Heilbrigðismál - 01.09.1983, Síða 18

Heilbrigðismál - 01.09.1983, Síða 18
Umferðarslysin og afleiðingar þeirra eru stærra vandamái en áður var talið Grein eftir Bjarna Torfason Umferðarslys er það nefnt þegar eðlilegt samspil manns, ökutækis og umhverfis raskast, þannig að meiðsl hljótast af. Slysin í umferðinni hafa valdið mönnum vaxandi áhyggjum hérlendis. Miklum fjármunum er varið til lækninga, endurhæfingar og tryggingabóta. Mikið fjárhagslegt tjón er einnig fólgið í vinnutapi, vegna heilsubrests og dauða, en þján- ing og ástvinamissi verður aldrei hægt að meta til fjár. Unnt ætti að vera að fækka um- ferðarslysum og draga úr meiðslum, en til þess þurfa að liggja fyrir ýtar- legar upplýsingar um sem flesta þætti umferðarmála, en á það hefur þótt skorta, a. m. k. til skamms tíma. Um helmingur þeirra sem slösuðust í umferðinni árið 1975 og komu á Slysadeild Borgarspítalans höfðu slasast í bílum, en tæpur hclmingur þess hóps voru ökumenn. Höfundur þessarar greinar tók að sér, fyrir þremur árum, rannsókn á þeim umferðarslysum sem skráð voru á Slysadeild Borgarspítalans á eins árs tímabili. Fyrir valinu varð árið 1975 og ákveðið var að kanna sérstaklega afleiðingar alvarlegustu slysanna til ársins 1980. Skýrsla um rannsóknina kom út í árslok 1983 (sem fylgirit við Heilbrigðisskýrslur á vegum Landlæknisembættisins) og verður hér getið uin helstu niður- stöður. Fjöldinn. Rannsóknin náði til þeirra íslendinga sem komu eða komið var með á Slysadeild Borgar- spítalans árið 1975 vegna umferðar- slysa. Með umferðarslysum er átt við slys á fólki af völdum ökutækja á hreyfingu, á vegi eða á leið út af vegi. Rannsóknarhópurinn taldi 1882, þar af 1645 sem áttu lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Það svarar til 1409 slasaðra á ári af 100.000 íbúum, eða 1,4%. Svipuð tíðni var í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Mos- fellssveit. Flest á haustin. Flest umferðarslys urðu um haustið, um 200 á mánuði í ágúst, september og október en að- eins um 100 á rnánuði í desember, janúar og febrúar. Árstíðasveiflurn- ar voru mismunandi eftir vegfar- endahópum. Þannig slösuðust þeir sem voru varðir vegfarendur (öku- menn og farþegar í bílum) lang oft- ast í ágúst, september og október. Flest vélhjólaslys urðu í apríl og okt- óber. Helmingur reiðhjólaslysanna varð í maí, júní og júlí. Slys á gangandi vegfarendum urðu flest í mars, september og október. Ölvun fátíð. Ölvun var skráð or- sök umferðaslysa í 5,5% tilfella og algengust í slysum á gangandi veg- farendum eða 10%. Þegar varðir vegfarendur áttu í hlut var ölvun talin orsök í 5% tilvika en fátíðari við slys á vélhjólum, 3%, og á reiðhjólum, innan við 1%. Þetta er í samræmi við eldri ályktanir um að Þessi tafla sýnir hvernig heildarfjöldi slasaðra skiptist eftir tegundum slysa og vegfarendahópum. Sem dæmi má nefna að 59 manns sem voru á reið- hjólum slösuðust í árekstrum við bíla, en enginn slasaðist í bílum sem lentu í árekstrum við vélhjól, reið- hjól eða gangandi vegfarendur. Mcð einföldum slysum er átt við slys þar sem aðeins einn aðili á hlut að máli. SLASAÐIR 1 UMFERÐINNI 1975 EFTIR VEGFARENDAHÓPUM Ökutæki sem hinn slasaói var í/á Bill Vél- Reið- Gang- Annað h jól h jól andi Alls Einfalt slys 279 69 274 0 17 639 Árekstur viö bíl 666 67 59 286 5 1083 viö vélhjól 0 0 1 18 0 19 vió reiðhjól 0 0 4 27 0 31 við gangandi 0 3 2 0 0 5 viö annað 78 0 5 22 0 105 Alls 1023 139 345 353 22 1882 18 HEILBRIGÐISMÁL 3/1983

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.