Samtíðin - 01.09.1937, Síða 18

Samtíðin - 01.09.1937, Síða 18
14 SAMTÍÐIN vöru og tóku sér staup við og við. Einkum brá Holm fyrir sig viðhafn- armiklum orðum úr söngmálinu og talaði um óperur og symfóníur. Hann kvaðst hafa ákveðið, að þarna yrði strokkvintett og cembalo. — Hver á að spila það? spurði Vendt. — Ég, svaraði Holm. — Kantu það? -— Kann og kann ekki — ég skal reyna hvað ég get. — Þá vil ég strax stinga upp á þvi, að spilað verði útlent lag, sem ég heyrði, þegar ég var lítill dreng- ur og gleymi aldrei; það hét: Je suis á vous Madame. — Geturðu sungið það á frönsku? —- Hvað heldurðu, sagði Vendt. — Settu nú hlé. _ Hlé — þvi þá það? — Það lengir skemtiskrána: hún verður þó einni línu lengri fyrir bragðið. Við lengjum matseðilinn líka oft með þess háttar smáræði. — Þeir fyltu glösin og fengu sér aftur glaðning. Holm mælti: — Ég hef verið að hugsa um Hergöngulag Bismarcks. Ekki leist Vendt á það. -— Nei, það er ekki þetta, sem spilað var vfir Alpaflöllin, sagði Holm. — Hergöngulag Bismarcks er nú frægt, skal ég segja þér; það stendur i Ilíonskviðu. — Ha, i hverju stendur það? — Það er hjá Hómer, i Ilions- kviðu. Vendt hugsaði sig um: — Jæja, úr því svo er, sagði hann. — Hver á að spila það? — Það verður spilað á accordeon, og hann Karel í Rótinni svngur undir. Ég set það þá? — Já-já, sagði Vendt algerlega samþykkur. — En ég get ekki að því gert, að mér er vel við Frakka. Settu ekki hann Bismarck. Settu II- ionskviðu og annað ekki. Holm skrifaði Ilíonskviðu. — Þá ættum við nú að vera búnir? sagði hann spyrjandi. — Settu aftur hlé, hvað sem öðru líður, sagði Vendt. Holm fór þrisvar fýluför, áður en hann hitti Davidsen, sem nú vann í bankanum. Davidsen hugs- aði ekki um annað en nýju stöðuna sína og hafði litinn tíma til að rabha um annað. — Eruð þið nú búnir að ganga frá skemtiskránni? spurði hann. -— f bili, ansaði Holm varfærnis- iega. — Ætli við ættum ekki að hafa Súlamítsöngvana með? — Nei, nú breytum við engu framar, sagði Davidsen. —- Það virðist eklci ætla að batna við breyt- ingarnar. Aftur skelti Holm skuldinni á Vendt. Honum dytti svo margt í hug. Seinasta sólarhringinn hafði hann ekki talað annað en frönsku. Davidsen rendi augnnum yfir skemtiskrána. — Skárri er það nú fjöldinn af hléunum, sagði hann — þrjú hlé. Holm: Það er líka úr honum Vendt. Hann segir, að svona sé það haft á matseðlunum. — Það væri óskandi, að þetta lánaðist vel, sagði Davidsen.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.