Samtíðin - 01.09.1937, Síða 20

Samtíðin - 01.09.1937, Síða 20
1(5 SAMTÍÐIN Stanley Niðurl. III. Lloyd George, sá maður, sem tal- ið er, að unnið hafi sigur Bretlands i Heimsstyrjöldinni frá pólitísku sjónarmiði, valt úr forsætisráð- lierrasessi liaustið 1921. Hann var sá fyrsti í fylkingu þeirra stór- menna, sem féll fyrir Stanley Bald- win á leið lians til æðstu pólitískra valda í Bretlandi. Sá síðasti, sem féll fyrir Baldwin, var sjálfur kon- ungurinn, Játvarður YIII. Frægustu íhaldsráðlierrarnir frá 1921, þeir Austen Chamberlain, Bal- four lávarður, Birkenhead lávarð- ur, Sir Roberl Horne og Winston Ghurchill, (sem þá var raunar frjálslyndra megin), höfðu þegar á átti að herða, fylgt Lloyd George að málum. Þeir féllu þar af leið- andi ásamt honum. Þar með var þeim í bili úr vegi rutt. Bonar Law varð nú forsætisráðherra, en Bald- win var gerður að fjármálaráð- herra. Það merkasta, sem liann gerði i þeirri stöðu, var samningur hans við Ameriku um skuldir Kng- lands. Baldwin leit þannig á, að ekki kæmi annað til mála, en að Englendingar greiddu allar skuldir sínar; það hafði fyrirtækið Bald- win Ltd. altaf gerl. Og i fullu sam- ræmi við þá skoðun sína, kom hann nú heim úr leiðangri sinum með samning, sem hafði þau áhrif, að Bonar Law varð agndofa af skelf- ingu. Taldist forsætisráðherra svo Baldwin tií, að samningurinn mundi hafa það í lor með sér, að hreska þjóð- in vrði um heilan mannsaldur að minka neyslu síua á flestmn svið- um að verulegu leyti. Baldwin þótt- ist nú-sjá fram á, að hann mundi missa emhætti sitt. íhaldsblöðin réðust vitanlega á hann af mikilli lieift. En Bonar Law hélt hlífiskildi yfir ráðherra sínum, og hættan leið hjá eins og hvert annað þrumu- veður. Arið 1923 varð Bonar Law að hætta stjórmnálastarfsemi vegna heiluhrests. Allir töldu vist, að Cur- zon lávarður, sem þá var utanríkis- ráðherra, mundi verða forsætisráð- herra eftir hanh. En hæði verka- manriaflokkurinn, sem þá var stærsti andstöðuflokkur stjórnar- innar, og konungur voru honum andstæðir. Baldwin varð fyrir val- inu. Curzon lávarður fór, að sögn. að gráta, er hann frétti um þessa ráðstöfun. Honum var gersamlega ofvaxið að skilja, hvernig óreynd- ur maður, sem ekki hefði neitt sér- stakl til síns ágætis, og ekki væri einu sinni kunn persóna, eins og hann orðaði það, gæti orðið for- sætisráðherra i Englandi. En Cur- zon var Báldwin þó hlýðinn og auð- sveipur og hauðst til að verða utan- rikisráðherra hjá honum framveg- is. Er Baldwin myndaði ráðuneyti í næsta sinn, vék hann Curzon til hliðar og gerði í þess stað Austen Chamberlain að utanríkisráðherra.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.