Samtíðin - 01.04.1941, Síða 15

Samtíðin - 01.04.1941, Síða 15
SAMTÍÐIN II H. CURRAN YFIRDÓMARI: Maður frá Virginíu — HANN VAR eins og hver annar umrenningur og liafði verið tekinn fastur, þar sem liann lá sof- andi á bekk ásamt tveim öðrum ná- ungum af sama tagi. Lögregluþjónn- inn, sem'fann þá, ákærði þá alla fyr- ir ósiðsamlega breytni og dró þá fyr- ii’ lög og dóm. Þegar þeir stóðu andspænis mcr og játuðu sekt sína liver á fætur öðr- um, virtist mér tveir þeirra vera úr liópi alkunnra vandræða-gemlinga í New York. Þeir voru háðir undir á- hrifum víns. En þann þriðja þekkti ég ekki. Við tókum fingraför þeirra. Eins og ég hafði gizkað á, voru tveir þessara manna alkunnir um- renningar, og hlutu þeir dóm sam- kvæmt þvi, sem efni stóðu til. Því uæst sneri eg mér að þeim þriðja, sem alls ekkert var kunnugt um. Hann var hár maður, órakaður, geysilega óhreinn og illa til reika, en yngi-i en hinir flækingarnir. Hann horfði stöðugt niður fvrir sig. — Lítið þér framan í mig, sagði ég- — Já, dómari. Hann talaði með haaversklegum raddblæ. Hin dökku augu hans voru vingjarnleg o’g spyrj- undi, þegar hann leit upp. Svo virtist hann allt í einu hafa öðlazt hugrekki, og hann brosti, rétt eins og við vær- um að gera að gamni okkar. Eru þelta umbúðir, sem þér eruð með um hendurnar? spurði ég. Já, dómari. Umbúðirnar voru eins óhreinar og hendur hans. Til hvers eru þær? spurði ég'. - Ég veit það ekki, dómari. — Það er farið að grafa undir þeim. Mig verkjar undan þeim. - Hvenær voru þær látnar á hendurnar á yður? — Ég lield, að það sé mánuður síðan. - En af bverju bafið þér ekki látið skipta um umbúðir? Ég veit það ekki. — Gerir það nokkuð til? — Hvaðan eruð þér? - Frá Virginíu. Hann brosti und- arlega og' dálítið afsakandi. — Og þér ei'iið algerlega félaus? Eigið þér engan að, og hafið þér ekk- ert að gera? — Nei, dómari — og — ég hef ekkert að borða. Bros færðist yfir andlit hans, en því næst virtist eins og liann ætlaði að hníga niður. Lög- regluþjónninn greip yfir um hann, til þess að verja hann falli. - Þetta er ekki venjulegur um- renningur, yðar hágöfgi, mælti lög- regluþjónninn. - Hann er algerlega ódrukkinn og hefur ekkert gerl fyr- ir sér — er aðeins svangur. En mað- urinn er fárveikur. Dómurinn var kveðinn upp þegar í stað. Samkvæmt honum skyldi flækingurinn dveljast í 20 daga á

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.