Fréttablaðið - 22.02.2010, Side 46
26 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég er náttúrlega í skýjunum yfir
því hvað þjóðin er tónviss og hef-
ur góðan smekk. Hún Hera hefur
alltaf verið söngelsk og var fljót
að grípa lög og læra texta. Ég er
alveg ótrúlega stolt af henni.“
Hjördís Geirsdóttir er mamma Heru
Bjarkar sem vann Söngvakeppni Sjón-
varpsins.
Hinn 1. maí næstkomandi lýkur
merkilegum kafla í sögu Ríkis-
sjónvarpsins en þá verður í fyrsta
skipti útsending án sjónvarps-
þulna. Frá því að sjónvarpið sendi
fyrst út, hinn 30. september 1966,
hafa sjónvarpsþulur verið órjúf-
anlegur þáttur dagskrárinnar en
nú tekur við tölvumynd sem sýnir
áhorfendum hvað sé næst á dag-
skrá.
„Þetta er leiðinlegt, það er allt-
af gaman að fá fallegt bros þegar
dagskráin á kvöldin hefst,“ segir
Ása Finnsdóttir en hún er fyrsta
sjónvarpsþulan og bauð Íslend-
inga velkomna að skjánum fyrsta
sjónvarpskvöldið. Ása hafði verið
búsett í Danmörku áður en hún
tók þessa stöðu að sér og hafði
því fylgst vel með dönsku þulun-
um sem fygldu áhorfendum inn í
kvöldið þar. „Ég lærði helling af
þeim,“ útskýrir Ása og bætir því
við að það sé alltaf synd þegar
hefðir detta út. „En það hafa átt
sér stað miklar breytingar að und-
anförnu þótt auðvitað sé stundum
erfitt að sætta sig við það.“
Sigurður Hinrik Hjörleifsson
hefur stjórnað útsendingum þuln-
anna í 33 ár, eða frá því 1977. Hann
er viss um að það eigi eftir að verða
mikill söknuður af þulunum meðal
áhorfenda, hann eigi allavega eftir
að sakna þeirra. „Það var þula
fyrsta kvöldið og hefur alltaf verið
síðan þá, þetta eru því stórmerki-
leg tímamót,“ segir Sigurður og
bætir því við að fólk vilji jú alltaf
sjá fólk. „Þær voru fyrst allan tím-
ann, lásu dagskrá morgundagsins
og buðu síðan góða nótt. Það er því
búið að minnka vægi þeirra jafnt
og þétt og kannski hefur alltaf
verið stefnt að þessu.“
Katrín Brynja Hermannsdótt-
ir hefur verið sjónvarpsþula í níu
ár. Hún segir að það verði skrýtið
þegar þessu tímabili ljúki. „Maður
minnist þeirra Sirrýjar og Rósu,
þeirra sem allir þekkja, þetta verð-
ur eitthvað undarlegt,“ segir Katr-
ín. freyrgigja@frettabladid.is
ÁSA FINNSDÓTTIR: MERKILEGUM SJÓNVARPSKAFLA AÐ LJÚKA
Þulurnar kveðja í apríllok
ELST UPP ÁN ÞULNA Ása Finnsdóttir, fyrsta sjónvarpsþulan hjá RÚV, með barnabarni sínu, Jóhannesi Gauta Long, sem elst vænt-
anlega upp án þess að hafa þulu á skjánum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÁRÉTT
2. hluta sólahrings, 6. bardagi, 8. rúm
ábreiða, 9. sarg, 11. gelt, 12. býsn, 14.
fáni, 16. í röð, 17. heldur brott, 18.
loga, 20. holskrúfa, 21. stígur.
LÓÐRÉTT
1. blað, 3. skammstöfun, 4. alger, 5.
skjön, 7. hálsklútur, 10. gljúfur, 13.
kóf, 15. hrjúf, 16. húðpoki, 19. lést.
LAUSN
„Við sjáum fram á að hún gæti
verið komin í gagnið um páskana,“
segir Sveinbjörn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri verktakafyrirtækis-
ins Sveinbjörn Sigurðsson. Starfs-
menn fyrirtækisins hafa séð um
að reisa sundlaugina á Hofsósi
sem athafnakonurnar Steinunn
Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir
gáfu íbúum bæjarins fyrir tæpum
þremur árum.
Upphaflega stóð til að sundlaug-
in yrði tilbúin um mánaðamótin
nóvember/desember á síðasta ári
og hún hefði því getað orðið ansi
vegleg jólagjöf til Skagfirðinga. En
eilitlar tafir urðu á verkinu, meðal
annars vegna efnisskorts, og Skag-
firðingar urðu því að bíða enn um
sinn. „Þetta var allt leyst og það
hefur allt staðið eins og stafur á
bók í samskiptum okkar við þær,“
segir Sveinbjörn. Íbúar Hofsóss
og nærsveitamenn bíða eflaust
spenntir eftir því að geta stungið
sér til sunds og setið í heitu pott-
unum og horft yfir til Drangeyjar,
jafnvel látið sig dreyma um Drang-
eyjarsund. Og nú lítur allt út fyrir
að þeir geti gert það um svipað
leyti og páskarnir ganga í garð.
Það vakti mikla athygli á sínum
tíma þegar þær Steinunn og Lilja
skrifuðu undir viljayfirlýsingu um
að gefa íbúum Hofsóss sundlaug
hinn 19. júní 2007. Dorrit Moussa-
eiff tók fyrstu skóflustunguna að
sundlauginni ásamt þeim Stein-
unni og Lilju í apríl 2008 og í kjöl-
farið var hafist handa. Sundlaugin
sjálf verður 25 metrar að lengd en
innifalið í gjöfinni er vegleg þjón-
ustumiðstöð. - fgg
Páskaopnun Hofsós-sundlaugar
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN Forsetafrúin
Dorrit Moussaeiff tók fyrstu skóflu-
stunguna að sundlauginni ásamt þeim
Steinunni og Lilju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Maður verður bara að halda
áfram. Við héldum góð jól en
maður verður stundum sorg-
mæddur þegar maður hugsar út
í myndirnar af börnunum, það er
söknuður af þeim,“ segir Arnar
Gauti Sverrisson, fyrrum sjón-
varpsmaður og framkvæmda-
stjóri. Hann hefur hvorki séð
tangur né tetur af þeim munum
sem stolið var af heimili hans í
Melahvarfi 14. desember á síð-
asta ári. Arnar var ekki tryggð-
ur og fékk því tjónið ekki bætt en
innbrotið átti sér stað um hábjart-
an dag.
Arnar er kvæntur Aðalbjörgu Ein-
arsdóttur og saman eiga þau Natalíu
París og Kiljan Gauta. Arnar segist
vera í góðu sambandi við rannsókn-
arlögregluna og hann fari reglulega
inn á heimasíðu lögreglunnar þar
sem finna má myndir af þýfi sem
hald hefur verið lagt á. „Annars ótt-
ast ég að þarna hafi verið á ferðinni
erlent þjófagengi, þessu hafi bara
verið sópað inn í gám niður á Sunda-
höfn og sent út,“ segir Arnar. - fgg
Óttast að hlutirnir hafi
verið sendir úr landi
HAFA EKKI FUNDIST Þjófarnir sem brutust inn til Arnars Gauta og fjölskyldu hans
hafa ekki fundist og ekki heldur þýfið.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um deilur Birtu Björnsdóttur
fatahönnuðar og Lindu Bjargar
Árnadóttur, fagstjóra fatahönn-
unardeildar LHÍ, sem Fréttablaðið
hefur greint frá að
undanförnu. Linda
gerði sem kunnugt
er athugasemdir við
kjóla eftir Birtu sem
Ragnhildur Steinunn
og Eva María klædd-
ust í Eurovision.
Birta svaraði
fullum hálsi og
hefur farið fram á
afsökunarbeiðni
frá Listaháskól-
anum. Ef til vill
er rétt að halda
því til haga að Birta er dóttir Björns
Emilssonar, framleiðanda hjá RÚV,
en fósturmóður hennar er Ragna
Fossberg, förðunarmeistari Ríkisút-
varpsins.
Og svo virðist sem þjóðin fylgist
betur með kjóla-og klæðaburði
sjónvarpsfólks nú en
áður. Einhverjir supu
hveljur yfir kjólnum
sem Þóra Arnórs-
dóttir klæddist í
síðasta Útsvari því
hann virtist vera
gegnsær. Stóra
spurningin er sú;
fær Þóra líka
bréf frá Listahá-
skólanum?
Þau Svanhildur Hólm og Stefán
Eiríksson verða eflaust ekki ofar-
lega á jólakortalistum Dalvíkinga
í ár en lið Reykjavíkur hreinlega
valtaði yfir lið Dalvíkurbyggðar í
síðasta Útsvarsþætti. Dalvíking-
ar geta þó huggað sig við að lið
Reykjavíkur virðist vera hálfgert
útibú norðanmanna
en höfuðborgarbúar
virðast feiknasterkir
um þessar mundir.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT: 2. dags, 6. at, 8. lak, 9. urg,
11. gá, 12. feikn, 14. flagg, 16. hi, 17.
fer, 18. eld, 20. ró, 21. slóð.
LÓÐRÉTT: 1. lauf, 3. al, 4. gagnger, 5.
ská, 7. trefill, 10. gil, 13. kaf, 15. gróf,
16. hes, 19. dó.
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Ása Finnsdóttir
Rósa Ingólfsdóttir
Ragnheiður Elín Clausen
Ellý Ármannsdóttir
Eva Sólan
Brynja Vífilsdóttir
FRÆGAR ÞULUR RÚV