Fréttablaðið - 22.02.2010, Qupperneq 42
22 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin:
ASTON VILLA-BURNLEY 5-2
0-1 Steven Fletcher (10.), 1-1 Ashley Young (32.),
2-1 Stewart Downing (56.), 3-1 Downing (58.),
4-1 Emile Heskey (61.), 5-1 Gabriel Agbonlahor
(68.), 5-2 Martin Paterson (90.+2)
BLACKBURN-BOLTON 3-0
1-0 Nikola Kalinic (41.), 2-0 Jason Roberts (71.),
3-0 Gaël Givet (84.)
FULHAM-BIRMINGHAM 2-1
0-1 Sjálfsmark (3.), 1-1 Damien Duff (59.), 2-1
Bobby Zamora (90.).
MANCHESTER CITY-LIVERPOOL 0-0
WIGAN-TOTTENHAM 0-3
0-1 Jermain Defoe (27.), 0-2 Roman Pavlyu
chenko (84.), 0-3 Pavlyuchenko (90.+2).
ARSENAL-SUNDERLAND 2-0
1-0 Nicklas Bendtner (27.), 2-0 Francesc Fabre
gas, víti (90.+3).
EVERTON-MANCHESTER UNITED 3-1
0-1 Dimitar Berbatov (16.), 1-1 Diniyar Bilya
letdinov (19.), 2-1 Dan Gosling (76.), 3-1 Jack
Rodwell (90.).
PORTSMOUTH-STOKE 1-2
1-0 Frédéric Piquionne (35.), 1-1 Robert Huth
(50.), 2-1 Salif Diao (90.+1).
WEST HAM-HULL 3-0
1-0 Valon Behrami (3.), 2-0 Carlton Cole (59.),
3-0 Julien Faubert (90.+3).
WOLVES-CHELSEA 0-2
0-1 Didier Drogba (40.), 0-2 Drogba (67.).
STAÐAN Í DEILDINNI:
Chelsea 27 19 4 4 63-22 61
Man. United 27 18 3 6 63-24 57
Arsenal 27 17 4 6 63-30 55
Tottenham 27 13 7 7 48-26 46
Man. City 26 12 10 4 48-33 46
Liverpool 27 13 6 8 43-27 45
Aston Villa 26 12 9 5 37-21 45
Everton 26 10 8 8 38-37 38
Fulham 27 10 7 10 32-29 37
Birmingham 26 10 7 9 25-28 37
Stoke City 26 8 10 8 26-29 34
Blackburn 27 9 7 11 29-43 34
West Ham 26 6 9 11 35-40 27
Sunderland 26 6 8 12 32-44 26
Wigan 26 6 7 13 26-52 25
Wolves 26 6 6 14 21-44 24
Hull City 27 5 9 13 25-54 24
Bolton 26 5 8 13 29-49 23
Burnley 26 6 5 15 27-55 23
Portsmouth 26 4 4 18 21-44 16
MARKAHÆSTIR:
Wayne Rooney, Manchester United 21
Didier Drogba, Chelsea 19
Jermain Defoe, Tottenham 16
Darren Bent, Sunderland 15
Louis Saha, Everton 13
Carlos Tévez, Manchester City 13
Fernando Torres, Liverpool 12
Francesc Fabregas, Arsenal 12
Enska b-deildin
Blackpool-Reading 2-0
Brynjar Björn Gunnarsson var eini Íslendingurinn
í byrjunarliðinu en Gylfi Þór Siguðsson kom
inn fyrir hann á 32. mínútu og Gunnar Heiðar
Þorvaldsson kom inn á 54. mínútu.
Cardiff-Barnsley 0-2
Emill Hallfreðsson var ekki í leikmannahópnum.
Crystal Palace-Coventry 0-1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn.
Plymouth-Leicester 1-1
Kári Árnason lék allan leikinn og varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark.
Scunthorpe-Watford 2-2
Heiðar Helguson spilaði fyrstu 83 mínúturnar.
ENSKI BOLTINN
FÓTBOLTI Chelsea náði fjögurra
stiga forystu í ensku úrvalsdeild-
inni á laugardag þegar liðið lagði
Úlfana örugglega að velli, 2-0.
Didier Drogba heldur áfram að
vera þyngdar sinnar virði í gulli en
hann skoraði bæði mörk leiksins.
Fyrr um daginn tapaði Manchest-
er United fyrir Everton.
Útlitið var gott fyrir United
snemma leiks á Goodison Park
þegar búlgarski sóknarmaðurinn
Dimitar Berbatov þrumaði knett-
inum í slá og inn. Það tók Evert-
on hins vegar aðeins þrjár mínút-
ur að jafna metin. Í seinni hálfleik
þurfti Berbatov að yfirgefa völlinn
vegna meiðsla og við það sundrað-
ist spilamennska Englandsmeist-
aranna.
Sir Alex Ferguson breytti um
leikkerfi og ekki stóð steinn yfir
steini hjá United. Varamennirnir
Dan Gosling og Jack Rodwell skor-
uðu fyrir þá bláklæddu sem fögn-
uðu innilega í leikslok enda hafa
þeir nú borið sigurorð af tveim-
ur efstu liðum deildarinnar með
skömmu millibili.
Rodwell fékk síðan kampavíns-
flösku fyrir nafnbótina maður
leiksins. „Mér líður eiginlega bara
kjánalega,“ sagði hinn 18 ára Rod-
well. „Ég spilaði í fimm mínútur
og fæ flöskuna. Réttast væri að
verðlauna liðið í heild. Við lékum
virkilega vel. Það segir sig sjálft
að ef lið nær að vinna Manchester
United þá hefur það spilað vel.“
Sir Alex Ferguson, stjóri Unit-
ed, sagði eftir leik að úrslitin hefðu
verið sanngjörn. „Við byrjuðum
leikinn vel en það er mjög slæmt
að fá á sig mark í andlitið svona
fljótt eftir að komast yfir. Við
vorum bara næst bestir í seinni
hálfleiknum,“ sagði Ferguson.
„Þetta eru mikil vonbrigði
og leikmenn eru miður
sín. Þeir eru manneskjur,
spila fyrir Manchester
United og vilja ekki tapa
leikjum. Það gerðist
samt í dag. Þetta eru
slæm úrslit og það á
tímapunkti sem við
höfum ekki efni á
svona úrslitum.“
Sigrar hjá Lund-
únaliðunum
Lundúnaliðin Ars-
enal og Chelsea
nýttu sér svo mistök
Rauðu djöflanna og unnu
sína leiki síðar um dag-
inn. Fílabeinsstrending-
urinn Didier Drogba sá
um markaskorun Chel-
sea eins og svo oft áður.
Petr Cech, maðurinn
með hjálminn í marki
Chelsea, átti einnig
fínan leik.
„Drogba er magn-
aður sóknarmaður og
hefur gert frábæra
hluti fyrir Chelsea í
mörg ár. Hann er einn
besti sóknarmaður í heimi og það
eru forréttindi að fá að æfa og
spila með svona leikmanni,“ sagði
Cech eftir leik.
„Vissulega erum við í góðri
stöðu en þetta er fljótt að breyt-
ast og við verðum að halda okkur
á tánum. Við lékum ekkert sérlega
vel í þessum leik en stigin þrjú eru
það sem máli skiptir.“
Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, segir að menn
megi ekki afskrifa titil-
möguleika sinna manna
eftir 2-0 sigur á Sunder-
land. „Það getur ýmislegt
gerst og margt á eftir að
gerast. Toppliðin munu
tapa stigum, þau eiga eftir
að mætast innbyrðis svo
það er ekki annað hægt,“
sagði Wenger.
„Það er nóg af liðum
í deildinni sem geta vel
tekið stig af efstu liðum.
Við verðum bara að nýta
okkur þau tækifæri sem
gefast.“
Á hinum enda töflunn-
ar heldur áfram að ganga
bölvanlega hjá Hermanni
Hreiðarssyni og félögum
í Portsmouth. Liðið tap-
aði fyrir Stoke um helg-
ina þar sem sigurmark-
ið kom í blálokin. Liðið
er nú átta stigum frá
öruggu sæti í deildinni og
útlitið vægast sagt slæmt,
innan vallar og einnig
utan hans.
elvargeir@frettabladid.is
Slæmt tap á slæmum tíma
Manchester United tapaði óvænt fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni á laugar-
dag. Arsenal og Chelsea héldu upp á það með því að vinna sína leiki.
GAMAN AÐ SKORA Hinn tvítugi Dan Gosling fagnaði innilega eftir að hafa komið Everton yfir gegn Englandsmeisturunum. Gosl-
ing hafði komið inn á sem varamaður í leiknum. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Leikur Manchester City
og Liverpool var bragðdaufur og
endaði með markalausu jafntefli.
Tottenham greip tækifærið og
komst upp í fjórða sæti deildar-
innar með því að leggja Wigan að
velli, 3-0. Eiður Smári Guðjohn-
sen fékk að kynnast varamanna-
bekknum á DW-vellinum vel og
sat á honum allan leikinn.
„Ég er verulega sáttur við
okkar frammistöðu, sérstaklega
þegar mið er tekið af vallarað-
stæðum sem voru mjög erfiðar,“
sagði Harry Redknapp, knatt-
spyrnustjóri Tottenham.
Jermain Defoe kom Tottenham
yfir í fyrri hálfleik en mark hans
átti reyndar aldrei að standa þar
sem hann var rangstæður. Vara-
maðurinn Roman Pavluychenko
skoraði síðan tvívegis í seinni
hálfleik.
„Mér er alveg sama þó að
Defoe hafi átt að vera dæmdur
rangstæður. Ég fagna því að Pav
hafi náð að skora þessi tvö mörk.
Þegar hann hugsar um að spila
fótbolta og leggur sig allan fram
þá er hann í hæsta klassa,“ sagði
Redknapp.
Knattspyrnustjóri Manchest-
er City, Roberto Mancini, segir
að jafnteflið við Liverpool í gær
hafi verið sanngjörn úrslit. „Við
gáfum þeim engin færi og þeir
gáfu okkur engin færi. Þetta eru
því sanngjörn úrslit,“ sagði Manc-
ini sem var án Carlosar Tevez í
gær.
„Ég veit ekkert hvar hann er.
Ég held að hann sé í Argentínu.
Ég býst við honum aftur eftir
tvo daga, ég þarf á honum að
halda. Þegar ég heyrði í honum
fyrir þremur dögum sagði hann
að það væru einhver fjölskyldu-
vandamál en þau eru nú að baki,“
sagði Mancini. Tevez flaug til
heimalands síns þar sem eigin-
kona hans eignaðist barn þeirra
fyrir tímann.
„Þetta var erfiður leikur og
svekkjandi hve erfiðlega gekk að
skapa færi,“ sagði Rafa Benítez,
stjóri Liverpool, sem fagnaði end-
urkomu Yossi Benayoun og Fern-
ando Torres af meiðslalistanum.
„Þeir tveir hafa reynst okkur
ansi mikilvægir í fortíðinni og
það er frábært að fá þá aftur.“
- egm
Tottenham nýtti sér jafntefli Manchester City og Liverpool og tók fjórða sætið með sigri á Wigan:
Tottenham í hið eftirsótta fjórða sæti
MÆTTUR Í SLAGINN Fernando Torres
kom inn á sem varamaður á 75. mín-
útu í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY
19 MÖRK Í DEILDINNI Didier
Drogba skoraði bæði mörk
Chelsea á móti Wolves.
MYND/AFP
FÓTBOLTI Íslenski landsliðsmið-
vörðurinn Ragnar Sigurðsson
hefur skipt um umboðsmann en
þetta kom fram á vefsíðunni fot-
bolti.net í gær.
Ragnar staðfesti það við
sænska fjölmiðla í gær að Arnór
Guðjohnsen væri ekki lengur
umboðsmaður hans heldur hefur
sænski lögfræðingurinn Carl
Fhager tekið við hans málum
utan vallar.
Ragnar Sigurðsson hefur stað-
ið sig frábærlega með IFK Gauta-
borg á síðustu árum og hefur
ítrekað verið orðaður við lið í
betri deildum í Evrópu en það
hefur engu síður ekkert gerst í
hans málum. Hann var síðast orð-
aður við enska úrvalsdeildarliðið
Blackburn Rovers um helgina.
- óój
Ragnar Sigurðsson:
Skipti Arnóri út
fyrir Svía
NÝR UMBOÐSMAÐUR Ragnar Sigurðs-
son vill komast í betra lið. MYND/TOMMY HOLL
FÓTBOLTI Framarar eru búnir að
gera nýjan samning við Tillen-
bræðurna sem hafa spilað með
liðinu undanfarin tvö sumur.
Þeir Joe og Sam Tillen sömdu
út keppnistímabilið 2011 og
verða því áfram í aðalhlutverki á
vinstri vængnum hjá Safamýrar-
liðinu í Pepsi-deildinni.
Samuel Tillen hefur verið
fastamaður í vinstri bakvarðar-
stöðunni og hefur skorað 3 mörk í
39 leikjum með liðinu.
Joseph Tillen var inn og út úr
liðinu í fyrra en hann spilar á
vinstri vængnum og hefur skorað
6 mörk í 35 deildarleikjum með
Fram. Joe skoraði sigurmark-
ið í sigri á KR í undanúrslitaleik
VISA-bikarsins í sumar. - óój
Pepsi-deild karla í fótbolta:
Tillen-bræður
sömdu til 2011
SAM TILLEN Hefur leikið vel í vinstri
bakverðinum hjá Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SKÍÐI Íris Guðmundsdóttir náði
ekki að klára ferð sína í risa-
svigi á vetrarólympíuleikununum
í Vancouver en þetta var fyrsta
keppni hennar á ólympíuleikum.
Það voru erfiðar aðstæður og
Íris datt í miðri braut. Hún var
ein af 15 sem sem náðu ekki að
klára. Íris fær annað tækifæri
því hún keppir einnig í svigi á
leikunum í Vancouver en það fer
fram á föstudaginn kemur.
Það var síðan ákveðið að senda
engan keppanda til leiks í tví-
keppni karla sem fram fór í gær-
kvöldi en næstur Íslendinga til að
keppa er Björgvin Björgvinsson
sem keppir í stórsvigi á morgun.
- óój
Ólympíuleikarnir í Vancouver:
Íris datt í risa-
sviginu
ÚR LEIK Íris Guðmundsdóttir byrjaði
Ólympíuferilinn ekki vel. MYND/AFP