Fréttablaðið - 13.01.2010, Side 1
MIÐVIKUDAGUR
13. janúar 2010 — 10. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
GÖNGULEIÐIR Á TRÖLLASKAGA er göngu-
kort sem var endurútgefið af Hólaskóla – Háskólanum
á Hólum um áramótin. Þekktar gönguleiðir er að finna
á kortinu, meðal annars Heljardalsheiði, Svarfdæla-
leið, Hólamannaveg og Hjaltadalsheiði auk annarra
skemmtilegra gönguleiða. www.holar.is
Sigmar bjó fyrir nokkrum árum í Chile og dóttir hans, Rósa Marí, var þá með í för. Á þeim tíma ferð-uðust þau meðal annars til Perú en nú í sumar var farin ferð til Mar-okkó þar sem sonur hans, Alex-ander Þór, 12 ára, var einnig með í för.
„Ég kýs að ferðast til staða þar sem ekki er mikið um ferðamenn. Mér finnst það ekki síst öruggara þegar ég er með krakka, þar sem ekkert er þá um glæpi sem tengj-ast oft ferðamannastöðum og svo er það oft rólegra og afslappaðra “segir Sigmar
pakkaferð til Costa del Sol, með hóteli og öllu, og mun ódýrara en ef ég hefði bara tekið flugið. Þannig var þetta tvískipt ferð: Nokkrir dagar í sundlaugunum á hótelinu og svo ævintýraferð: bakpokaferð-in um Marokkó. Við tókum lest til Malaga og svo næturferju til Mar-okkó og dvöldum fyrst í litlum bæ við landamæri Líbíu.“Þaðan hófst ferðalagið þvert yfir Marokkó en Sigmar var með lítinn þrjátíu lítra bakpoka á bak-inu og allir voru með tki
aldabæjarins Fez er líkt því að ferðast aftur í tímann. Á markað-inum þar fæst allt milli himins og jarðar, allt frá ávöxtum til úlfalda. Innan um ferska ávexti og fram-andi krydd voru svo kjötbúðirn-ar sem minntu meira á gæludýra-verslanir með gaggandi hænur, jarmandi kindur og flóttalegar skjaldbökur.“Eftir að hafa ferðast eftir Mið-jarðarhafsströnd Marokkó e d ðferðin í T
Ferðast með krakkana sína á óvenjulega staði
Sigmar Örn Alexandersson ferðast gjarnan með börnin sín á staði sem ekki eru miklir ferðamannastaðir.
Hann hefur ferðast um Suður-Ameríku með dóttur sína og nú síðast til Marokkó með son og dóttur.
Sigmar Örn á ferðalagi um Perú fyrir nokkrum árum með dóttur sína, Rósu Marí.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Auglýsingasími
VEÐRIÐ Í DAG
Skemmtilegt
ævintýri
Brúðubíllinn
fagnar 30 ára
afmæli.
TÍMAMÓT 16
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
SIGMAR ÖRN ALEXANDERSSON
Fór með börnin í bak-
pokaferð til Marokkó
• á ferðinni • nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
Endurvekur
gamla stemningu
KK kallar á gamla vini til tónleika-
halds.
FÓLK 21
HILMAR VEIGAR PÉTURSSON
EVE er leikur ársins á
virtri leikjavefsíðu
Reynsluboltarnir völdu íslenska leikinn
FÓLK 26
ÓSKAR PÁLL SVEINSSON
Fékk árslaun
fyrir smáskífu
Fékk heilræði frá Simon Cowell
FÓLK 26
Semur við
Þjóðverja
Bedroom
Community gerir
dreifingarsamning
við þýskt
fyrirtæki.
FÓLK 26
TÍSKA Margir af fremstu hönnuð-
um Íslands hafa stofnað Reykja-
vik Fashion Festival ásamt ein-
staklingum sem starfa á sviði
tónlistar. Reykjavik Fashion
Festival fer fram dagana 19. til
20. mars.
Ingibjörg Finnbogadóttir,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar,
segir mikilvægt að byggja upp
ímynd íslenskrar hönnunar eftir
Iceland Fashion Week, sem mörg-
um þótti klúður. „Hópurinn hefur
verið að vinna að þessu síðan í
september og það hefur verið
mikið að gera hjá okkur síðan
þá,“ segir Ingibjörg. - sm / sjá síðu 20
Útspil íslenskra hönnuða:
Bæta ímyndina
með nýrri hátíð
SVEITASTJÓRNARMÁL Útsvarstekjur sveitarfé-
laga á Vestfjörðum hækkuðu um 15,1 prósent
á milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram
í nýjum tölum Sambands íslenskra sveitarfé-
laga. Tekjuaukning sveitarfélaga á landsvísu
var 2,6 prósent.
Brúttótekjur sveitarfélaga á Vestfjörðum
árið 2008 voru 1.954 milljarðar króna en voru
2.249 milljarðar í fyrra. Níu af tíu sveitarfé-
lögum á Vestfjörðum bættu við sig en Bæjar-
hreppur var undantekningin á tekjuaukning-
unni milli ára.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísa-
firði, segir að tekjuaukning sveitarfélaganna
skýrist að langmestu leyti með bættri afkomu
sjávarútvegsins vegna gengisþróunar krón-
unnar. Halldór segir að þegar horft er til Vest-
fjarða í samanburði við landið í heild verði
að hafa hugfast að þenslubylgja síðustu ára
fór að verulegu leyti fram hjá Vestfjörðum.
Samdrátturinn var því ekki mikill við hrunið,
þegar á allt er litið. „Við erum búin að vera í
gíslingu sterkrar krónu mjög lengi en nú hefur
þetta snúist við.“ Þessu til viðbótar koma áhrif
hækkunar á útsvarshlutfalli og skatttekjur af
útgreiðslu séreignasparnaðar úr lífeyrissjóð-
um. Halldór segir að þrátt fyrir tekjuaukn-
inguna þurfi sveitarfélögin eftir sem áður að
halda verulega aftur af útgjöldum sínum.
Mikilvægi sjávarútvegsins í þessari mynd
sést greinilega þegar afkoma sveitarfélaga
eins og Borgarbyggðar og Fljótsdalshéraðs
er skoðuð. Útsvarstekjur beggja sveitarfélag-
anna dragast saman á tímabilinu. Lifibrauð
þeirra hefur ekki síst verið umsvif verktaka-
fyrirtækja sem hafa mörg hver fengið þungan
skell.
Eins og áður sagði var tekjuaukning Bol-
ungarvíkurkaupstaðar 39 prósent. Tekjurn-
ar voru 248 milljónir króna árið 2008 en voru
345 milljónir í fyrra. Elías Jónatansson bæj-
arstjóri gerði þessa niðurstöðu að umtalsefni
í stefnuræðu sinni með fjárhagsáætlun sveit-
arfélagsins fyrir árið 2010 og segir aukning-
una skýrast af þrennu. Auknum umsvifum í
sjávarútvegi, en afli sem landað var í Bolung-
arvíkurhöfn var um fimmtán prósent meiri en
árið áður. Eins stafi aukningin af umsvifum
við jarðgöng og snjóflóðavarnir, auk þess sem
lagt var á tíu prósenta álag á útsvar í Bolung-
arvík. - shá
Útsvarstekjur á Vestfjörðum
hækkuðu við fall krónunnar
Níu af tíu sveitarfélögum á Vestfjörðum bættu verulega við sig tekjum af útsvari á síðasta ári samanborið við
árið á undan. Meginástæðan er bætt afkoma í sjávarútvegi. Hækkunin var mest í Bolungarvík eða 39 prósent.
Sveitarfélag 2008 2009
Árneshreppur 11,7 15,0
Bolungarvík 248,5 345,5
Bæjarhreppur 19,3 17,11
Ísafjarðarbær 1.098 1.216
Kaldrananeshreppur 28,1 33,4
Reykhólahreppur 58,0 65,4
Súðavíkurhreppur 51,1 54,9
Strandabyggð 117,2 132,0
Tálknafjarðarhreppur 76,6 88,6
Vesturbyggð 245 281
ÚTSVARSTEKJUR Á
VESTFJÖRÐUM 08/09
HVASST SYÐRA Í dag verða
víða austan 5-13 m/s en 13-20
suðvestanlands síðdegis. Rigning
einkum suðaustanlands en þurrt
og bjart með köflum norðan til.
Hiti 2-8 stig en vægt frost norð-
anlands.
VEÐUR 4
0
-3
3
6
4
HEIMSÓKN Í SKÓLA Íslensku forsetahjónunum var vel tekið í gær þegar þau heimsóttu börn sem njóta kennslu í skóla á hjólum
í einu fátækrahverfa Mumbai. Þar er lögð áhersla á tölvunám og samfélagsgreinar. MYND/SKRIFSTOFA FORSETA ÍSLANDS
Kveðjustund
Strákarnir okkar
spila sinn síðasta
heimaleik fyrir EM
í kvöld. Mótherj-
inn er Portúgal.
ÍÞRÓTTIR 22
FÓLK Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, hóf í gær
opinbera heimsókn á Indlandi.
Heimsóknin byrjaði í Mumbai
en forsetinn fer einnig til Nýju-
Delí og Bangalore.
Auk annarra er forsetafrúin,
Dorrit Moussaieff, í föruneyti
forsetans. Hún varð sextug í
gær. Forsetahjónin heimsóttu
meðal annars skóla á hjólum í
einu fátækrahverfa Mumbai.
Eftir málþing um verkefni á
sviði tækni, orku og viðskipta
sem íslenskir og indverskir aðil-
ar vinna nú að voru undirrit-
aðir samningar milli íslenskra
og indverskra jarðhita- og
orkufyrirtækja. Heimsótt var
endurhæfingarstöð þar sem
fyrirtækið Össur kynnti fram-
leiðsluvörur sínar. Í gærkvöld
hélt ríkisstjóri Maharastra-fylk-
is hátíðarkvöldverð til heiðurs
forseta Íslands. - gar
Forsetahjónin í Mumbai:
Dorrit sextug í
Indlandsferð
ORKUMÁL Orkustofnun hefur til
meðferðar umsókn HS Orku um
leyfi til að auka raforkufram-
leiðslu í Reykjanesvirkjun um allt
að 85 megavött til viðbótar við þau
100 megavött sem búið er að virkja
á svæðinu.
Miðað við nýjar viðnámsmælingar
Orkustofnunar er nýtanlegt afl
háhitasvæðisins á Reykjanesi 81
megavatt, miðað við fimmtíu ára
nýtingartíma.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku,
segir að þessar viðnámsmælingar
skipti ekki sköpum. Viðnámsmæl-
ingar nýtist vel til að meta afkasta-
getu svæða, þar sem engin orku-
vinnsla er hafin.
Betri upplýsingar liggi fyrir á
svæðum þar sem vinnsla er hafin.
HS Orka hyggst svara ýmsum
fyrir spurnum Orkustofnunar
vegna umsóknarinnar um mán-
aðamót. -pg / sjá síðu 6
Nýjar viðnámsmælingar Orkustofnunar á háhitasvæðinu á Reykjanesi:
Mæla afköst undir nýtingaráformum