Fréttablaðið - 13.01.2010, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 11
ÍRAN, AP Írönsk stjórnvöld segja
Ísrael og Bandaríkin hafa staðið
á bak við morð á eðlisfræðingnum
Masoud Ali Mohammadi, prófess-
or við háskólann í Teheran.
Ali Mohammadi var fimmtugur
og hafði tekið virkan þátt í mót-
mælum gegn stjórnvöldum, sem
stúdentar við háskólann hafa verið
í forystu fyrir. Hann lét lífið þegar
fjarstýrð sprengja sprakk fyrir
utan heimili hans í gærmorgun,
þegar hann var að leggja af stað
í vinnuna.
Prófessorinn var á lista yfir
240 stuðningsmenn stjórnarand-
stöðuleiðtogans Mirs Hosseins
Moussavi, sem bauð sig fram gegn
forseta Írans, Mahmoud Ahmad-
inedjad, í forsetakosningunum í
sumar.
Moussavi var úrskurðaður sig-
urvegari, en stjórnarandstæðing-
ar saka stjórnina um að hafa hag-
rætt úrslitum kosninganna. Óvenju
fjölmenn og langvarandi mótmæli
hafa síðan verið áberandi í Íran,
þar sem fáir höfðu áður þorað að
standa uppi í hárinu á stjórnvöld-
um.
Ali Mohammad var kjarneðlis-
fræðingur, en árið 2007 lét annar
íranskur kjarneðlisfræðingur lífið
af völdum gaseitrunar.
Ali Shirzadian, talsmaður kjarn-
orkustofnunar Írans, segir að Ali
Mohammed hafi engan þátt tekið í
kjarnorkuáformum landsins.
- gb
Íranskur kjarneðlisfræðingur myrtur fyrir utan heimili sitt í Teheran:
Ísrael og Bandaríkin ásökuð
MASOUD ALI MOHAMMADI Var í hópi
stjórnarandstæðinga sem mótmælt hafa
síðustu mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BORGARBYGGÐ Nýr meirihluti
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
er tekinn við í Borgarbyggð. Lýkur
þar með óvissu
í stjórn sveit-
arfélagsins, en
30. desember
sprakk meiri-
hluti allra
flokka, ekki síst
vegna deilna um
skólamál. Frá
þessu er greint í
Skessuhorni.
Flokkarn-
ir eiga saman sex fulltrúa af níu
í bæjarstjórn. Björn Bjarki Þor-
steinsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, verður forseti sveitar-
stjórnar og Sveinbjörn Eyjólfsson,
oddviti Framsóknarflokks, for-
maður byggðaráðs. Páll S. Brynj-
arsson gegnir áfram starfi sveitar-
stjóra. - kóp
Sveitarstjórn Borgarbyggðar:
Meirihluti B og
D tekinn við
PÁLL S.
BRYNJARSSON
EFNAHAGSMÁL Heildarútlán Íbúða-
lánasjóðs allt síðasta ár námu
rétt rúmum 30 milljörðum króna,
52 prósentum minna en á árinu
2008 þegar útlán námu rúmum 64
milljörðum. Þetta kemur fram í
tilkynningu sjóðsins í gær.
Heildarútlán í desember námu 2,1
milljarði króna, lækkuðu um 14
prósent frá fyrra mánuði.
Af útlánum sjóðsins í desember
voru tæpar 1.500 milljónir króna
vegna almennra útlána og rúmar
600 milljónir vegna annarra lána.
„Meðalútlán almennra lána
voru um 8,8 milljónir króna í
desember, sem er lækkun um tvö
prósent frá fyrra mánuði,“ segir í
tilkynningunni. - óká
Útlán Íbúðalánasjóðs 2009:
Helmingi minna
lánað en ári fyrr
Í BYGGINGU Árið 2009 bárust Íbúðalána-
sjóði 3.320 umsóknir vegna greiðslu-
erfiðleika, 42 prósentum fleiri en 2008,
samkvæmt mánaðarskýrslu sjóðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMGÖNGUR Tveir fjögurra bíla
árekstrar urðu nánast á sama tíma
með um hundrað metra millibili í
og við Ártúnsbrekku í Reykjavík
rétt eftir klukkan átta í gærmorg-
un. Enginn slasaðist en óhöpp-
in urðu í hægri morgunumferð.
Bílarnir voru allir á vesturleið.
Annar var í Ártúnsbrekkunni
miðri á miðjuakrein. Þar höfðu
þrír lent í aftanákeyrslu og ekið
hafði verið utan í einn bíl á vinstri
akrein.
Áreksturinn neðan við brekk-
una, um 100 metra frá hinum, varð
á hægri akrein. Ekið hafði verið
aftan á einn bíl og tveir fylgdu í
kjölfarið, hver aftan á annan. - óká
Morgunumferðin í Reykjavík:
Tveir fjögurra
bíla árekstrar
LÖGREGLUMÁL Karlmaður sem
handtekinn var á Akranesi um
helgina með skammbyssu í buxna-
streng kvaðst hafa fundið hana í
ruslagámi, stungið henni í streng-
inn og gleymt henni. Um eftir-
líkingu af skammbyssu reyndist
vera að ræða.
Aðfaranótt sunnudagsins barst
lögreglu tilkynning frá skemmti-
staðnum Breiðinni um mann
sem væri þar með skammbyssu í
buxnastrengnum. Óskað var eftir
aðstoð frá sérsveit Ríkislögreglu-
stjóra til að handtaka manninn.
Hann hafði þó áður en til aðgerða
kom afhent dyraverði byssuna og
hníf sem hann var með á sér. - jss
Handtekinn á Akranesi:
Gleymdi byssu
í buxnastreng
Nefbraut mann á Lundanum
Ráðist var á karlmann á fimmtugs-
aldri á veitingastaðnum Lundanum í
Vestmannaeyjum um síðustu helgi.
Hann nefbrotnaði. Árásarmaðurinn
var handtekinn og viðurkenndi hann
árásina.
LÖGREGLUMÁL
Rússneskum rúblum stolið
Lögreglu í Vestmannaeyjum var til-
kynnt aðfaranótt 4. janúar að ungling-
ur á aldrinum 14 til 16 ára, klæddur
í dökka hettupeysu væri að gramsa í
bíl í bænum. Stolið var rússneskum
rúblum að verðmæti fimm til tíu
þúsund krónur.