Heilbrigðismál - 01.09.1983, Side 24

Heilbrigðismál - 01.09.1983, Side 24
þreyta, eða slen, lystarleysi og megr- un, hitavella, nætursviti og kláði eru meðal þeirra almennu einkenna sem sjúklingurinn getur fundið fyrir sjálfur. Með almennum einkennum er átt við að ekkert þeirra er sérein- kenni fyrir Hodgkins sjúkdóm eða önnur lymfoma og getur verið af allt öðrum ástæðum. Oftast er þó eitt- hvert einkenni sem leiðir sjúkling- inn til læknisskoðunar. Sjúkdómur- inn getur þó einnig greinst fyrir til- viljun hjá einkennalausu fólki. Vakni grunur hjá lækninum um að eitlastækkun sé alvarlegs eðlis eru fyrstu viðbrögð hans að stað- festa sjúkdómsgreiningu. Til að geta kveðið upp slíkan úrskurð þarf að rannsaka sýni úr viðkomandi eitli undir smásjá. Sýni er oft tekið með skurðaðgerð en einnig má fá hald- góða vísbendingu um eðli eitla- stækkunarinnar með fínnálará- stungu. Sýnin sem þannig fást eru síðan tekin til sérstakrar meðferðar, m. a. lituð með vefjalitum sem draga betur fram margvísleg ein- kenni í byggingu frumnanna þegar þær eru skoðaðar í smásjá. Sýnistak- an og formeðferð sýnanna er oft ranglega nefnd ræktun í daglegu tali og ruglað saman við meðferð huldu- sýkla svo sem gerla og baktería. Gefi vefjagreining eitilsins sönn- un þess að um Hodgkins lymfoma sé að ræða er næsta skref að kanna útbreiðslu sjúkdómsins. Fyrst er hugað að ytri eitlastöðvum sem læknirinn nær til með þreifingu, á hálsi í holhöndum og í nárum. Djúp- læg eitlakerfi eru rannsökuð með röntgenmyndun. Slík eitlakerfi og viðeigandi sogæðar eru þá sérstak- lega einkennd með skuggaefni sem auðveldar greiningu hugsanlegra eitlabreytinga við skoðun á röntgen- filmum. Auk nákvæmrar leitar í eitla- og sogæða kerfum líkamans er leitað sjúkdóms í öðrum vefjum og líffærum. Sýni eru tekin úr bein- merg. Uppskurður á kviðarholi er framkvæmdur til að ná sýni úr lifur og þreifanlegum eitlum eða grun- samlegum breytingum og miltað er fjarlægt. Sérstök röntgenmyndun af lungum og nýrum er gerð, en ástand líkamsbeina kannað með geislavirk- um efnum. Nú á síðustu árum hafa tölvustýrð sneiðmyndatæki einnig verið nýtt við leit að útbreiðslu Hodgkins sjúkdóms. Ýmsar blóð- og þvagrannsóknir eru gerðar til að fá vísbendingu um almennt ástand eða starfsemi einstakra líffæra. Hér hafa verið nefnd helstu atriði er til þurfa við greiningu Hodkgkins sjúkdóms og könnun á útbreiðslu hans. Þegar heildarmynd sjúkdóms- ins fer að skýrast er mál að huga að og skipuleggja læknismeðferð hans. Lengi hefur verið ljóst að máttur skurðlækninga má sín ekki til lækn- ingar lymfoma. Uppgötvun röntgen- geislans um síðustu aldamót og ár- angur tilrauna til að beina honum gegn illkynja eitlameinum vakti í upphafi nánast hömlulausa bjart- sýni. Sú bjartsýni var þó ekki á traustum grunni byggð, og var bæði um að kenna þekkingarskorti á dreifingu sjúkdómsins og orkurýrð geislalækningatækjanna. Um miðja þesa öld voru háorku geislalækn- ingatæki tekin í notkun samfara því að skilningur á vaxtareðli og hegðun sjúkdómsins jókst. Árangurinn lét ekki á sér standa og lífshorfur juk- ust. Eftir heimsstyrjöldina síðari, en einkum á sjötta og sjöunda áratugn- um komu á markaðinn lyf sem reyndust árangursrík í baráttunni við lymfoma og önnur illkynja mein. Það er til marks um skilnings- skort manna á eðli þessa sjúkdóms að árin 1911 — 1940 var „Hodgkins- veiki“ flokkuð í íslenskum heil- brigðisskýrslum með sjúkdómum í blóði, eitlum eða milta en ekki með illkynja sjúkdómum. Þessa þrjá ára- tugi er vitaö um tvo Islendinga sem létust af völdum „Hodgkinsveiki". Árin 1941-1950 dóu 15 manns úr „Hodgkinsveiki" sem þá var talin í hópi næmra sjúkdóma er sótt- kveikjur valda, samkvæmt alþjóð- legri sjúkdómaskrá frá 1938. Það var ekki fyrr en með nýrri sjúk- dómaskrá, sem tekin var upp hér á landi 1951, að þessi sjúkdóntur er talinn til krabbameina og er nefndur „Hodgkinssjúkdómur". Á sjötta áratugnum létust 24 Islendingar úr sjúkdómnum og 27 rnanns á þeim sjöunda. Þessar tölur segja þó lítið um hversu algengur sjúkdómurinn var á fyrri hluta aldarinnar þar eð greiningarmoguleikarnir og ná- kvæmni skráningar voru ekki í eins góðu formi og nú er. Skráning nýgreindra sjúkdómstil- fella gefur einnig betri mynd af ást- andinu heldur en dánartölur. ís- lenska krabbameinsskráin segir okk- ur að 5 manns greinist að meðaltali árlega með Hodgkins sjúkdóm hér á landi, þar af 2 konur. Á aldarfjórð- ungi, 1956—80, var þessi sjúkdómur 24 HEILBRIGÐISMÁL 3/1983

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.