Heilbrigðismál - 01.09.1983, Blaðsíða 13

Heilbrigðismál - 01.09.1983, Blaðsíða 13
tækjum. Þetta kemur m. a. fram í könnun sem Guðmundur H. Einars- son heilbrigðisfulltrúi hefur gert að tilhlutan Landlæknisembættisins. Þessi könnun var unnin í kjölfar þingsályktunar, sem Alþingi sam- þykkti á síðasta vetri, um rannsókn- ir á vélhjólaslysum. Könnunin tók til fimmtíu vél- hjólaslysa í Reykjavík árin 1981 og 1982. Aðild að þessum slysum áttu 37 ökumenn léttra bifhjóla (skelli- naðra) og 14 ökumenn bifhjóla (mótorhjóla). Af þessum hópi var fjórði hver réttindalaus, en af þeim sem voru með réttindi höfðu 66% haft þau í minna en eitt ár, þar af 53% innan við hálft ár. Á þessum tveimur árum lenti einn drengur þrisvar í vélhjólaslysum og annar tvisvar. Samkvæmt greiningum á Slysa- deild Borgarspítalans reyndist 49% af ökumönnum léttu bifhjólanna vera alvarlega slasaðir en einungis 15% ökumanna. Auk þess slösuðust tveir farþegar á vélhjólum og einn gangandi vegfarandi. Af þessum fimmtíu vélhjólaslys- um árin 1981 og 1982 urðu flest í ágúst (10) og september (7), og til- tölulega flest á kvöldin. Lang oftast var um að ræða árekstur milli vél- hjóls og bifreiðar, og í 63% þeirra tilvika taldist ökumaður vélhjólsins vera „í rétti". Þegar Guðmundur kynnti þessar niðurstöður á Norrænu umferðarslysaráðstefnunni nefndi hann þá ástæðu fyrir slíkum slysum að ökumenn bifreiðanna sæu ekki vélhjólin nógu tímanlega. Taldi hann að aukin notkun endurskins- nrerkja gæti komið að gagni. I þessu sambandi má minna á þingsálykt- unartillögu sem lögð var fram á síð- asta Alþingi þess efnis að öku- mönnurn væri skylt að nota ökuljós mun meira en nú er gert. Varðandi aðgerðir til að draga úr vélhjólaslysum bendir Guðmundur H. Einarsson á betri ökukennslu, lækkun á hámarkshraða léttra bif- hjóla úr 50 km í 30—40 knr og hugs- anlega hækkun á lágmarksaldri ökumanna slíkra bifhjóla úr 15 í 16 ár. -jr. Umferðin 1933: Hættulegri en núna? Hvernig var ástandið í umferðinni fyrir hálfri öld? í „Árbók Reykja- víkur 1940“ eru birtar upplýsingar um umferðaróhöpp árin 1930—39. Árið 1933 urðu 243 óhöpp í um- ferðinni í Reykjavík. Það virðist vera mjög mikið þegar þess er gætt að þá voru aðeins um þúsund bílar í Reykjavík. Þess skal getið að í fyrra skráði lögreglan um þrjú þúsund umferðaróhöpp í Reykjavík, en bílafjöldi borgarbúa var um fjörutíu þúsund. Flest umferðaróhöppin í Reykja- vík árið 1933 urðu í júlí, en næstir komu mánuðurnir september og janúar. Algengast var að óhöppin ættu sér stað á gatnamótum (95) eða götum (75) innanbæjar, en í þriðja sæti voru vegir utanbæjar (47). Þá, eins og nú voru helstu orsakirnar brot á umferðarreglum (24%) og óvarlegur akstur (31%). Af öðrum orsökum má nefna ölvun (6%), gá- leysi fótgangandi fólks (5%) og loks þrengsli og hálku (4%). í þessum 243 umferðaróhöppum árið 1933 lenti 421 farartæki. Stærsti hópurinn voru „fólksbifreiðar til leigu" (134), síðan komu vörubif- reiðar (110), reiðhjól (95) og einka- bifreiðar (57). Einnig eru á þessari skrá 9 hestvagnar og sleðar, svo og 1 handvagn. Ekki er getið um hversu margt fólk slasaðist í þessum óhöppum en varðandi skemmdir á eignum er sagt að „dýr drepin" hafi verið 3 og „dýr meidd" jafnmörg. Þá skemmdust 5 „ljósker og símastaurar". -jr. UmferSin í Austurstræti í Reykjavík fyrir hálfri öld, áður en „umferðar- menningin“ var fundin upp. HEILBRIGÐISMAL 3/1983 13

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.