Heilbrigðismál - 01.03.1980, Qupperneq 28
Ákveðið hefur verið að hætta að senda Takmark til áskrifenda
Fréttabréfs um heilbrigðismál. Þess í stað verður komið upp sérstakri
áskrifendaskrá fyrir Takmark og það sent ókeypis, a. m. k. fyrst um
sinn, til þeirra sem þess óska. Þeir áskrifendur Fréttabréfs um heil-
brigðismál sem hafa áhuga á að fá Takmark sent áfram eru því beðnir
að hafa samband við skrifstofuna í síma 16947 eða 19820. Einnig er
hægt að tilkynna það skriflega og er utanáskriftin: Takmark, Pósthólf
523, 121 Reykjavík. Takmark verður sem fyrr helgað baráttu unga
fólksins gegn reykingum og mun koma út fjórum sinnum á ári. Enn er
unnt að fá Takmark frá upphafi, ails 14 biöð, og jafnframt eru tii sölu
sérstakar möppur til að geyma það í. Verð þeirra er 1000 krónur. —-jr.
slíka langtímameðferð fyrr en eftir
annað hitakrampakastið, nema um
sérstaka áhættuþætti sé að ræða,
t.d. ef fyrsti hitakrampinn er langur
og hatrammur, sýnilegur er heila-
skaði hjá barninu fyrir krampann,
há flogaveikitíðni er í ætt og heila-
rit er afbrigðilegt. Hins vegar mætti
benda á að eftir að barn hefur
fengið einu sinni hitakrampa væri
æskilegt að varna því að líkamshit-
inn nái sérá strik. Má gera það með
því að hafa barnið léttklætt og gefa
hitalækkandi lyf (t.d. hluta úr
magnyltöflu).
Þess má einnig geta, að nýlega er
komið á markaðinn krampalyf í
plasttúbum (rectal diazepam), til
innhellingar í endaþarm. Þannig
gætu foreldrar sjálfir, að undan-
fengnum nákvæmum læknisfyrir-
mælum, stöðvað krampakast barns
síns á fáeinum mínútum. Það veitir
' ii. .....
Góó heilsa ep
Öaefa feveps iwaRHS
Tillagað krúska.
Hentugt í súrmjólk.
Ríkt af trefjaefnum
sem eru nauðsynleg
meltingarstarfseminni.
FAXAFEbb HF
_______________________
því töluvert öryggi að hafa jafn
fljótvirkt og auðgefið krampalyf
við höndina, til að geta stöðvað
krampann áður en hann verður of
langvinnur og þar með hættulegur.
Það krampalyf sem reynst hefur
langbest til varnar hitakrömpum
nefnist „phenemal“. Það er gefið í
töfluformi og má gefa það í einum
dagskammti að kvöldi. Þetta sama
lyf er einnig fáanlegt í endaþarms-
stautum, oftast þá í samsetningu
með hitalækkandi efnum eins og
„phenacetin". Þessir stautar eru
talsvert notaðir til að lækka hita og
LAUGARNES
APÓTEK
Kirkjuteigi 21
Reykjavík
GARÐS
APÓTEK
Sogavegi 108
Reykjavík
minnka óróa hjá smábörnum og
eru vissulega góðir til þeirra nota,
en magn krampalyfsins í þeim er of
lítið til þess að nokkuð sé á þeim
byggjandi til að hindra krampa
(nema þá eftir nokkurra daga stöð-
uga notkun). Einnig má hér við
bæta að hitakramparnir koma oft í
upphafi hitalækkunarinnar og
stundum jafnvel áður en foreldr-
arnir hafa hugmynd um að barnið
sé með hita, en það rýrir vissulega
enn frekar notagildi slíkra stauta
sem krampalyfs.
Hið eina sem er sæmilega öruggt
til að stemma stigu við frekari
hitakrömpum er stöðug dagleg
krampalyfsmeðferð, þar til barnið
hefur verið algjörlega laust við
krampa í tvö til þrjú ár. Þá er smá-
dregið úr lyfjaskömmtunum, hægt
og hægt, yfirleitt á nokkrum mán-
uðum, áður en meðferð er hætt að
fullu og öllu.
Að lokum má ítreka að krampar
hjá börnum eru margvíslegir að
orsök, uppruna og afleiðingum.
Flest krampaköst verka ógnvekj-
andi á umhverfið, en sem betur fer
er meiri hlutinn af barnakrömpum
ekki í ætt við flogaveiki og hefur
tiltölulega sjaldan slíkar afleið-
ingar, nema um óvenju langvinna
krampa sé að ræða.
Þröstur Laxdal lœknir er sérfrœðingur
í barnalœkningum og starfar á Landa-
kotsspítala. Hann er einnig lektor við
Lœknadeild Háskóla íslands.
28 Fróttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980