Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 24

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 24
meinsskrárinnar. Þá veitti félagið samtals 2,5 milljóna kr. framlag til tveggja starfshópa sem vinna að velferðarmálum krabbameins- sjúklinga í tengslum við krabba- meinssamtökin og veitti aðra minni styrki í samræmi við tilgang sinn. Stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur er nú þannig skipuð: Formaður erTómas Árni Jónasson Mió heiórum gœtna ökumenn Þeir viðskiptavinir Ábyrgðar sem tryggt hafa bíla sína hjá félaginu í 10 ár eða lengur án þess að hafa valdið bótaskyldu ábyrgðartryggingartjóni eru fluttir upp í HEIÐURSBÓNUSFLOKK sem veitir 65% bónus. Heiðursbónusinn stendur svo lengi sem tryggingin er tjónlaus. ÁBYRGÐP TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN Umboðsfélag Ansvar International Ltd. LÁGMÚLA 5 REYKJAVlK Sími 83533 læknir en meðstjórnendur Alda Halldórsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, Baldvin Tryggvason spari- sjóðsstjóri, Jón Oddgeir Jónsson fv. framkvæmdastjóri, Jón Þorgeir Hallgrímsson læknir, Páll Gíslason yfirlæknir og Þórarinn Sveinsson læknir. Kemur Þórarinn í stað Guðmundar S. Jónssonar læknis sem verið hafði í stjórn félagsins sl. 10 ár en baðst nú undan endur- kjöri. Framkvæmdastjóri félagsins er Þorvarður Örnólfsson. Á aðalfundinum voru sam- þykktar meðfylgjandi ályktanir um aðstöðu til krabbameinslækninga, kaup á sneiðmyndatæki og reyk- ingavarnir. þ.ö. ÁLYKTUN UM KRABBAMEINSLÆKNINGAR Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavikur 1980 ítrekar ályktun síð- asta aðalfundar félagsins um nauðsyn bættrar aðstöðu til krabbameinslækn- inga. Ljóst er að sú aðstaða er ófullnægj- andi, bæði hvað snertir húsnæði og tækjabúnað, til þess að unnt sé að veita krabbameinssjúklingum meðferð í samræmi við nútímakröfur. Benda má á að framfarir í meðferð hafa haft í för með sér bættar horfur sjúklinga með ýmsar tegundir illkynjaðra sjúkdóma. Þrátt fyrir allmiklar umræður á síð- ÁRBÆJAR APÓTEK Hraunbæ 102 Reykjavík HÁALEITIS APÓTEK Háaleitisbraut 68 Reykjavík asta ári hafa framkvæmdir til úrbóta ekki enn hafist. Lýsir fundurinn áhyggjum sínum vegna þessa ástands. Fundurinn telur alveg nauðsynlegt að vandamál þetta verði þegar leyst til bráðabirgða jafnframt því sem unnið verði sem hraðast að því að byggja upp framtíðarskipulag krabbameinsmeð- ferðar í landinu. Fundurinn skorar á heilbrigðis- og fjárveitingaryfirvöld að láta þessi mál þegar í stað til sín taka með þeim hætti að leiði til farsællar lausnar þeirra. ÁLYKTUN UM SNEIÐMYNDATÆKI Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur 1980 vill leggja áherslu á nauðsyn þess að hér á landi sé hægt á hverjum tíma að beita fullkomnustu tækni á sviði læknisfræði til að greina og lækna krabbamein. I þeirri baráttu má ekki spara fé né fyrirhöfn til að ná sem bestum árangri. Því skorar fundurinn á stjómvöld að hraða kaupum á tölvustýrðu Röntgen- sneiðmyndatæki til landsins. Þessi tæki hafa reynst mjög áhrifarík til þess að flýta fyrir greiningu æxla og gera geislalækningar krabbameins nákvæm- ari og árangursríkari. ÁLYKTUN UM REYKINGAVARNIR Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur 1980 vekur athygli á því að Alþjóða heilbrigðisstofnunin helgar á þessu ári alþjóðlega heilbrigðisdaginn baráttunni gegn reykingum. Er það ljós vottur um hve stofnunin telur þessa baráttu mikilvæga enda hefur hún ítrekað hvatt rikisstjórniraðildarríkja til að beita sérfyrir markvissum aðgerðum i þvi skyni að draga úr reykingum. Fundurinn bendir sérstaklega á að sérfræðingar stofnunarinnar telja afar nauðsynlegt að löggjafar, stjórnvöld, félagasamtök og áhrifamiklir hópar, svo sem heilbrigðisstéttir og kennarar, taki höndum saman um reykingavarnir. Leggja þeir í því sambandi einkum áherslu á öfluga fræðslu, upplýsingar og aðvaranir á tóbaksumbúðum, algjört bann við tóbaksauglýsingum, hömlur við reykingum á opinberum stöðum og í almenningsfarartækjum, bann við að selja börnum tóbak og skipulega aðstoð við fólk sem vill hætta að reykja. Fundurinn heitir á alla hérlenda aðila, sem í hlut eiga, að bregðast vel við þessu kalli Alþjóða heilbrigðisstofn- unarinnar. 24 Fréttabróf um HEILBRIGÐtSMÁL 1/1980

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.