Fréttablaðið - 22.02.2010, Síða 41
MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 21
NÝTT! MARGFALDUR ÁVINNINGUR FYRIR KYLFINGA
KORTHAFAR PREMIUM ICELANDAIR AMERICAN
EXPRESS GREIÐA EKKERT ÁRGJALD Í ICELANDAIR
GOLFERS
ICELANDAIR GOLFERS
Félagar í klúbbnum njóta ýmissa hlunninda og fríðinda:
• Ekkert gjald er tekið fyrir golfsett í áætlunarflugi Icelandair
• 2.500 Vildarpunktar
• 2.000 króna gjafabréf í Saga Shop
• 100 æfingaboltar í Básum
PREMIUM ICELANDAIR AMERICAN EXPRESS
Greiðslukort sem veitir margföld hlunnindi á við venjuleg
greiðslukort og margborgar sig að nota bæði hér heima
og í golfferðum erlendis.
Meðal fríðinda Premiumkortsins má nefna:
• Ókeypis aðild að Icelandair Golfers
• 15 Vildarpunktar af hverjum 1.000 kr. af öllum færslum
kortsins heima og erlendis
• 20 Vildarpunktar af hverjum 1.000 kr. af öllum keyptum
miðum og um borð hjá Icelandair
• Frítt bílastæði við Leifsstöð þegar flogið er með Icelandair
• Aðgangur að flýtiinnritun í Leifsstöð
• Viðbótarfarangursheimild
• Aðgangur að betri stofu Icelandair í Leifsstöð
• 10.000 Vildarpunktar við fyrstu notkun kortsins
SLÁÐU HOLU Í HÖGGI OG FÁÐU ÞÉR PREMIUM
Þú getur sótt um Premium Icelandair American
Express á Icelandairgolfers.is
KÖRFUBOLTI „Ég er ólýsanlega
montinn að hafa náð þessum titli
loksins. Þetta er geðveikur titill,“
sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálf-
ari Snæfells, eftir 92-81 sigur á
Grindavík í úrslitaleik Subway-
bikars karla í Höllinni á Laugar-
daginn.
Ingi Þór var búinn að fara með
liði sínu þrisvar í Höllina, sem
aðalþjálfari 2000 og 2002 og sem
aðstoðarþjálfari í fyrra, en farið
heim með silfur í öll skiptin.
„Sean Burton leiddi liðið í þess-
um leik og steig stórt skref fram
þegar okkur vantaði. Það var frá-
bær karakter hjá honum. Hann
sagði mér að hann hafi bara þurft
að taka af skarið,“ sagði Ingi og
það er hægt að taka undir það.
Sean Burton skoraði alls 36 stig í
leiknum og gerði Grindvíkingum
lífið leitt allan leikinn.
Grindvíkingar byrjuðu leikinn
ágætlega og Brenton Birmingham
var mjög ákveðinn í upphafi og
skoraði meðal annars 9 stig í fyrsta
leikhlutanum. Grindavík var 20-18
yfir eftir fyrsta leikhluta og náði
mest átta stiga forskoti í upphafi
annars leikhluta.
Snæfellingar þurftu hins vegar
ekki langan tíma til að snúa leikn-
um þegar liðið breytti stöðunni úr
23-30 fyrir Grindavík í 36-30 fyrir
Snæfell með því að skora þrettán
stig í röð á rúmum tveggja mín-
útna kafla. Eftir það var Snæfells-
liðið með frumkvæðið og varðist
vel endurkomum Grindvíkinga.
Grindvíkingurinn Guðlaugur
Eyjólfsson virtist þó vera búinn
að kveikja í Grindavíkurliðinu
er hann kom Grindavík yfir í 57-
56 í þriðja leikhluta eftir að hann
skoraði tvær þriggja stiga körfur
í röð en Sean Burton var fljótur
að svara og koma sínum mönnum
aftur af stað.
„Við náðum þessum stóru leika-
triðum á undan þeim. Þegar þeir
komu með stóru leikatriðin sín þá
náðum við að svara þeim. Eins
og þeger Gulli kom þeim yfir þá
kom bara Burton og svaraði strax
með þristi og meðbyrinn var aftur
kominn yfir til okkar. Við náðum
að hafa „mómentin“ okkar megin.
Við fengum kraft úr þessum stóru
skotum og höfðum þar af leiðandi
meiri kraft í lokin. Það skipti sköp-
um,“ sagði Ingi Þór eftir leikinn.
„Við hleyptum þeim í alltof
mörg opin þriggja stiga skot og
þetta er mjög gott þriggja stiga
skotlið. Þeir hittu mjög vel og það
verður bara að segja alveg eins
og er að þeir bara sökktu okkur í
þriggja stiga skotum. Þeir spiluðu
bara betur en við og þetta er bara
sanngjarnt,“ sagði Friðrik Ragn-
arsson, þjálfari Grindavíkur, eftir
leikinn.
Grindvíkingar voru með full-
skipað lið í fyrsta sinn í langan
tíma en þjálfarinn kenndi ekki
lélegri leikæfingu um það hvern-
ig fór.
„Við getum endalaust verið að
afsaka okkur en við töpuðum bara
af því að við vorum lélegri og það
var bara svoleiðis. Það þýðir ekk-
ert að vera að afsaka sig því þá
vinnum við ekkert alvöru titil. Við
horfum bara fram á við og förum
að einbeita okkur að því að vinna
stóra titilinn,“ segir Friðrik.
Grindvíkingar höfðu unnið alla
fjóra bikarúrslitaleiki sína fyrir
leikinn á laugardaginn en að þessu
sinni vantaði liðið tilfinnanlega
meira frá lykilmönnum eins og
Páli Axel Vilbergssyni sem náði
aðeins fimm skotum á körfuna og
skoraði aðeins 4 stig í leiknum.
Þegar á reyndi undir lokin voru
Snæfellingar líka grimmari í
baráttunni, tóku flest ef ekki öll
mikilvægustu fráköstin og settu
síðan niður dýrmæt skot í kjölfar-
ið á sóknarfráköstum á lokakafla
leiksins. Það vó þungt en mestu
máli skipti þó að þeir voru með
Sean Burton í sínu liði.
ooj@frettabladid.is
Sean Burton í miklu stuði í Höllinni
Snæfellingar urðu bikarmeistarar í annað skiptið á þremur árum eftir sigur á Grindvíkingum. Þjálfarinn
Ingi Þór Steinþórsson varð bikarmeistari í fyrsta sinn og Grindavík tapaði fyrsta bikarúrslitaleiknum.
ANNAÐ SKIPTIÐ Á ÞREMUR ÁRUM Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells, lyfti bikarn-
um alveg eins og fyrir tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LOKSINS GULL Inga Þór Steinþórssyni, þjálfara Snæfells, var fagnað með hefðbundnum hætti eftir að bikarmeistaratitillinn var í
höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI „Þetta var frábær
sigur. Við náðum að loka betur á
þá í seinni hálfleik og Sean setti
niður stór skot. Þar var leikurinn
fannst mér,“ sagði Snæfelling-
urinn Sigurður Þorvaldsson sem
varð bikarmeistari í þriðja sinn í
þremur heimsóknum í Höllina.
„Við vorum búnir að undirbúa
okkur vel eins og kannski tveir
síðustu leikir í deildinni sýndu,”
sagði Sigurður.
„Mér fannst við ná að loka
mjög vel á Pál Axel. Það var eng-
inn einn sem gerði það því við
vorum allir að spila góða vörn.
Kannski Þorleifur og hinir að
keyra eitthvað meira upp að
körfunni en við urðum að gefa
eitthvað. Við urðum að velja eitr-
ið,“ sagði Sigurður að lokum. - óój
Sigurður Þorvaldsson:
Sean setti niður
stór skot
Í STRANGRI GÆSLU Sigurður Þorvalds-
son dekkaði Pál Axel Vilbergsson í
leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Brenton Birming-
ham náði ekki að vinna bikarinn
í fimmta sinn á ferlinum þegar
hann spilaði sinn sjötta bikarúr-
slitaleik með Grindavík um helg-
ina.
„Þetta var erfitt og það sem
gerði okkur enn erfiðara fyrir
var að við fylgdum ekki því sem
við höfðum lagt upp með varnar-
lega fyrir leikinn. Þeir jörðuðu
okkur með öllum þessum þrist-
um,“ sagði Brenton eftir leikinn.
„Ég vil ekki afsaka mig og
þetta er leikur sem við áttum
að vinna og gátum unnið,“ sagði
Brenton sem var stigahæstur í
liði Grindavíkur með 17 stig. - óój
Brenton Birmingham:
Jörðuðu okkur
með þristunum