Heilbrigðismál - 01.09.1983, Blaðsíða 16
Banaslysin í umferðinni:
BREYTINGAR Á DÁNARTÍÐNI
-55 -60 -65 -70 -75 -80
tíðni í umferðarslysum 3,0 árin
1936—40, hækkaði í 9,7 árin 1941 —
45 komst hæst í 13,0 árin 1971—75
en lækkaði í 12,3 næstu fimm árin.
Árin 1981-82 var dánartíðnin kom-
in niður í rúmlega 10 af 100.000.
Fyrir hálfri öld voru umferðar-
slysin 5% af öllum dauðaslysum hér
á landi en nú eru þau 25% af öllum
slíkum slysum. Byggist þessi breyt-
ing bæði á fjölgun umferðarslysa og
fækkun annarra slysa, m. a. drukkn-
ana.
Sé litið á banaslys í umferðinni
sem hlutfall af fjölda bíla kemur í
ljós allt önnur mynd. Árin 1926—30
dóu 39 miðað við 10.000 bíla en árin
1976-80 aðeins 3. í lok síðasta árs
voru skráðir um 105 þúsund bílar á
öllu landinu en einum áratug áður
voru þeir aðeins 57 þúsund.
Nær þrír af hverjum fjórum sem
látast í umferðarslysum eru karlar.
Virðist þetta hlutfall lítið hafa breyst
síðustu þrjá áratugi, þótt sífellt fleiri
konur hafi ökuréttindi.
Helstu orsökum umferðarslysa,
samkvæmt dánarvottorðum, má
skipta í fjóra flokka. I 30% tilvika
verður gangandi maður fyrir öku-
tæki, um 30% slysanna verða við
árekstur og um 30% við það að öku-
maður missir stjórn á ökutækinu og
það veltur á vegi eða fer út af. Um
10% banaslysa í umferðinni verða af
öðrum ástæðum.
Árin 1976-80 létust alls 138 ís-
lendingar í umferðarslysum, eða 28
að meðaltali á ári. Karlarnir voru
100 en konurnar 38. Þessi mikli
munur milli kynja er að mestu leyti
vegna aldurshópanna frá 5 ára til 29
ára. Á þessu fimm ára tímabili létust
15 börn á aldrinum 5—9 ára (þar af
13 drengir), 6 börn 10—14 ára, 30
unglingar 15-19 ára (þar af 25
drengir), 18 manns 20—24 ára (þar
af 14 karlar) og 11 manns 25-29 ára
(þar af 9 karlar). Helmingur þeirra
sem létust í umferðarslysum á árun-
um 1976—80 var yngri en 25 ára.
Slys eru algengasta dánarorsökin
fram á fimmtugsaldur, og umferðar-
slysin eiga mikinn þátt í því að svo
er. Það er því til mikils að vinna að
draga úr slysum í umferðinni.
Hcimildir: Mannfjöldaskýrslur, Hcilbrigöis-
skýrslur o. fl.
Jónas Ragnarsson ritstjórí og Ólafur
Ólafsson landlæknir tóku saman.
|
1
16 HEILBRIGÐISMÁL 3/1983