Heilbrigðismál - 01.09.1983, Blaðsíða 5

Heilbrigðismál - 01.09.1983, Blaðsíða 5
Umræður á Alþingi: Þingmenn eru hlynntir hjartaskurðlækningum á Landspítalanum en ráðherra vill fyrsí bæta búnað til kransæðaskoðana Tíu þingmenn tóku þátt í um- ræðum á Alþingi um hjartaskurð- lækningar og lýstu allir stuðningi við áfornt um að hægt yrði að stunda slíkar lækningar á Landspítalanum sem fyrst. Það var Svavar Gestsson, fyrrver- andi heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra, sem bar fram svohljóð- andi fyrirspurn til núverandi ráð- herra þessara mála: „Hver eru áform ríkisstjórnarinnar varðandi stofnun deildar fyrir hjartaskurðlækningar á Landspítalanum?" Þegar fyrirspurn- in kom til umræðu, 25. október, sagði Svavar: „Ég tel að fjárhags- Tengt framhjá stífluSum kransxð- um (hypass-aðgerð) á sjúkrahúsi í Arizona. legar röksemdir séu afdráttarlausar í þessu efni og það sé hagkvæmt að taka upp hjartaskurðlækningar hér á landi, miðað við þann gífurlega kostnað sein Tryggingastofnun ríkis- ins verður að leggja í vegna þess mikla fjölda fólks sem leitar sér lækninga erlendis nú orðið og talið er að geti orðið 150-160 manns á þessu ári.“ Hann sagði að bæði fjár- hagslegar, mannlegar og tæknilegar röksemdir mæltu með því að þessi starfsemi verði tekin upp hér. Matthías Hjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, minnti á það í svari sínu við fyrirspurninni að meira en áratugur væri síðan um- ræður hófust urn það hvort hefja ætti hjartaskurðlækningar hér á landi, en þá var það ekki talið tíma- bært. Þetta mál hefði verið til um- fjöllunar síðan og Stjórnarnefnd rík- isspítalanna hafði þetta sem for- gangsverkefni við gerð fjárlaga síð- ustu þriggja ára, en fjárveitinga- nefnd féllst ekki á það. Auk kostn- aðarins sem hlýst af nýrri starfsemi eins og hjartaskurðlækningum þá þarf að gera umtalsverðar breyting- ar á skurðstofum Landpítalans. Þar að auki þarf að gera ráð fyrir því að nýr tækjabúnaður komi til rann- sókna á kransæðum á Röntgendeild Landspítalans, en áætlað er að sá búnaður einn kosti um 15 milljónir króna án aðflutningsgjalda. Þó að Alþingi féllist nú á að hcfja hjarta- skurðlækningar gæti deildin ekki Hér sést hvernig kransæðarnar liggja utan á lijartanu. HEILBRIGÐISMÁL 3/1983 5

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.