Fréttablaðið - 27.01.2010, Blaðsíða 24
27. JANÚAR 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Húsgögn Erlu Sólveigar Óskars-
dóttur iðnhönnuðar, sem Á.
Guðmundsson framleiðir, hafa
vakið mikla athygli síðan þau
komu á markað á síðasta ári.
Línurnar kallast Sproti sem
er mestmegnis hugsuð fyrir
skóla, og Spuni, sem eru borð
og stólar fyrir heimili, stofnanir
og fyrirtæki.
Erla Sólveig byrjaði að hanna hús-
gagnalínuna sem kallast Sproti og
er mest hugsuð fyrir skóla. „Í stól-
ana hannaði ég tréskel sem síðan
er pressuð í Frakklandi og hafði
ég í huga að bæði byðu stólarnir
upp á mikil þægindi og að auðvelt
væri að stafla þeim,“ segir Erla
Sólveig.
Stólarnir eru ýmist að hluta til
bólstraðir eða heilbólstraðir og við
stólana hannaði Erla Sólveig svo
önnur húsgögn í línunni, skóla-
borð og kennaraborð. „Af því að
við vorum búin að láta útbúa þetta
mót, þá þróaði ég þessa skel áfram
í Spuna-húsgögnin og er skel-
in skorin öðruvísi þannig að
eingöngu er hægt að hafa þá
bólstraða. Styrkur þessara
húsgagna er sá að þau bjóða
upp á marga möguleika á
útfærslum, í litum og áklæðum,
sem gerir þau skemmtileg þar sem
yfirbragðið, til dæmis í skólum,
verður ekki einsleitt.“
Grunnskólinn á Stokkseyri og
Eyrarbakka er fyrsti skólinn sem
tók húsgögnin úr Sprota-línunni í
notkun. Þótt húsgögnin séu fyrst
og fremst hugsuð fyrir skrifstof-
ur og stofnanir hafa einstaklingar
einnig sýnt þeim áhuga, þá einkum
úr Spuna-línunni, enda húsgögnin
afar falleg. - jma
Húsgögn sem bjóða
upp á ýmsa möguleika
● LYNG OG LJÓS Blómlegt lyng úr
Aðal dalshrauni hefur hugsanlega
orðið hönnuðinum Guðrúnu Lilju
Gunnlaugsdóttur innblástur
er hún teiknaði upp þennan
skrautlega stjaka fyrir spritt-
kerti. Hann er smíðaður úr stáli
eftir lögun bláberjalyngsins og
að sögn Sunnu Vilborgar í Pott-
um og prikum á Glerártorgi á Akureyri
þá rokselst hann. Verðið er 2.900 krónur.
Erla Sólveig Óskarsdóttir er einn
okkar fremsti húsgagnahönnuður.
„Ég hef verið að leita leiða til
að gefa verkunum mínum fram-
haldslíf og með þessu móti tel
ég mig hafa fundið góða aðferð
til þess,“ segir grafíklistakon-
an Sveinbjörg Hallgrímsdóttir,
sem hefur sett á markað filmur
eftir eigin tréristum.
Filmurnar komu fyrst fyrir
sjónir almennings árið 2007 en
eru nú komnar í neytendaum-
búðir. Upphaflega átti Svein-
björg í samstarfi við aðra um
framleiðslu á filmunum en
annast hana nú sjálf. Filmurn-
ar fást í stærðinni A4 og svo í
magnpakkningum (40 sinnum
60 sentimetrar).
Þar að auki er hægt að fá
kransa í filmum sem byggja
á sömu verkum í stærðum 38
sinnum 38 sentimetrar og 60
sentimetrar sinnum 60. Svo er
hægt að sérpanta stærri gerðir
og útfæra þá á ýmsa vegu.
Filmurnar eru meðal annars
seldar í Kraumi, Epal, Duka
og Galleríi Loka í Reykjavík
en einnig fást þær í hönnunar-
verslunum á Akureyri, Selfossi
og í Vestmannaeyjum. Þar er
einnig á boðstólum kortalína
sem Sveinbjörg hefur sent frá
sér og byggir á eigin verkum.
Nánar á nýrri heimasíðu Svein-
bjargar, www.sveinbjorg.is - rve
Öðlast annað líf
Garðveisla eftir Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur grafíklistakonu.
Þessi skemmtilegi krans er líka úr
smiðju Sveinbjargar.
Filma sem er gerð eftir verkinu.
Kennaraborð úr Sprota-lín-
unni. Margir sjá þó eflaust
borðið vel fyrir sér á heim-
ili sínu sem skrifborð.
Nemendaborð og nemendastóll úr
Sprota-línu Erlu Sólveigar.
Stólar úr Spuna sem staflast vel en
grindin er gerð úr massífum teinum.
Þessi er leðurklæddur.
Aflöng borðplata á geislaskornum
krossi. Á. Guðmundsson framleiðir
og selur öll húsgögnin í línunni.
Gullfallegur stóll úr
Spuna-línunni, bólstraður
í hressilegum grænum lit.
M
YN
D
IR
/Ú
R
EI
N
KA
SA
FN
I