Heilbrigðismál - 01.03.1980, Blaðsíða 30
Yfirlitsmynd af neðstu hæðinni sem
hýsa mun krabbameinslækninga-
deild og ísótópastofu.
allt að tuttugu sjúklinga í skoðun,
meðferð eða hvíld á hverjum tíma.
Á þessari hæð verður einnig nýr
inngangur fyrir göngudeildina.
Á fyrstu hæð í austurenda verður
aðstaða til sérstakra geislagrein-
ingaraðgerða. inngangur að bráða-
lyflæknisdeild og meðferðarher-
bergi, daggæsludeild og næturmót-
taka. Fyrstu árin mun vesturendinn
hýsa meinefna- og blóðmeina-
fræðideildir en þegar bygging A
hefur risið (í skýrslunni er það talið
næsta verkefni í forgangsröð ný-
bygginga) mun þessi hluti hæð-
arinnar verða endurbúinn fyrir
röntgendeild.
Á annarri hæð er gert ráð fyrir
sex skurðstofum, skurðstofudauð-
hreinsun, tíu rúma uppvakninga-
stofu og tíu rúma gjörgæsludeild.
Eins og að framan segir eru þetta
tillögur Weeks og félaga og geta
þær enn átt eftir að taka breyt-
ingum áður en byggingafram-
kvæmdir hefjast. Verður reynt að
fylgjast með framvindu þessara
mála næstu mánuðina og birta
fréttir af því hér í blaðinu, enda er
þessi K-bygging talin forsenda þess
að bæta megi aðstöðu til krabba-
meinslækninga hér á landi I nán-
ustu framtíð. -y>.
□SŒSEO QOH33I1
JAJ SaúHPaaAÖ
VESTURBÆJAR LYFJABÚÐ
APÓTEK BREIÐHOLTS
Melhaga 20—22. Reykjavík Arnarbakka 4—6, Reykjavík
30 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980