Heilbrigðismál - 01.03.1980, Síða 18
1
2
Egilsstaðarannsóknin:
Sjúkraskrár fyrir heilsugæslustödvar
og tölvufærsla uppfysinga
I grein þessarri verður sagt frá
rannsókn á sjúkraskrám fyrir
heilsugæslustöðvar og úrvinnslu
upplýsinga úr þeim. Rannsóknin
fór fram við Heilsugæslustöðina á
Egilsstöðum og hófst árið 1975.
Hún var framkvæmd með styrk frá
Norðurlandaráði, að tilhlutan
norrænnar nefndar um staðtölu-
gerð á sviði heilbrigðismála.
Nefndin nefnist NOMESKO og
hafa Islendingar tekið þátt í störf-
um hennarsíðan 1974.
Rannsókn þessi hefir leitt í ljós
að unnt er án verulegrar fyrir-
hafnar að skrá nákvæmlega öll
Grein eftir
Guðmund Sigurðsson
samskipti íbúa á tilteknu svæði við
heilsugæslustöð. Þessi skrúning
getur orðið eðlilegur þáttur í starfi
stöðvarinnar. Sjúkraskráin og upp-
lýsingakerfið, sem rannsóknin
hefur þróað virðist vera:
— gagnlegt hjálpartæki við
stundun sjúklinga
- góð undirstaða upplýsinga um
heilbrigðisástand íbúahópsins
— góð undirstaða upplýsinga um
heilsugæsluþjónustuna.
Markmið rannsóknarinnar var
að þróa aðferðir við að skrá, telja
og flokka samskipti íbúa tiltekins
svæðis við heilsugæslustöð.
I þessu skyni var prófað:
1. Nýtt sjúkraskrárform fyrir
heilsugæslu.
2. Notkun samskiptaseðils við
skrásetningu upplýsinga um
samskipti íbúanna og heilsu-
gæslustöðvarinnar.
3. Gagnsemi og hagkvæmni þess
að nota tölvu við skráningu,
geymslu og úrvinnslu upplýs-
inga.
Starfssvæði heilsugæslustöðvarinn-
ar á Egilsstöðum nær yfir ellefu
sveitarfélög með um 2700 íbúa sam-
tals. Þessir hreppar eru: Hlíða-
hreppur (1), Jökuldalshreppur (2),
Fljótsdalshreppur (3), Fellahreppur
(4), Tunguhreppur (5), Hjaltastaða-
hreppur (6), Borgarfjarðarhreppur
(7), Skriðdalshreppur (8), Valla-
hreppur (9), Egllsstaðahreppur (10)
og Eiðahreppur (11).
18 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980