Fréttablaðið - 22.02.2010, Síða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
BAÐKAR í líki háhælaðs skós er ekki hefðbundin
sjón en slíkt var meðal annars að finna á alþjóðlegri
húsgagnasýningu í Köln sem haldin var í janúar.
Sólveig Einarsdóttir kennari ólst
upp með níu systkinum í stóru húsi
í Reykjavík. Börnin voru öll fædd
á sextán ára tímabili og því oft
líf og fjör á heimilinu, ekki síst á
matmálstímum. Það er því ekki að
furða að móðir Sólveigar, sem var
heimavinnandi með allan krakka-
skarann, þyrfti að leggja sig eftir
hádegismatinn.
Á barnmörgu heimili verður
óhjákvæmilega ráp inn og út og
dyrabjallan því síhringjandi. Móðir
Sólveigar brá því á það ráð að láta
hengja úr dyrasímanum snúru
með rofa þannig að hægt væri að
slökkva á dyrabjöllunni svo hún
fengi frið meðan hún lagði sig.
„Þegar ég stofnaði eigið heim-
ili og eignaðist mín fjögur börn
fann ég stundum fyrir þeirri þörf
að vera í friði í dálitla stund til að
leggja mig,“ segir Sólveig sem brá
þá á sama ráð og móðir hennar og
lét setja upp dyrabjöllurofa til að
minnka líkurnar á því að bjallan
truflaði blundinn.
„Þetta er kannski ekki hluturinn
á heimilinu sem mér þykir vænst
um en hann hefur hins vegar teng-
ingu við mína barnæsku og gefur
mér einnig góðar stundir í friði
og ró,“ segir hún en viðurkennir
kímin að stundum gleymi hún að
kveikja aftur á bjöllunni, gestum
til nokkurs ama.
Sólveig er íslenskukennari við
Kvennaskólann og gaf nýverið út
ásamt Ásdísi Arnalds tvær bækur
í bókaflokknum Tungutak. „Önnur
bókin er eins og konfekt og rjómi,“
segir hún glettin. Þar er fjallað
um félagsleg málvísindi, til dæmis
máltöku barna, kynjamál, stétta-
mál, táknmál og ýmislegt fleira.
Hin bókin er sérhæfðari og fjall-
ar um hljóðfræði,“ upplýsir hún
en dyrabjöllurofinn hefur líklega
komið sér vel þegar Sólveig ein-
beitti sér að skrifum bókarinnar.
solveig@frettabladid.is
Takkinn veitir góða hvíld
Þótt hluturinn sem Sólveig Einarsdóttir kennari ákvað að sýna lesendum Fréttablaðsins sé ekki sá sem
er í mestu uppáhaldi á heimilinu, veitir hann henni ómælda ánægju í formi góðrar hvíldar.
Takkinn góði sem Sólveig lét setja upp til að geta slökkt á dyrabjöllunni þegar hún vill fá frið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Matarhorn sælkerans:
Spennandi olíur og edik
Fyrsta flokks vara
Sett í flöskur á staðnum
Skrifum kveðjur á flöskurnar
Óvenjulegar og skemmtilegar gjafir
www.svefn.is
FRAMTÍÐIN Í FJÖLSTILLANLEGUM RÚMUM
TM
- Hægt að stilla við
iPhone® og iPod
touch®
- Hrotu stjórnun
- Wi-Fi fjarstýring
- Fimm stilliminni
- Vekjaraklukka með léttu
nuddi og hljóði
- „Finna fjarstýringu“ stilling
- Stærsti framleiðandi í heimi á
stillanlegum rúmum
- Fæst bæði með dökkum og
ljósum lit
" IQ-CARE heilsudýnurnar hafa svo sannarlega
slegið í gegn hér á landi. Þær eru einstakur
valkostur og hafa reynst frábærlega vel.
Viðskiptavinir okkar velja þær
yfirleitt í stillanleg rúm
sín enda eru dýnurnar
sérstaklega hannaðar
til að þola allar
hreyfingar sem
stillanleg rúm gera kröfu
til. Með komu IQ-CARE
heilsudýnanna höfum við enn
betur náð að koma til móts við
sértækustu þarfir viðskiptavina okkar
og finna þá lausn í dýnu sem best hentar
hverjum og einum "
Sigurður Matthíasson , forstjóri
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 - Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447