Heilbrigðismál - 01.03.1980, Síða 29
-g-
i------p—
OPERATING THEATRBS
SPEClAL
MEDICAL BMERQENCY& OBSERVATlON PROCEEDUflES
AL PATHoloGY & HAEMAl
>LOGY
iY & HABMATOLOGYuemp)
NUCLEAR MEDICINE
radiotherApy/chemotherapy LEVEL 0 |
RADK3
THERAPY
TREATMI
1—I
'ENTj_|
r
4
4
futuœBldg.O
-Ji
K-hyggingin:
100 MILLIÓMIt
Á FJÁRLÖGUM
Á fjárlögum fyrir árið 1980, sem
samþykkt voru á Alþingi fyrir
páska, voru veittar 100 milljónir
króna til framkvæmda við svo-
nefnda K-byggingu á Landspítala-
lóðinni. Fyrir þessa fyrstu fjárveit-
ingu mun vera unnt að halda áfram
hönnun byggingarinnar og bjóða
fyrsta hluta verksins út fyrir ára-
mót. Þetta er þó háð því að sam-
þykki Bygginganefndar Reykja-
víkur fáist fljótlega svo og að lokið
verði umfjöllun Samstarfsnefndar
um opinberar framkvæmdir.
I marsmánuði kom út skýrsla
hins breska ráðgjafafyrirtækis sem
unnið hefur að undirbúningi
hönnunar K-byggingarinnar. I
skýrslunni, sem er 63 bls. í stóru
broti, kemur fram að fyrir níu
mánuðum, 13. júní 1979, fól Yfir-
stjóm mannvirkjagerðar á Land-
spítalalóð fyrirtækinu Llewel-
yn-Davies Weeks að semja frum-
drög að ráðgjöf um hönnun nýrrar
byggingar við Landspítalann í
samræmi við lauslegar tillögur
embættis húsameistara ríkisins (sjá
Fréttabréf um heilbrigðismál, júní
1979, bls. 21-22). Síðan hafa orðið
breytingar á því hvaða starfsemi
yrði í húsinu auk krabbameins-
lækninga og einnig á lögun bygg-
ingarinnar. Samkomulag náðist um
þessi atriði 1 lok nóvember.
Hin nýja bygging verður á
þremur hæðum (þar af aðeins tvær
ofanjarðar) og mun rísa milli G
álmu spítalans og bráðabirgðahúsa
Rannsóknastofu Háskólans við
Barónsstíg.
Byggingin skiptist í þrjá hluta
(K 1, K2 og K3). Lagt er til að fyrst
verði lokið við grunna K1 og K2 og
síðan verði unnið að því að reisa K1
á sama tíma og hinir þykku geisla-
varnarveggir K2 eru steyptir. Þegar
flutt hefur verið inn á 1. hæð í K1
verður hægt að reisa þriðja áfang-
ann (K3). Heildarflatarmálið er
6.220 fermetrar sem skiptist þannig
að 4.400 fermetrar eru í fyrsta
áfanga, 550 í öðrum og 1.270 1
þriðja. Neðsta hæðin er 1.960 fer-
metrar, fyrsta hæð 2.105 og önnur
hæð 2.155 fermetrar. I skýrslunni
segir að „miðað við jafnt fjár-
streymi til nýbygginga munu út-
boðsáfangar bygginga, og samhliða
útboð fyrir frágang og búnað,
spanna um sjö ár, og fyrstu deild-
irnar ættu að flytja inn eftir þriðja
árið.“ Hugsanlega má stytta þenn-
an tíma í fimm ár.
Á neðstu hæðinni er hin nýja
krabbameinslækningadeild ásamt
ísótópastofu. Aðstaðan fyrir
krabbameinslækningar er á 1210
fermetrum og verður þar rými fyrir
Fróttabról um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980 29