Heilbrigðismál - 01.03.1980, Page 34
Tóbakssalan 1979:
TiEP 469 TOW
Árið 1979 voru seld 468.996
kg af tóbaksvörum frá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins. Þetta
er um 4,4% meira en árið áður.
Aukninguna má skýra að hluta
með íbúafjölgun og aukinni
sölu á „léttari“ sígarettum.
Tóbakssalan á hvern íbúa var
í fyrra um 2080 grömm en var
árið áður um 2010 g. Hæst hefur
hún komist árið 1974 í 2174 g og
árin 1975 og 1976 var hún
einnig meiri en í fyrra.
Sé neyslunni deilt niður á
íbúa 16 ára og eldri verður
heildarneysla tóbaks á hvern
fullorðinn landsmann árið 1979
um 2980 grömm. í ýmsum ná-
lægum löndum er tóbaksneysl-
an (þannig reiknuð) nokkru
meiri, t. d. í Hollandi (4030 g),
Bandaríkjunum (4260 g) og
Kanada (4400 g). 1 flestum þró-
unarlöndum er neyslan hins
vegar ennþá mun minni, t. d. á
lndlandi (770 g).
Sala á vindlum minnkaði á
síðasta ári um 5,6% en þó seld-
ust hér rúmlega 15 milljón
stykki eða tæp 37,6 tonn sé gert
ráð fyrir að hver vindill vegi að
jafnaði 2,5 g.
Um 4% samdráttur varð í sölu
á reyktóbaki (píputóbaki) og
var salan um 44,6 tonn.
Neftóbakssalan í fyrra var
2,9% minni en árið áður. Sala
þess nam 13,9 tonnum en sala á
munntóbaki aðeins 109 kg.
Sígaretturnar eru lang mest
selda tóbakið. Hér seldust í
fyrra rúm 372,7 tonn eða meira
en milljón stykki á dag. Aukn-
ingin frá fyrra ári er um 7%.
Nú eru 80,3% seldra sígaretta
hér með síu (filter) en þetta
hlutfall var 32,4% fyrir ellefu
árum. Magn tjöru og nikótíns í
sígarettum hefur lækkað á sama
tíma, og sé tekið mið af reynslu
nágrannaþjóðanna ætti slík
lækkun að verða til þess að fleiri
sígarettur seldust. Vegið meðal-
tal tjöru í sígarettum á íslensk-
um markaði árið 1979 var 19 trtg
sem er 6% minna en fyrir
þremur árum (átt er við tjöru í
þeim reyk sem reykingamaður-
inn dregur að sér miðað við til-
tekinn staðlaðan reykinga-
máta). Sambærilegar tölur í
Bandaríkjunum lækkuðu úr 37
mg i 17 mg frá 1957 til 1977 og 1
Bretlandi úr 31 mg í 18 mg frá
1965 til 1975. Mesta tjara í síga-
rettum sem hér eru til sölu er 35
mg en minnst 2 mg. Meðalmagn
nikótíns hér er 1,3 mg og af
kolsýrlingi eru um 16 mg í reyk
hverrar sígarettu.
Árið 1973 samþykkti ráð-
gjafanefnd Evrópuráðsins að
hvetja stjórnir aðildarríkjanna
til að banna framleiðslu og sölu
á sígarettum sem gefa meira en
15 mg af tjöru og 1 mg af nikó-
tíni. Konunglega breska lækna-
félagið hefur tekið undir þessa
stefnu. I fyrra voru 86% af þeim
sígarettum sem hér voru seldar
yfir tilgreindum mörkum.
Fjölbreytt úrval tóbaksvarn-
ings er hér á boðstólum og varla
er það út af fyrir sig líklegt til að
draga úr sölunni, nema síður sé.
Alls voru seldar hjá ÁTVR í
fyrra 45 tegundir af sígarettum,
103 tegundir af vindlum og 25
tegundir af reyktóbaki.
Eins og áður sagði vega síga-
retturnar þyngst í tóbakssölunni
eða 79,48% (voru 3,1% af söl-
unni fyrir um 65 árum), næst
kemur reyktóbakið með 9,52%
(10,0%), síðan vindlar með
8,01% (10,3%), þá neftóbakið
með 2,97% (35,2%) og loks
munntóbak með 0,02% (en var
41,3% af sölunni áöðrum áratug
þessarar aldar).
-F-
Heimildir: Eigin útreikningar
greinarhöfundar byggðir á sölutölum
A fengis- og lóbaksverslunar ríkisins.
Skýrsla bandaríska landlæknisins,
Smoking and Health, birt 11. jattúar
1979. World Smoking & Health,
mars 1979, bls. 23. Greinar eftir
Malini Seshardi og Mike Daube I
frélt WHO um alþjóðlegan heil-
brigðisdag 1980.
TÓBAKSSALA A. T.V.R. EFTIR ÁRSFJÓRÐUNGUM
1974 1975 1976 1977 1978 1979
Jan.-mars Apríl-júní Júlí-sept. Okt.-des. 116.100 kg 118.495 kg 124.427 kg 108.769 kg 107.768 kg 125.109 kg 117.488 kg 115.485 kg 113.436 kg 121.824 kg 121.150 kg 121.078 kg 111.847 kg 104.320 kg 110.578 kg 116.994 kg 111.466 kg 119.287 kg 109.903 kg 108.608 kg 113.204 kg 119.399 kg 119.859 kg 116.534 kg
Samtals 467.791 kg 465.850 kg 477.488 kg 443.739 kg 449.264 kg 468.996 kg
34 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1980