Samtíðin - 01.05.1947, Page 7

Samtíðin - 01.05.1947, Page 7
SAMTiOIH Maí 1947 Nr. 132 14. árg., 4. hefti SAMTÍÐIN kemur mánaðarlega, nema i janúar og ágúst. Árgjaldið er 20 kr. og greið- ist fyrirfram. Áskrift getur byrjað hvenær sem er. Úrsögn er bundin við áramót. Hitstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason magister, simi 2526, pósthólf 75. Áskriftar- gjöldum veitt móttaka í Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1, Bólcabúð Aust- urbæjar, Laugaveg 34, og á Bræðraborgarstíg 29. Prentúð i Félagsprentsmiðjunni. AÐ er fróðlegt að sjá, hvað hinn vitri Kínverji, Lin Yutang, sem er gagnkunnugur vestrænni menningu, ritar um menntun og takmark hennar. Stuttur útdráttur úr grein hans um það efni fer hér á eftir: Markmið menntunar eða menningar er í raun réttri í því fólgið, að menn þroskist í smekkvísi á það, sem þeir öðlast þekk- ingu á, og temji sér vandaða breytni. Sið- aður maður eða mannaður í beztu merk- •ngu þess orðs þarf ekki endilega að vera víðlesinn né lærður, heldur verður hann að kunna skil á því, hvort honum geðjast að því, sem máli skiptir, eða ekki. Smekkvísi gagnvart þekkingu er í því fólgin, að menn viti, hvað gott er og illt. Ekkert er andstygilegra en að hitta í samkvæmi mann, sem er stútfullur af ártölum og staðreyndum úr mannkyns- sögunni, vel að sér um, hvað við ber í Rússlandi og Tékkóslóvakíu, en alveg áttaviltur, er hann á að mynda sér per- sónulega skoðun í þessum efnum. Ég hef hitt fyrir menn, sem voru alls staðar heima, að því er snerti þekkingu á stað- reyndum, en skoðanir þeirra voru brjóst- umkennanlegar. Slika menn skortir ekki fróðleik, en þá brestur gersamlega dóm- greind eða smekk. Lærdómur er. í því fólginn að troðfylla sig af staðreyndum eða upplýsingum, en smekkur eða dóm- greind er fólgin í listrænu mati. Þegar Kín- verjar ræða um lærdómsmann, gera þeir yfirleitt greinarmun á lærdómi hans, hegðun, smekkvísi eða dómgreind. Eink- um á þetta við um sagnfræðinga. Sagn- fræðirit getur verið samið af miklum lær- dómi, en jafnframt gersneytt innsæi eða dómgreind, og í mati sinu eða skilningi á persónum og atburðum sögunnar kann að verða ber skortur höfundar á frumleik eða djúpsæi. Við segjum, að slíkur maður sé gersneyddur dómgreind á því, sem hann veit. Ekkert er auðveldara en að heyja sér þekkingu, hlaða á minnið staðreynd- um og atburðum. Sögulegt tímabil á sér margar staðreyndir, sem auðvelt er að fylla hugann af, en hitt er miklu örðugra að úrskurða, hverjar þessara staðreynda séu mikilvægar, og er slíkt undir sjónar- miði hvers og eins komið. — Menntaður er því sá maður, sem veit, hvað hann á að etska og hata. Þetta nefnum við dóm- greind, og samfara henni skapast yndis- þokki. En að eiga sér smekk eða dóm- greind krefst þess, að menn eigi sér getu til að kryfja viðfangsefnin til mergjar, séu óháðir í dómum sinum og frábitnir því að láta nokkurs konar gabb, hvort heldur félagslegt, pólitískt, bókmenntalegt, list- fræðilegt eða akademiskt, telja sér hug- hvarf. Það er enginn vafi á því, að þegar við komumst til vits og ára, lendum við í fullkomnu hafróti yfirdrepsskapar og gervimennsku, að því er snertir: frægð auðlegð, föðurlandsást, stjórnmál, trúar- brögð, skáld, listamenn, einræðisherra og sálarfræðinga. Þegar sálkönnuður segir okkur, að starfsemi innyflanna i bernsku standi í ákveðnu sambandi við metorða- girnd, kappgirni og skyldurækni mannsins seinna á ævinni, eða að harðlífi leiði til andlegs smásálarskapar, getur maður, sem á sér dómgreind, ekki annað en bros- að. Þegar maður hefur á röngu að standa, hefur hann rangt fyrir sér, og það er eng- in ástæða til að fá neina ofbirtu í augun né

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.