Heilbrigðismál - 01.03.1980, Side 11
Á fjárlögum þessa árs er veitt 116
milljörðum króna til heilbrigðis - og
tryggingamála, en það samsvarar
rúmri hálfri milljón á hvern lands-
mann. Ráðherrann hyggst halda
heilbrigðisþing í haust til að nýting
fjármuna til þessara mála verði sem
best í framtíðinni. Mynd:j.R.
koma til greina að sameina þau tvö
ráðuneyti sem þú sljórnar?
Já, mér finnst koma til greina að
sameina félagsmálaráðuneytið og
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
ið. Ég geri mér að vísu ljóst að það
yrði geysimikið ráðherraverk í
þessu nýja ráðuneyti. Heilbrigðis-
ráðuneytið er eitt af stærstu ráðu-
neytunum og það krefst mikillar
vinnu og eftir að hafa kynnst
þremur ráðuneytum, þ. e. a. s.
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
inu, félagsmálaráðuneytinu og við-
skiptaráðuneytinu þá er mér alveg
Ijóst að þær aðferðir sem flokkarnir
hafa þegar þeir skipta ráðuneytum
sín á ntilli við stjórnarmyndanir eru
gjörsamlega út í hött og fráleitar.
Ráðherravinnan er afar misjöfn, en
ég tel að vegna skyldleika þeirra
ntálefna sem falla undir félags-
málaráðuneytið og heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið geti vel komið
til greina að sameina þau.
Verða sjúkrasamlögin
lögð niður?
Getur þú nefnt einhver lagafrum-
vörp á sviði heilbrigðismála sem
rikisstjórnin eða ráðuneytið œtla að
láta undirbúa í sumar og lögð verða
fvrir alþingi í haust?
Það eru fjöldamörg frumvörp
sem eru í undirbúningi í heilbrigð-
is- og tryggingaráðuneytinu sem
verða ýmist lögð fyrir þing núna á
vordögum eða þá í haust. Þau sem
yrðu lögð fyrir þing fyrst meiri
háttar mála eru annars vegar
frumvarp um þjónustu við aldraða
og frumvarp til laga um breytingar
á lögum um almannatryggingar
þannig að sjúkrasamlög verði lögð
niður en öll sú þjónusta sem þau
hafa veitt fari gegnum Trygginga-
stofnun ríkisins. Hér er um að ræða
löngu tímabæra lagfæringu að
mínu mati. Auk þessara mála erum
við með ýniis mál í undirbúningi og
ég er viss um að Fréttabréf um
heilbrigðismál mun gera grein fyrir
þeim jafnharðan og þau breytast í
veruleika.
Heilbrigðisþing íslands
haldið undir haustið
Hver er boðskapur þinn að lok-
um?
Að lokum vil ég segja þetta:
Meginvandi heilbrigðisþjónust-
unnar á islandi hefur verið sá að
smærri sjónarmið hafa ráðið of
mikið ferðinni. Það hefur ekki ver-
ið um að ræða fastmótaða heildar-
stefnuskrá um aðgerðir á sviði
heilbrigðis- og tryggingamála á
undanförnum árum. Hér hafa átt
sér stað verulegar sveiflur í þessurn
efnum. Vissulega hefur oft verið
myndarlega að hlutunum staðið en
það þarf að móta skýra fram-
kvænidastefnu. Með tilliti til þess
að slíkt er nauðsynlegt og jafnframt
með tilliti til þess hvað er nauðsyn-
legt að samræma þá þjónustu sem
fyrir er á þessu sviði þá höfum við
ákveðið að haldið verði seint næsta
sumar eða undir haustið heilbrigð-
isþing tslands. Mér er kunnugt um
að á undanförnum árum hefur
komið fram verulegur áhugi á slíku
þinghaldi af hálfu heilbrigðisstétt-
anna og ég var ekki búinn að vera
marga daga í heilbrigðisráðuneyt-
inu þegar ég áttaði mig á því að
heilbrigðisþing væri í raun og veru
lykillinn að því að unnt væri að
taka á þessum málum með ein-
hverja heildarsýn í huga og heil-
brigðisþingið verður sem sagl
haldið núna undir haustið. Þar
verður safnað hugmyndum og
reynt að átta sig á forgangsröð
verkefna. Síðan er ætiunin að í
framhaldi af þinginu verði mótuð
stefnuskrá í heilbrigðismálum til
langs tíma — jafnvel til aldamóta
— og að lögð verði fram á alþingi
skýrsla um þessa stefnumótun
þannig að þar og í stjórnmála-
flokkunum fari fram sem víðtækust
uniræða um þessi málefni og þau
týnist ekki í þvargi af misjafnlega
merkilegum toga. Það er okkar
hlutverk sem störfum að heilbrigð-
ismálum að halda þessurn máluni
uppi í ljósið þannig að það fari ekki
á milli mála hvað er að gerast og á
að gerast á vegum heilbrigðisþjón-
ustunnar.
Um leið og við þökkum heil-
brigðisráðherra greið svör við
spurningum blaðsins skal ítrekað að
Fréttabréf um heilbrigðismál mun
hér eftir sem hingað til vera reiðu-
búið að veita landsmönnum frœðslu
um heilbrigðismál á þann hátt „að
hún nái til sem flestra".
-F-
Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 1 1