Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.02.2010, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 22.02.2010, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 „Þetta er mjög flottur staður, nafn- togaður fyrir glæsilegar sýning- ar og því mikil viðurkenning fyrir íslenska hönnuði og arkitekta að vera boðið að sýna þarna,“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmda- stjóri Hönnunarmiðstöðvar Ís- lands, um fyrirhugaða sýningu á íslenskri samtímahönnun í hinni virtu hönnunarmiðstöð Danmarks Design Center í Kaupmannahöfn, sem verður opnuð föstudaginn 26. febrúar næstkomandi. Húsgögn, vöruhönnun og arki- tektúr af farandssýningunni Ís- lensk samtímahönnun sem sett var upp á Listahátíð í Reykjavík í Listasafni Reykjavíkur á Kjar- valsstöðum á síðasta ári verða í sviðljósinu í hönnunarmiðstöð- inni næstu tvo mánuði. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk hönn- unarsýning er sett upp í miðstöð- inni og segir Halla þetta einstakt tækifæri fyrir íslenska hönnuði og arkitekta að mynda samstarfsvett- vang við norræna kollega sína. „Skandinavísk hönnun nýtur mikillar virðingar um allan heim. Okkar markmið er að tengja þá íslensku betur við hana og koma á betra samstarfi við skandin- avíska hönnunariðnaðinn, til að auka möguleika íslenskrar hönn- unar sem útflutningsvöru. Við höfum fengið góða aðila til liðs við okkur, eins og utanríkisráðuneyt- ið og íslenska sendiráðið í Kaup- mannahöfn, en svo virðist sem að í kreppunni hafi menn loksins komið auga á þau dýrmætu verð- mæti sem eru fólgin í íslenskri hönnun, arkitektúr og listum al- mennt.“ Þess má geta að nafn Íslands og íslensk hönnun munu blasa við vegfarendum sem leggja leið sína um Ráðhústorgið í Kaupmanna- höfn næstu tvo mánuði þar sem ákveðið hefur verið að setja fjór- tán metra háan borða utan á húsa- kynni Danmarks Design Center, sem stendur rétt við torgið. roald@frettabladid.is Íslendingar leggja undir sig hönnunarmiðstöð Dana HALLA Hönnum góða útflutningsvöru. ÁBERANDI Íslensk hönnun mun blasa við þeim sem leggja leið sína um torgið. F A G H Ó P U R Í F R A M L E I Ð S L U K V I K M Y N D A - O G S J Ó N V A R P S E F N I S 2 0 1 0 Kosning til Edduverðlaunanna hefst í dag þegar tæplega þúsund meðlimir Akademíunnar fá senda kjörseðla í tölvupósti. Fólk er hvatt til að greiða atkvæði sem fyrst en kjörseðilinn verður að nota fyrir kl 17 á föstudag. KOSNINGIN HEFST Í DAG Miðasala á Edduna hefst í dag á midi.is. Miðinn kostar 1000 krónur og gildir á afhendingu Edduverðlaunanna og samkvæmi sem fram fer á eftir. Verðlaunin verða afhent í Háskólabíói á laugardagskvöldið og sýnd í opinni dagskrá á Stöð 2 Stjórnarkjör Skv 34. grein félagsins skal tveim mánuðum fyrir aðal- fund ár hvert auglýsa frest til framboðs í trúnaðarstöður samkvæmt 23. og 24. gr. Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varafor- maður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnendi, auk þess fjórir menn til vara. Einnig skal kjósa þrjá menn í trúnaðarráð og þrjá til vara, tvo endurskoðendur og einn til vara og tvo menn í kjörstjórn Til að bera fram lista eða tillögu til stjórnarkjörs, trúnaðar- ráðs eða annarra trúnaðarstarfa, þarf skriflega staðfest- ingu þeirra sem á listanum eru. Komi aðeins fram einn listi eða tillaga um menn í trúnaðarstöður, þarf kosning ekki að fara fram. Umsóknarfrestur er til 12.mars 2010 Umsóknum skal skila til skrifstofu félagsins Stórhöfða 31 merkt: Stjórnarkjör FÍS Stjórn Félags íslenskra Símamanna FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V A LL I

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.