Samtíðin - 01.09.1937, Qupperneq 9

Samtíðin - 01.09.1937, Qupperneq 9
SAMTÍÐIN 5 framreiddur. Eina leiðin til að kenna erlendum þjóðum að meta siika fæðu, er að mínu áliti sú, að kenna þeim góða framreiðslu, en leiðin til þess mun vera sú, að selja á stofn sérstaka mat- sölustaði í viðkomandi löndum, þar sem fiskurinn er borinn á borð á smekklegan liátt og með mörgum tilbrigðum. Sama er að segja um kjöt og kjötrélti. — Hvers konar framleiðslu eiga Islendingar að þínum dómi að leggja stund á og bvers konar versl- unarbætti? — Hað munu flestir vera mér sannnála um, að heppilegast sé fyr- ir Islendinga að hugsa aðallega um þá framleiðslu, sem er í beinu sam- bandi við aðalatvinnuvegi landsins. Að vísu gelur margs konar önnur starfsemi þróast á íslandi. Hafa Is- lendingar síðastliðin ár gert margar tilraunir til þess að auka islenskan iðnað, og hefir sá iðnaður aðallega myndast vegna innflutnings- og gjaldej'rislakmarkana. Þetla á ekki einungis við um íslendinga, heldur einnig fleslar aðrar þjóðir. Það væri æskilegt, að þessi nýi iðnaður gæti baldið áfram, þegar heimsverslun- in er orðin frjáls aftur. Hann mun þó eiga erfitl með að keppa við iðn- að stórþjóðanna, þegar þar að kem- ur, vegna þess bve markaðurinn er takmarkaður (nær eingöngu is- lenski markaðurinn). — Hve langt er síðan þú stofn- settir verslunarfyrirtæki þitt í Ham- borg, og hvernig hagar fyrirtækið starfsemi sinni ? — Þann 1. október 1935 stofnsetti ég, ásamt þýskum mánni, inn- og útflutningsfirma í Hamborg, sem var stofnað til þess, að gera þýsk- islensku viðskiptin auðveldari en bingað til. Margir íslenskir kaup- sýsluriienn liafa orðið að draga úr viðskiptum sínum við önnur lönd, aðallega Norðurlönd, og beina þeim til Þýskalands. Þar eð þýski mark- aðurinn er mörgum innflytjendum á Islandi að mestu lej'ti ókunnur, áleit ég, að nauðsynlegt væri, að í Hamborg væru íslendingar, sem sæju um innkaup fyrir innflytjend- ur á Islandi, og enn fremur um sölu á íslenskum útflutningsvörum í Þýskalandi. Eins og gert var ráð fyrir, varð starfsferill firmans sam- kvæmt þessu. I árslok 1936 tók ég einn við firmanu. Spurningu þinni um það, hvernig fyrirtækið liagi starfsemi sinni, er ekki auðsvarað í stuttu máli, en aðalstarfsemin er sú, að það hefir komið sér í sam- band við iðnaðarfvrirtæki í Þýska- landi, Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Tékkóslóvakiu og nokkrum öðrum löndum. Ennfremur hefir það kynt sér markaði á þeim vörutegundum, sem þörf er á á íslandi, svo að hægt sé á stuttum tíma að útvega islensk- um kaupsýslumönnum þær vörur, er þeir þarfnast. Auk þess hefir það kevpt og miðlað sölu á islenskum landabúnaðar- og sjávarútvegsvör- um til Þýskalands og nokkurra ann- ara landa. — Hefir firma þitt mikil viðskipti við Island? — Nálega öll viðskipli firmans eru við ísland, enda var það til- Frh. á bls. 7

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.