 7

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 7
Aukið fjármagn — auknir skattar Er nú í byrjun apríl sýnileg í reynd siefna stjórnarinnar i þessum mála- flokki? Mjög verulegar breytingar áttu sér stað frá þeim fjárlagafruni- vörpunt sem lögð voru fram af vinstri stjórninni annars vegar og Alþýðuflokksstjórninni hins vegar þar til að fjárlög ársins 1980 voru afgreidd. Þessar breytingar snerta alveg sérstaklega heilbrigðismálin og það er satt að segja furðulegt rniðað við öll þau blöð sem hér eru gefin út upp á hvern einasta dag að fjölmiðlar skuli ekki gera sér að því er virðist neina grein fyrir þeim tíðindum sem áttu sér stað með fjárlagaafgreiðslunni á sviði heil- brigðismála. í þeirn efnum vil ég t. d. nefna að í fjárlagafrumvarpi Tómasar Árnasonar og Sighvats Björgvinssonar var gert ráð fyrir 2200 milljónum króna í framlag ríkisins til bygginga sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva á móts við sveit- arfélögin. Þegar upp var staðið og gengið var frá fjárlögunr 2. apríl 1980 var þessi tala ekki 2200 mill- jónir heldur 3080 milljónir og hafði hækkað verulega umfram verð- lagsforsendur frá fjárlögum ársins 1979. Þessi upphæð sem þarna bættist við. upp á heilar 880 mill- jónir króna, á þessum hluta ársins sem eftir er munar mjög verulegu. í því sambandi vil ég nefna að með þessum fjárlögum er tekin ákvörð- un unt byggingu B-álntu Borgar- spítalans i Reykjavík og varið til þess 300 milljónum króna jafn- framt því sem gert er ráð fyrir fjár- munum til að ljúka við þjónustu- álmu Borgarspítalans. Þá er í þess- um upphæðum um að ræða mjög myndarlegar framkvæmdir annars staðar á landinu, eins og t. d. á Ak- ureyri, en þar er stærsta fram- kvæmd heilbrigðiskerfisins á ein- um stað á þessu ári. f meðförum Alþingis á fjárlaga- frumvarpinu hafa átt sér stað mjög veigamiklar hækkanir á framlög- um til Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Matvælarannsókna ríkisins, svo ég nefni tvö dærni, sömuleiðis á fjár- munum til Krabbameinsfélagsins og fleiri dænri mætti tína upp sem eru ákaflega þýðingarmikil. Ég vil einnig nefna í sambandi við heilbrigðismálin og fjárlögin, að tekin hefur verið ákvörðun um það að þeir tveir þriðju hlutar geð- deildarinnarsenr þegareru tilbúnir verða teknir í notkun á þessu ári. Til þess eru urn 40 nýjar stöður leyfðar samkvæmt fjárlögum fyrir árið 1980. Þá er einnig gert ráð fyrir því að setja aukinn kraft á það að innrétta þann þriðjung geðdeildar- byggingarinnar sem enn er aðeins fokheldur. Það sem kannske mest- um tíðindum sætir fyrir heilbrigð- isstéttirnar í fjárlagaafgreiðslunni er sú staðreynd að þar er gert ráð fyrir að verja 100 milljónum króna til undirbúnings svokallaðrar K-byggingar á Landspítalalóðinni og er þar með stigið skref, þó lítið sé, í þá átt að veruleg framþróun eigi sér stað í þessari miðstöð læknavísinda hér á Islandi. Alls er varið til heilbrigðis- og Með samþykkt fjárlaga fyrir árið 1980 var ákveðið að hefja fram- kvæmdir við svokallaða B-álmu Borgarspítalans en í henni verða einkum deildir fyrir langlegusjúkl- inga. Álman er í vestur frá núverandi byggingu og var grunnurinn steyptur í fyrra. Mynd:J.R. tryggingamála lló milljörðum króna á þessu ári og er það um 72% hækkun frá fyrra ári, en fjárlögin hækka alls milli áranna 1979 og 1980 um 64%. Áfengis- og tóbaksvarnir sameinaðar almennri heilbrigðisvernd? Sagt er aö betra sé heilt en vel gróiö. Einnig hefur þvi verið Iwldið fram að þeir fjármunir sem notaðir eru til aðgerða sem komið geta í veg fyrir sjúkdóma eða auðveldað að þeir verði greindir á byrjunarstigi skili miklum arði síðar nteir vegna útgjalda til lœkninga. Hyggst þú auka veg fyrirbvggjandi aðgerða, sjúkdómaleitar og heilbrigðis- frœðslu? Ég er tvímælalaust þeirrar skoð- unar að það beri að leggja mjög Fréttabréf um HEILBRIGÐISMAL 1/1980 7

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.