Heilbrigðismál - 01.03.1980, Page 20

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Page 20
FORM SAMSKIPTA 1977 KOMAÁSTOFU 63,9% VITJUN 4,4% SÍMTAl 16,1% ONNUR SAMSKIPTI (OFTAST SAMSKIPTI VIÐ MILLIGÖNGUMANN) 15,6% ... geta verið undirstaða rann- sókna og kennslu. Sjúkraskráin þarf að standast þessar kröfur á þann hátt að hún spilli ekki trúnaði milli sjúklings og heilbrigðisstarfsmanns. Sum þess- ara atriða uppfylla flestar sjúkra- skrár en þegar kemur að öðrum bregst hefðbundin sjúkraskrá. Við sumum þeirra verður ekki orðið nema með því að nota nútíma að- ferðir við gagnavinnslu. Nýja sjúkraskráin sem tekin var í notkun byggist á svonefndum „Problem Oriented Medical Re- cords“. Hún er að tvennu leyti frá- brugðin hefðbundinni sjúkraskrá sjúkrahúsa, því að notaður er svo- nefndursamskiptaseðill, og færð er sérstök heilsuvandaskrá. Samskiptaseðill er fylltur út í hvert skipti sem íbúi á samskipti við heilsugæslustöðina. Seðillinn er einnig notaður til þess að skrá aðrar upplýsingar, t.d. úr læknabréfi. Er aldrei skráð í sjúkraskrána án þess að fylla út slíkan seðil. Meðal þeirra atriða af samskiptaseðlinum sem skráð eru í tölvu eru tilefni samskiptanna (frá sjónarmiði íbú- ans), sjúkdómsgreining og úr- lausnir (rannsóknir, meðferð). Heilsuvandaskráin er efnisyfirlit sjúkraskrárinnar. Þar eru skráð öll vandamál sem vitað er um, tengd heilsufari íbúans. Tölvuskráning hefir farið fram á þann hátt að í Heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum hefur verið notuð lítil tölva, þar sem hægt er að skrá upplýsingar og geyma á snældu (kasettu). Þessar upplýsingar hafa síðan verið sendar gegnum síma (sem hljóðmerki) til Reykjavíkur þar sem fengin hafa verið afnot af tölvu Krabbameinsskrár Krabba- meinsfélags íslands. Þar hafa upp- lýsingar verið geymdar og úr- vinnsla farið fram. Grundvöllur þessarar skráningar er þjóðskráin. Hafa verið teknar út þjóðskrárupplýsingar um íbúa á starfssvæði Heilsugæslustöðvar- innar á Egilsstöðum og eru allar upplýsingar sem skráðar eru tengdar þeim. Það er grundvallar- atriði í skráningu og úrvinnslu, að geta heimfært allar upplýsingar til ákveðins hóps og gerir þetta allar niðurstöður marktækari. Tölvu- skráning tekur einungis til íbúa með lögheimili á starfssvæði stöðvarinnar. Skráning eins og hér hefur verið lýst hefir nú farið fram á Egilsstöð- Af 2673 íbúum á starfssvæði Heilsu- gæslustöðvarinnar á Egilsstöðum áttu 2103 íbúar samskipti við stöðina árið 1977. Af þeim voru 158 lagðir inn á sjúkrahús, þar af 74 annars staðar en á Egilsstöðum (40 á Reykjavíkursvæðinu). um síðan 1. júlí 1976. Hefur verið safnað miklum upplýsingum sem ekki hefur verið unnið úr nema að litlu leyti, enda var viðfangsefni rannsóknarinnar fremur að þróa aðferðir við skráningu og úrvinnslu heldur en efnisleg úrvinnsla á öll- uni upplýsingum. Til fróðleiks eru birtar hér nokkrar töflur með niðurstöðum skráningarinnar. Þær eiga að gefa hugmynd um þá fjölmörgu mögu- leika á upplýsingum sem skráning- in býður upp á. Heildarfjöldi samskipta árið 100 100 80 v ..•• v; X\ karlar \ 80 60 60 40 HLUTFALL ÍBÚA í HVERJUM ALDURSHÓP 40 SEM ÁTTU SAMSKIPTI VIÐ 20 HEILSUGÆSLUSTÖÐINA ÁRIÐ 1977 20 0- 9 10-19 20-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70-79 80 + 20 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.