Fréttablaðið - 13.01.2010, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 13. janúar 2010 21
„Þetta verður æðislega gaman,“
segir tónlistarmaðurinn KK sem
heldur tvenna tónleika á Café Ros-
enberg dagana 28. og 29. janúar. Á
efnisskránni verða fyrstu tvær
plötur KK, Lucky One og Bein
leið, og með KK á sviðinu verða
þeir tónlistarmenn sem spiluðu
með honum á plötunum. „Það er
ofsalega gaman að geta gert þetta
með alla „orginal“ karlana með,“
segir KK.
Lögin á plötunum verða spiluð í
réttri röð. Byrjað verður á titillag-
inu Lucky One og svo heldur hver
slagarinn áfram á fætur öðrum.
Lucky One kom út árið 1991 og
Bein leið árið eftir og með þeim
stimplaði KK sig inn í íslenskt
tónlistarlíf svo um munaði. Báðar
plöturnar nutu mikilla vinsælda og
til að mynda voru þær báðar ofar-
lega í valinu á hundrað bestu plöt-
um Íslandssögunnar.
Fyrst stíga á svið með KK á tón-
leikunum þau Eyþór Gunnarsson,
Þorleifur Guðjónsson, Ellen Kristj-
ánsdóttir, Matthías Hemstock og
Stefán Magnússon, sem komu öll
við sögu á Lucky One. Næstir á
svið verða síðan Þorleifur Guð-
jónsson, Kormákur Geirharðsson
og Jakob Frímann Magnússon,
sem spiluðu undir á Beinni leið.
Jakob var þá menningarfulltrúi í
London en ferðaðist til Wales til að
aðstoða við upptökurnar.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 bæði
kvöldin og er miðasalan hafin á
síðunni Grapewire.is. - fb
KK endurvekur
gamla stemningu
KK Kristján Kristjánsson heldur tvenna tónleika á Café Rosenberg 28. og 29. janúar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hljómsveitin Leaves spilar á
sínum fyrstu tónleikum í Bret-
landi í fimm ár á fimmtudaginn í
næstu viku. Þá verður haldið nor-
rænt tónleikakvöld á staðnum The
Lexington undir yfirskriftinni Ja
Ja Ja. Þar munu einnig koma fram
Sudden Weather Change og norska
sveitin Simon Says No! Þetta verða
einnig fyrstu tónleikar Leaves
erlendis í þrjú ár, eða síðan sveit-
in spilaði í Litháen árið 2007.
Söngvarinn Arnar Guðjónsson
hlakkar mikið til að komast loks-
ins út. „Algjörlega. Sérstaklega
núna þegar það er svona rafmagn-
að andrúmsloft í Bretlandi. Þetta
gæti ekki verið betra,“ segir hann
og á þar að sjálfsögðu við Icesave-
deiluna. - fb
Fimm ára bið á enda
LEAVES Hljómsveitin Leaves heldur sína
fyrstu tónleika í Bretlandi í fimm ár í
næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ST
O
FA
5
3
Mennta- og menningarmálaráðuneytið með Vísinda- og tækniráði og Rannsóknastofu
um háskóla stendur fyrir málfundum um framtíð háskóla og rannsókna. Markmiðið
er að vinna að sameiginlegum skilningi á aðstæðum háskóla og rannsóknastofnana
í samfélagi okkar og móta sýn um uppbyggingu og samstarf menntunar og rannsókna
í landinu.
Gæði og fjármögnun rannsókna
Fundarstjóri Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs
Dagskrá:
Stefna Vísinda- og tækniráðs 2010 til 2012
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Gæðamat á vísindastarfi skóla, deilda og einstaklinga og tengsl
þess við fjárveitingar
Karl Tryggvason, yfi rmaður rannsókna við Karolinska Institutet
Gæði - eiginleiki, ferli eða afrakstur?
Allyson Macdonald, prófessor við Háskóla Íslands
Hafrannsóknir í þágu þjóðar
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Næsti málfundur: Fjármögnun háskólastofnana
verður föstudaginn 22. janúar kl. 13-16
í Norræna húsinu.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Föstudaginn 15. janúar kl. 13 - 16 í Norræna húsinu
Málfundir...
...um háskólamál og rannsóknir
„T
op
pu
r“
e
r
sk
rá
se
tt
vö
ru
m
er
ki
í
ei
gu
T
he
C
oc
a-
C
ol
a
C
om
pa
ny
. ©
2
01
0
Th
e
C
oc
a-
C
ol
a
C
om
pa
ny
.
VIÐ
GER
UM Ý
MISLEG
T TIL AÐ
LÍTA
BETUR Ú
T,
BER
UM
Á OK
KUR AL
LSKYNS KREM OG
REY
NUM
AÐ R
ÆKTA L
ÍKAMA OKKAR.
MAR
GIR G
LEYMA Þ
VÍ HINS VEGAR AÐ
FEG
URÐI
N KEMUR INNAN FRÁ
OG V
ANRÆK
JA SÍNA INNRI FEGURÐ.
ÞAR
KEMU
R TOPPUR
TIL SÖGUNNAR.
TOPPU
R SLEKKUR NEFNILEGA
EKKI
AÐEINS ÞORSTANN HELDUR
NÆRI
R HANN EINNIG ÞÍNA
INNRI FEGURÐPÆLDU Í ÞVÍ.
HVAÐA VATN ERT ÞÚ
AÐ DREKKA?