Fréttablaðið - 13.01.2010, Qupperneq 10
13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
Gláp í bíó
fyrir Ringjara.
Við sendum
tilboð beint
í símann.
Tilboð dagsins:
Gláp
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
Gildir í dag,
miðvikudag
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
5
3
0
50%
afsláttur
í bíó hjá
Senu fyrir 1
Ringjarar fara inn á ring.is
og óska eftir að fá MMS með
tilboðum send í símann.
Ath. Gildir ekki í lúxussal, á íslenskar
myndir og myndir sýndar í digital þrívídd.
Tilboðið gildir í tilteknum bíóum Senu:
Ekkert vesen með afsláttarmiða,
þú sýnir bara GSM símann í afgreiðslunni.
Bíó á hálfvirði í dag á ring.is
Ringjar
ar geta
sent SM
S með
textanu
m
bio í 19
05
og afsl
áttarmi
ðinn
kemur
beint í
símann
Húsfélagaþjónusta
- þú sparar þér tíma
og fyrirhöfn
Nánar á arionbanki.is/husfelag
Ekkert mánaðargjald
Einföld innheimta
Öflugur netbanki
Fullkomið rekstraryfirlit
Félagatal og greiðslustaða
Þinn þjónusturáðgjafi
Komdu í viðskipti með húsfélagið þitt. Sendu fyrirspurn
á husfelag@arionbanki.is – hringdu í síma 444 7000
eða komdu við í næsta útibúi. Starfsfólk bankans tekur
vel á móti þér og veitir allar nánari upplýsingar.
VIÐSKIPTI Mælt á föstu verðlagi jókst
velta í dagvöruverslun í desember-
mánuði um 1,7 prósent miðað við
sama mánuð árið áður. Þetta kemur
fram í nýjum tölum Rannsóknaset-
urs verslunarinnar á Bifröst. Á
breytilegu verðlagi jókst veltan um
9,6 prósent. Verð dagvöru hækkaði
um 7,8 prósent á tímabilinu.
Aukin velta milli ára er sögð
athyglisverð í frétt Rannsóknaset-
ursins. „Hér er um raunaukningu
að ræða á milli ára því þegar bæði
hefur verið tekið tillit til verðlags-
breytinga á tímabilinu og leiðrétt
fyrir daga- og árstíðabundnum
þáttum nam veltuaukningin 3,1
prósenti en slík aukning á milli ára
hefur ekki orðið síðan um mitt ár
2008. Þó ber að hafa í huga í þess-
um samanburði að jólaverslun í
fyrra dróst mikið saman frá fyrri
árum.“
Þá kemur fram að áfengissala
hafi dregist saman um 2,3 prósent
milli desembermánaða 2009 og
2008, en á breytilegu verðlagi jókst
veltan um 13,8 prósent. „Leiðrétt
fyrir árstíðabundnum þáttum nam
samdráttur í veltu áfengis í desem-
ber 6,3 prósentum frá sama mánuði
í fyrra. Verð á áfengi var 16,5 pró-
sent hærra í desember síðastliðn-
um en í sama mánuði í fyrra.“
Mesta breyting desembermánað-
ar var hins vegar í sölu á raftækj-
um, en á föstu verðlagi jókst hún
um 15,3 prósent frá sama mánuði
í fyrra og um 34 prósent á breyti-
legu verðlagi. Verð raftækja hafði
á tímabilinu hækkað um 16,2 pró-
sent.
„Leita þarf aftur til mars 2008 til
að finna jafn mikla veltu að raun-
virði í raftækjaverslun,“ segir í
skýrslu Rannsóknaseturs verslun-
arinnar, en jólaverslunin er sögð
hafa verið heldur meiri en spáð
hafði verið. „Of fljótt er þó um það
að segja því mælingar Rannsókna-
setursins ná ekki til allrar versl-
unar í landinu,“ segir í skýrsl-
unni, en vísbendingar sagðar vera
um að meira jafnvægi sé að kom-
ast á einkaneyslu eftir samdrátt-
arskeið sem staðið hafi í meira en
ár. „Kaupmáttur mældist samt 7,6
prósent minni fyrstu ellefu mán-
uði síðasta árs en á sama tímabili
árið áður og raunlækkun varð á
greiðslukortanotkun innanlands
um 16 prósent.“ olikr@frettabladid.is
Sala á raftækjum
tók kipp í desember
Vísbendingar eru um að meira jafnvægi sé að komast á einkaneyslu eftir meira
en árs samdráttarskeið. Nýjar tölur Rannsóknaseturs verslunarinnar sýna að
velta dagvöru jókst milli ára í desember. Áfengissala dróst hins vegar saman.
Á ÚTSÖLU Í JANÚARBYRJUN Rannsóknasetur verslunarinnar segir greinilegt að landsmenn hafi dregið úr fatakaupum á síðustu
tveimur árum. Á föstu verðlagi hafi velta fataverslunar verið rúmum fjórðungi meiri í desember 2007 og skóverslun fimmtungi
meiri, en gerðist í desember síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VELTUBREYTINGAR FRÁ
FYRRA ÁRI Í DESEMBER
Breytilegt verð Fast verð
Dagvara 9,6% 1,7%
Áfengi 13,8% -2,3%
Föt 13,1% -4,5%
Skór 22,7% 2,0%
Húsgögn 10,7% -1,1%
Raftæki 34,0% 15,3%
Heimild: Rannsóknasetur
verslunarinnar á Bifröst.