Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.02.2010, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 22.02.2010, Qupperneq 4
4 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR STJÓRNMÁL Ragnheiður Hergeirs- dóttir bæjarstjóri varð í fyrsta sæti í forvali Samfylkingarinn- ar í Árborg fyrir sveitarstjórn- arkosningar í vor. Prófkjörið fór fram á laug- ardag og var kosning í fyrstu fjögur sætin bindandi. Arna Ír Gunnarsdótt- ir hlaut flest atkvæði í annað sætið. Vegna kynjakvóta færðist hún niður í þriðja sætið. Eggert Valur Guð- mundsson færðist því upp í annað sætið í stað Örnu, en fjórða sætið skipar Kjartan Ólason. Gylfi Þorkelsson bæjarfull- trúi, sem sóttist eftir fyrsta sæt- inu, hafnaði ekki í einu af fjórum efstu sætunum. - bj Ragnheiður efst í Árborg: Karl upp vegna kynjakvótans RAGNHEIÐUR HERGEIRSDÓTTIR ORKUMÁL Framleiðsla á rafmagni með jarðhita hefur aukist mikið undanfarin ár og nú er svo komið að fræðilega væri hægt að anna allri almennri orkuþörf landsins með rafmagni þannig framleiddu. Þetta kom fram í erindi Sigurð- ar Inga Friðleifssonar, fram- kvæmdastjóra Orkuseturs, á aðal- fundi Samorku á föstudag. Alls eru framleiddar um 17 þúsund gígavattsstundir af orku hér á landi. Af þeim eru 4 þúsund framleiddar með jarðhita sem annar allri almennri orkunotkun á landinu. Sigurður Ingi sagði að ef kynda þyrfti hús hér á landi með olíu, líkt og víða tíðkast, þyrfti að flytja inn 800 þúsund tonn árlega, með um 50 milljarða kostnaði. Þá sparast um 2,5 milljónir tonna af útblæstri gróðurhúsaloftteg- unda,við að hita húsin líkt og gert er hér. Til samanburðar má nefna að losun frá öllum vegasamgöng- um er um 900 þúsund tonn. Ísland stendur öðrum löndum framar í þessum efnum. Sigurð- ur Ingi tók sem dæmi að í Hol- landi eru aðeins framleidd tæp- lega 9 þúsund gígavattsstundir af grænni orku. Til þessarar sér- stöðu landsins gleymist oft að líta þegar kemur að viðræðum við Evrópusambandið. Því sé mikill akkur og tölfræðilegur fengur að fá land sem framleiðir jafn mikið af grænni orku. „Eini mælikvarðinn á stöðu þjóða í raforkuframleiðslu er græn orka,“ sagði Sigurður Ingi. Engin þjóð muni komast undan því að skipta á endanum yfir í græna orku. Það þýði mikil fjárútlát hjá öðrum þjóð - um vegna óhjá- kvæmilegra orkuskipta, fjárútlát sem Íslendingar losni við. Sigurður Ingi benti þó á að enn væri úrbóta þörf á ýmsum svið- um. Þannig kæmi enn um 20 pró- sent af orku hérlendis frá óend- urnýjanlegum orkugjöfum. Á því þyrfti að taka. Þá hefur notk- un heimila á gasi aukist undan- farin ár, úr tæpum 600 tonnum árið 1996 í rúmlega 1.000 tonn árið 2007. Það skýrist af útihit- urum og gaseldavélum. „Það er eins og annar hver maður sé orð- inn stjörnukokkur sem þurfi gas- eldavél.“ Sigurður Ingi segir mikla mögu- leika í orkutengdri ferðaþjónustu. Hægt væri að búa til útsýnisferð- ir um virkjanir og ýmis fyrirtæki þeim tengdum. Sérstaða Íslands vekti eftirtekt í útlöndum og út á hana ætti að gera. kolbeinn@frettabladid.is Jarðhiti annar allri orkuþörf landsins Íslendingar framleiða tvöfalt meira af grænni orku en Holland. Væri notast við olíukyndingu þyrfti að flytja inn olíu fyrir 50 milljarða á ári. Alls eru framleidd- ar 17.000 gígavattsstundir af orku og eru 4.000 þeirra framleidd með jarðhita. SIGURÐUR INGI FRIÐLEIFSSON NESJAVELLIR Sigurður Ingi telur mikla möguleika liggja í ferðaþjónustu tengdri orku- framleiðslu. Sérstaða þjóðarinnar í orkumálum veki víða athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FILIPPSEYJAR Framámaður í hópi íslamskra harðlínumanna féll ásamt fimm öðrum í árás filipp- eyska hersins á búðir uppreisnar- manna á eyjunni Jolo á Filippseyj- um. Breska ríkisútvarpið BBC greindi frá þessu. Albader Parad, leiðtogi upp- reisnarsamtakanna Abu Sayyaf, var eftirlýstur fyrir að hafa rænt þremur starfsmönnum Rauða krossins á eyjunni í fyrra. Tals- maður hersins segir fall hans reið- arslag fyrir uppreisnarhópinn. Abu Sayyaf-samtökin eru minnstu og róttækustu aðskiln- aðarsamtökin á suðurhluta Fil- ippseyja. Þau eru talin standa á bakvið nokkrar sprengjuárásir, mannrán og morð. Róstur á Fillipseyjum: Uppreisnarleið- togi veginn BJÖRGUNARSTARF Landhelgisgæsl- an kallaði út tvö björgunarskip fyrir hádegi í gær, eftir að útkall barst frá vélarvana fiskibát norð- vestan af Viðey. Tveir menn voru um borð í bátnum og var óttast að hann myndi reka að eynni. Björgunarskip Landsbjarg- ar, Ásgrímur S. Björnsson frá Reykjavík, og Gróa Pétursdótt- ur frá Seltjarnarnesi, voru send á vettvang. Rúmum 40 mínútum eftir útkall var Ásgrímur kominn með bátinn í tog og dró hann bát- inn til hafnar í Reykjavík. - bs Tvö björgunarskip kölluð út: Bátur varð vélar- vana við Viðey VIÐSKIPTI Þrotabú Baugs íhugar að krefja fyrrverandi stjórnendur Baugs um allt að 15 milljarða króna í skaðabætur vegna vanrækslu. Stöð 2 greindi frá þessu í gær. Stjórnin keypti hlutabréf fyrir þessa upphæð af þremur stærstu hluthöfum Baugs þegar markaður- inn fyrir bréfin var lítill sem eng- inn. Þegar Hagar voru seldir úr Baugi til eignarhaldsfélagsins 1998 ehf. sumarið 2008 fóru 15 milljarð- ar króna af söluandvirðinu í hluta- bréfakaup Baugs í Baugi. Bréfin voru keypt af félögum í eigu þriggja stærstu hluthafanna; Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Ingibjörgu Pálma- dóttur og Hreini Loftssyni. Öll sátu þau í stjórn Baugs á þessum tíma, auk Jóhannesar Jónssonar, Kristín- ar Jóhannesdóttur, Guðrúnar Syl- víu Pétursdóttur og Hans Kristian Hustad. Öll tengdust þau félögunum þremur nema Hans Kristian. Þrotabúið skoðar nú hvort stjórnin hafi ákveðið að kaupa nánast verð- laus hlutabréf af stærstu eigendum þess á yfirverði. Skaðabótakrafan getur numið allt að fimmtán millj- örðum króna, ef bréfin verða metin verðlaus þegar kaupin áttu sér stað. - ghh Þrotabú Baugs íhugar að krefja fyrrverandi stjórnendur Baugs um skaðabætur: Krafa upp á allt að 15 milljarða STRANDABYGGÐ Gert er ráð fyrir hagnaði á árinu 2010 í fjárhags- áætlun sveitarfélagsins Stranda- byggðar, en hún var samþykkt fyrir skemmstu. Frá þessu er greint á fréttavefnum Strandir.is. Þegar aðalsjóður og B-hluta sjóðir eru teknir saman er gert ráð fyrir tveggja milljóna króna hagnaði. Gert er ráð fyrir hækkuðum fasteignagjöldum en útsvars- og fasteignaprósentur verða óbreytt- ar. Önnur þjónustugjöld hækka að meðaltali um 7 prósent. Tekj- ur sveitarfélagsins eru áætlaðar tæpar 345 milljónir króna. Þá var samþykkt að styrkja hjálparstarf á Haítí um 100 krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins. - kóp Fjárhagsáætlun 2010: Hagnaður hjá Strandabyggð HÓLMAVÍK Rekstur Strandabyggðar gengur vel og gert er ráð fyrir hagnaði á árinu. MYND/JÓN JÓNSSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 4° 2° 1° 8° 5° 9° 0° 0° 22° 6° 14° 6° 25° -14° 11° 15° -6° Á MORGUN Vaxandi vindur norðan- lands . MIÐVIKUDAGUR Víða strekkingur eða allhvasst. -8 -3 -3 -4 -4 -3 -3-3 -3 -3 -3 -4 -4 -6 -4 -2 -4 -2 -3 -3 -11 5 6 4 6 6 6 7 7 15 15 12 6 FROST Fram und- an eru frostkaldir dagar enda norð- anátt ríkjandi á landinu. Norðan- og austanlands verður éljagangur en bjart sunnan heiða. Þegar líður á morgundaginn bætir í vind um landið norðanvert og á miðvikudag- inn verður víða strekkingur. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON Þrotabú Baugs kannar hvort fyrrverandi stjórn hafi keypt verðlítil hlutabréf á yfirverði. ÁLFTANES Fjöldi Álftnesinga ætlar að flytja lögheimili sitt yfir í annað sveitarfélag til að koma sér undan hærri álögum vegna fjárhagsvand- ræða Álftaness. RÚV greindi frá því í gær. Í samtali við Vísi sagði Pálmi Másson bæjarstjóri að bæj- aryfirvöld hafi verið meðvituð um að hærri álögur gætu haft þetta í för með sér. Hann gerir þó ráð fyrir að þeir sem færi lögheimili sín séu almennt að flytja en reynt verði að fylgjast með. - jhh Álftnesingar flytja lögheimili: Flýja álögurnar AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 19.02.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 230,1527 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,87 129,49 198,2 199,16 173,88 174,86 23,36 23,496 21,469 21,595 17,643 17,747 1,4027 1,4109 196,37 197,55 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.