Heilbrigðismál - 01.03.1980, Page 21

Heilbrigðismál - 01.03.1980, Page 21
MEÐALFJÖLDI SAMSKIPTA Á KLUKKUSTUND (KL. 8 — 20) ÁRIÐ 1977 Frá kl. 20 aö kvöldi til kl. 8 aö morgni eru aö meðaltali ein samskipti á dag. Samskipti viö utanhéraðsmenn eru ekki talin með. 6.5 1977 var 10.760 og 1978 12.318. Svarar þetta til þess að hver íbúi eigi að meðaltali 4.0—4.5 samskipti á ári. Er þetta mjög svipuð tala um samskiptafjölda á íbúa og í könnun sem gerð var á landsbyggðinni 1974, á vegunt landlæknis. Munur á fjölda samskipta 1977 og 1978 stafar að verulegu leyti af meiri tíðni kvefsótta síðara árið. Konur eiga mun fleiri samskipti en karlar bæði vegna sjúkdómseinkenna og ýmissa annarra ástæðna. Karlar eiga aftur á móti mun fleiri sam- skipti vegna slysa. Fljótt á litið kemur á óvart hversu fá samskipti eru á tímabil- inu frá kl. 20 að kvöldi til kl. 8 að morgni. Þess ber þó að gæta að samskipti við utanhéraðsmenn eru ekki talin þarna með, né heldur út- köll vegna sængurkvenna og sjúkl- inga sem liggja í sjúkrahúsinu. Ennfremur er rétt að vekja athygli á því að á bak við ein samskipti getur legið margra klukkustunda ferð í sjúkravitjun. Þó þessar tölur gefi þannig ekki rétta mynd af vinnu- álagi vakthafandi læknis á kvöldin og nóttunni er greinilegt að unnt er að sinna langmestum hluta erinda að degi til. Virðist líklegt að greiður aðgangur að læknisþjónustu að degi til leiði til færri samskipta á kvöldin og nóttunni. Athyglisvert er hversu margir íbúanna eiga einhver samskipti við heilsugæslustöðina á hverju ári, eða um 74% karla og 84% kvenna. Þetta gefur stöðinni mikla mögu- leika á að ná til íbúanna með heilsuverndaraðgerðir eða fræðslu án þess að boða sérstaklega nema lítinn hluta hópsins. Mikill hluti samskipta (um 60%) á sér stað án beins frumkvæðis sjúklings, vegna eftirlits eða endurnýjunar lyfseðils. Algengustu einkennin sem valda því að sjúklingur leitar til stöðvar- innar eru kvef og verkur í útlim. Tíu einstakar sjúkdómsgreining- ar eða ástæður eru að baki um þriðjungi allra samskipta. Sé litið á sjúkdómsflokka en ekki einstakar greiningar eru samskipti vegna sjúkdóma í öndunarfærum og hjarta og blóðrás algengust. Þar næst koma geðsjúkdómar. Lyfjaávísun er algengasta úr- lausnin. Algengustu lyfjaávísanir eru á róandi lyf (diazepant), verkjalyf (codimagnyl), fúkkalyf (penicillin) og blóðþrýsti ngslyf (inderal). Ekki verður út frá þessu metin heildarnotkun lyfjanna því einungis er talinn fjöldi lyfjaávís- ana en ekki ávísað magn. Þannig leiða takmarkanir þær á magni ró- andi lyfja, sem ávísa ntá hverju sinni, til fleiri ávísana á þessi lyf. Af 2103 íbúum sem leita til heilsugæslustöðvarinnar árið 1977 eru 158 (7,5%) lagðir inn í sjúkra- hús, sumir oftar en einu sinni, og eru innlagnir alls 199. Af þessum 158 eru 84 lagðir inn i sjúkrahúsið á Egilsstöðum, 34 í Neskaupsstað og á Akureyri og 40 i Reykjavík. Alls er 77 einstaklingum vísað til sér- fræðings 115 sinnum, (1,1% af fjölda samskipta) nær öllum 1 Reykjavík. Þetta þýðir að 151 ein- staklingi af þeim 2103 (7,2%) sent til stöðvarinnar leita er vísað burt af staðnum til þess að fá þjónustu annars staðar. Innlagnir eru mun færri en á landinu í heild. Skýring þess liggur ekki fyrir og er hæpið, þótt freist- andi sé, að þakka þetta góðri heilsugæsluþjónustu eingöngu. TÍU ALGENGUSTU GREININGARNAR ARIÐ 1978 Bæöi kyn. Fjöldi greininga alls 13. 398 01 . Of hár blóðþrýstingur ... . 862 6,2% 02. Mæðraskoðun 467 3,4% 03 . Getnaðarvarnir - pillan . • 414 3,0% 04. Þunglyndi 403 2,9% 05. Kvefsótt 390 2,8% 06. Ónæmisaðgerð 369 2,7% 07 . Svefnleysi 357 2,6% 08 . Eyrnabólga 326 2,3% 09. Vöðvagigt 308 2,2% 10. Taugaveiklun 295 2,1% 4 .191 30,2% Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 21

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.