Samtíðin - 01.03.1944, Page 32
28
SAMTÍÐIN
ARIÐ 1854 voru sex svölur frá
París fluttar suður fyrir Lyon
og þeim sleppt þar kl. 11,15. Allar
svölurnar höfðu áletrað bréf með-
ferðis, líkt og bréfdúfurnar forðum.
Þær flugu þegar beimleiðis, og
komu tvær þeirra til Parísar kl. 13,
sú þriðja kl. 14,15 og sú fjórða kl.
16. En tvær af svölunum skiluðu
sér aldrei. Fjarlægðin milli staðar-
ins, þar sem svölunum var sleppt,
og til Parísar eru um 250 enskar
mílur. Sést af þvi, að tvær svölurn-
ar, sem fyrstar komu að markinu,
bafa flogið að meðaltali meira en
140 enskar mílur á klukkustund.
(Cr L’Intrasigeant, París).
FUGLAFRÆÐINGUR befur á-
ætlað, að á ári hverju séu
600,000 fuglar drepnir á þjóðveg-
um Stóra-Eretlands. Þessir fuglar
vara sig ekki á þvi, hve ökutæki
nútimans eru braðfara. Englending-
ar kvarta sáran yfir þessu milda
fugladrápi, sem allajafna er óvilja-
verk.
(Ur Daily Herald, London).
MATARÆÐISVÉL.
INN HEIMSFRÆGI, japanski
heilbrigðis- og mataræðis-
ráðunautur, dr. Saiki, sem lesénd-
ur Samtíðarinnar kannast við úr
merkri ritgerð í 3. befti ritsins 1940,
hefur nú útbúið vél, sem sker úr
því, bvers kona fæði mönnum benti
bezt. Séð að ofan lítur þessi vél
einna Iielzt út eins og baðker, sem
sá, er rannsaka skal, leggst endi-
langur í, þannig að bakið veit nið-
ur. Yfir andliti bans er lítill gluggi.