Fréttablaðið - 19.03.2010, Blaðsíða 58
38 19. mars 2010 FÖSTUDAGUR
IE-deild karla:
Snæfell-KR 86-90
Stig Snæfells: Sean Burton 21, Hlynur Bærings-
son 19, Jón Ólafur Jónsson 18, Sigurður Þorvalds-
son 12, Emil Jóhannsson 12, Sveinn Davíðsson 4.
Stig KR: Pavel Ermolinskij 23, Brynjar Þór Björns-
son 19, Morgan Lewis 13, Finnur Magnússon 10,
Darri Hilmarsson 9 Tommy Johnson 7, Jón Orri
Kristjánsson 5, Fannar Ólafsson 4.
ÍR-Grindavík 91-89
ÍR: Robert Jarvis 29, Nemanja Sovic 22, Hreggvið-
ur Magnússon 19, Eiríkur Önundarson 7, Kristinn
Jónasson 6, Steinar Arason 5, Davíð Fritzson 3.
Grindavík: Darrell Flake 22, Guðlaugur Eyjólfsson
19, Ólafur Ólafsson 18, Páll Axel Vilbergsson 13,
Brenton Joe Birmingham 9, Ómar Örn Sævarsson
4, Arnar Freyr Jónsson 4,
FSu-Njarðvík 72-113
FSu: Cristopher Caird 30, Aleksas Zimnickas 15,
Kjartan Kárason 13, Jake Wyatt 6, Birkir Víðisson
3, Orri Jónsson 3, Sæmundur Valdimarsson 2.
Njarðvík: Hjörtur Hrafn Einarsson 24, Guðmund-
ur Jónsson 22, Nick Bradford 22, Friðrik E.
Stefánsson 15, Rúnar Ingi Erlingsson 9, Kristján
Rúnar Sigurðsson 8, Jóhann Árni Ólafsson 7, Egill
Jónasson 2, Elías Kristjánsson 2.
Keflavík-Hamar 107-100
Keflavík: Uruele Igbavboa 19, Draelon Burns 18,
Hörður Axel Vilhjálmsson 17, Gunnar Einarsson
13, David Thor Jonsson 11, Þröstur Leó Jóhanns-
son 8, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 7, Sverrir
Þór Sverrisson 6, Gunnar H. Stefánsson 6
Hamar: Andre Dabney 38, Marvin Valdimarsson
29, Viðar Örn Hafsteinsson 11, Páll Helgason 10,
Oddur Ólafsson 5, Hilmar Guðjónsson 3, Ragnar
Á. Nathanaelsson 2, Svavar Pall Palsson 2.
Stjarnan-Breiðablik 109-86
Stjarnan: Jovan Zdravevski 19, Justin Shouse
17, Djorde Pantelic 15, Fannar Freyr Helgason
14, Magnús Helgason 13, Birkir Guðlaugsson 9,
Ólafur J. Sigurðsson 9, Kjartan Atli Kjartansson 5,
Guðjón Lárusson 3, Erling Gauti Jónsson 3.
Breiðablik: Jeremy Caldwell 16, Jonathan
Schmidt 15, Daníel G. Guðmundsson 13, Arnar
Pétursson 8, Aðalsteinn Pálsson 7, Þorsteinn
Gunnlaugsson 7, Hjalti Friðriksson 5, Gylfi Geirs-
son 5, Ágúst Angantýsson 5, Ágúst Orrason 3.
Fjölnir-Tindastóll 83-86
Fjölnir: Christopher Smith 21, Ingvaldur Magni
Hafsteinsson 16, Ægir Þór Steinarsson 16, Arnþór
Freyr Guðmundsson 9, Jón Sverrisson 8, Sindri
Kárason 6, Tómas Heiðar Tómasson 4.
Tindastóll: Donatas Visockis 22, Cedric Isom 18,
Svavar Atli Birgisson 15, Helgi Rafn Viggósson 14,
Axel Kárason 10, Friðrik Hreinsson 7
LOKASTAÐAN:
KR 22 18 4 2057-1802 36
Keflavík 22 17 5 2069-1776 34
Grindavík 22 16 6 2063-1769 32
Stjarnan 22 15 7 1901-1773 30
Njarðvík 22 15 7 1953-16722 30
Snæfell 22 14 8 2070-1842 28
Tindastóll 22 9 13 1835-1962 18
ÍR 22 8 14 1862-2005 16
Fjölnir 22 7 15 1771-1915 14
Hamar 22 7 15 1859-1974 14
Breiðablik 22 5 17 1720-2018 10
FSu 22 1 21 1640-2242 2
N1-deild karla:
Akureyri-FH 33-30 (18-12)
Mörk Akureyrar (skot): Árni Þór Sigtryggsson 9
(15), Heimir Örn Árnason 8 (12), Oddur Gretars-
son 5/1 (7/3), Guðmundur H. Helgason 5 (10),
Jónatan Magnússon 3 (5), Hörður F. Sigþórsson 2
(4), Andri Snær Stefánsson 1 (2).
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 21/1 (40) 53%,
Hafþór Einarsson 0 (1) 0%.
Hraðaupphlaup: 11 (Heimir 4, Guðmundur 2,
Árni 2, Andri, Oddur, Jónatan).
Mörk FH (skot): Bjarni Fritzson 12/6 (18/7),
Ólafur Gústafsson 6 (12), Ólafur Guðmundsson 4
(9), Ásbjörn Friðriksson 2 (6), Örn Ingi Bjarkason
2 (7), Jón Heiðar Gunnarsson 1 (1), Sigurgeir
Árni Ægisson 1 (1), Hermann Björnsson 1 (2),
Benedikt Kristinsson 1 (4).
Varin skot: Pálmar Pétursson 11/2 (36) 31%,
Daníel Andrésson 2 (10) 20%.
Hraðaupphlaup: 5 (Bjarni 3, Sigurgeir, Benedikt,
Bjarni).
HK-Fram 24-25
Haukar-Grótta 24-23
Stjarnan-Valur 21-18
STAÐAN:
Haukar 16 12 2 2 408-377 26
Akureyri 16 10 2 4 437-401 22
FH 16 9 1 6 453-426 19
HK 16 9 1 6 434-411 19
Valur 16 8 2 6 395-377 18
Fram 16 4 1 11 412-447 9
Grótta 16 4 0 12 395-432 8
Stjarnan 16 3 1 12 364-428 7
Evrópudeild UEFA:
Liverpool-Lille 3-0
Liverpool fór áfram, 0-1, samanlagt.
Fulham-Juventus 4-1
Bobby Zamora, Zoltan Gera 2 Clint Dempsey
- David Trezeguet.
Fulham fór áfram, 5-4, samanlagt.
Marseille-Benfica 1-2
Benfica fór áfram, 2-3, samanlagt.
Standard Liege-Panathinaikos 1-0
Standard fór áfram, 4-1, samanlagt.
Werder Bremen-Valencia 4-4
Valencia fór áfram með fleiri útivallarmörk.
Anderlecht-HSV 4-3
HSV fór áfram, 5-6, samanlagt.
Sporting Lisbon-Atletico Madrid 2-2
Atletico fór áfram með mörkum á útivelli.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Akureyri seig fram úr
FH og HK í toppbaráttu N-1 deild-
arinnar með góðum sigri á FH
fyrir norðan. Lokatölur voru 33-30
í leik sem varð æsispennandi. FH
hafði unnið alla þrjá leiki liðanna
á tímabilinu þar til í gær.
Akureyringar virkuðu gríðar-
lega ákveðnir og þeir höfðu orð
á því fyrir leikinn að þeir minnt-
ust orða Pálmars Péturssonar
eftir síðasta sigurleik FH þar sem
Húsvíkingurinn sagði að Akur-
eyri spilaði leiðinlegan handbolta.
Akureyri kafsigldi FH strax í byrj-
un og komst í 5-1 og það vottaði
ekki fyrir leiðindum í leik liðsins.
Sókn Akureyrar var ágæt en með
engri markvörslu FH hefði liðið
getað skorað enn fleiri mörk en
þau 18 sem liðið gerði í fyrri hálf-
leik. Staðan var 18-12 í hálfleik.
Það tók FH rúmar átta mínútur
að jafna í upphafi seinni hálfleiks.
Pálmar fór að verja, Akureyring-
ar að skjóta illa og hraðaupphlaup
FH gerðu gæfumuninn. Ótrúleg-
ar upphafsmínútur og allt í einu
gríðarleg spenna komin í leikinn.
Akureyringar voru hinu sígilda
skrefi á undan, en stutt var það.
Staðan var jöfn þegar tíu mínútur
lifðu leiks, 25-25.
Ólafur Guðmundsson fékk rautt
spjald eftir þrjár brottvísanir
og Akureyri komst yfir. FH var
skammt undan en smám saman
sigldi Akureyri fram úr. Liðið
náði tveggja marka forystu sem
það hélt út leikinn.
„Við vorum allir með allt gjör-
samlega lóðrétt niður um okkur
í fyrri hálfleik,“ sagði Pálmar
sem er nýorðinn faðir. Hann vildi
ekki meina að það hefði haft áhrif
á markvörslu hans í leiknum.
„Vörnin var skelfileg, markvarsl-
an hörmung en Akureyringar mjög
einbeittir. Ég verð að hrósa Akur-
eyringum, þetta er hrikalega erf-
iður útivöllur. En ég hef engar
afsakanir, þetta var bara ógeðs-
lega lélegt,“ sagði Pálmar.
„Pálmar kveikti í okkur, sem
og þessi þrjú töp gegn FH,“ sagði
Heimir Örn Árnason. „Við vorum
með meira blóð á tönnunum í kvöld
en áður. Við erum bara orðnir betri
en við vorum fyrir áramót,“ sagði
Heimir. - hþh
Akureyringar efldust við orð Pálmars Péturssonar, markvarðar FH, um að liðið spilaði leiðinlegan handbolta:
Við vorum með meira blóð á tönnunum
MAGNAÐUR Árni Þór Sigtryggsson er loksins kominn í gang hjá Akureyri og hann átti
magnaðan leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Robert Jarvis, leik-
maður ÍR, sá um Grindvík-
inga í hörkuleik sem fram fór í
Breiðholti.
Heimamenn í ÍR byrjuðu leik-
inn með miklum látum og voru
að hitta vel. Grindvíkingar voru
lengi í gang og höfðu ekki svör
við flugeldasýningu ÍR-liðsins.
Heimamenn voru sterkari allan
fyrri hálfleikinn en gestirnir
náðu að vinna sig inn í leikinn og
tóku yfirhöndina í þriðja leik-
hluta, staðan var þá 62-69.
Síðasti leikhlutinn var stórkost-
leg skemmtun og mikil spenna
ríkti allt þar til Robert Jarvis
kláraði leikinn undir lokin með
frábærum stigum. Jarvis skor-
aði 29 stig og var allt í öllu hjá
heimamönnum, bæði í vörn og
sókn.
Þetta var sannkölluð veisla og
frábær sigur fyrir ÍR-inga sem
geta þakkað Robert Jarvis fyrir
að bera liðið inn í úrslitakeppn-
ina.
„Maður er auðvitað alltaf
svekktur þegar að maður tapar,
það skiptir ekki á móti hverjum
það er. Ég veit ekki hvað gerð-
ist, við náðum forskoti þarna
í þriðja leikhluta og náðum að
halda okkur inni en það var ekki
nóg,” sagði Ólafur Ólafsson sem
átti fínan leik í kvöld með 18 stig
og bauð meðal annars upp á rán-
dýrar troðslur sem vöktu mikla
lukku áhorfenda. - rog
Grindavík í þriðja sætinu:
Jarvis kom ÍR í
úrslitakeppnina
EKKI DAUÐIR ÚR ÖLLUM ÆÐUM ÍR
minnti hressilega á sig í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Liverpool er komið áfram
í sextán liða úrslit Evrópudeildar
UEFA eftir 3-0 sigur á franska
liðinu Lille í gærkvöld. Lille vann
fyrri leik liðanna, 1-0.
Steven Gerrard kom Liver-
pool yfir snemma leiks með afar
umdeildri vítaspyrnu sem Bras-
ilíumaðurinn Lucas fiskaði. Það
mark létti pressunni af heima-
mönnum. Fernando Torres var
sprækur í leiknum og hann kom
Liverpool í 2-0 með laglegu marki
í upphafi síðari hálfleiks. Lille var
samt alltaf komið áfram með einu
marki og liðið fékk færi til þess að
ná því marki en nýtti ekki.
Það var síðan vel við hæfi að
Spánverjinn Torres skyldi klára
leikinn endanlega undir lokin.
Fékk boltann á markteig og lagði
hann snyrtilega í netið. Mennirnir
sem hafa borið þetta lið á bakinu
eru vaknaðir til lífsins á ný - hbg
Liverpool komst áfram í Evrópudeildinni í gærkvöld:
Stjörnur Liverpool
vaknaðar til lífsins
GÓÐUR Torres skoraði tvö mörk í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI KR-ingar tryggðu sér
deildarmeistaratitilinn í þriðja sinn
með fjögurra stiga sigri á Snæfelli
í Stykkishólmi í gær og það ætti að
boða gott fyrir lokaúrslitin í ár því
liðið fylgdi deildarmeistaratitlin-
um 1990 og 2009 með Íslandsmeist-
aratitli í úrslitakeppninni.
Pavel Ermolinskij sýndi frábæra
takta á lokamínútunum í Stykkis-
hólmi þegar KR-ingar tryggðu sér
heimavallarréttinn út alla úrslita-
keppnina. KR-ingar kláruðu leik-
inn þrátt fyrir að hafa fengið sjóð-
heitar fréttir á lokamínútunum um
sigur ÍR á Grindavík sem þýddi að
þeir mættu í raun tapa. Pavel setti
niður tólf stig á síðustu sjö mínút-
unum og það vó þungt.
„Mér fannst eins og ég þurfti að
taka af skarið. Þeir voru að loka
mjög vel á okkur og ef það var
einhver leikur þar sem ég þurfti
að taka af skarið þá var það þessi
leikur. Ég ákvað bara að kýla á
það og það gekk upp,“ sagði Pavel
Ermonlinskij kátur í leikslok.
„Þeir eru með virkilega sterkt
lið og ég er mjög hrifinn af þessu
Snæfellsliði sem er sterkasti and-
stæðingurinn sem ég hef spil-
að á móti hingað til á Íslandi. Ég
hlakka bara til að mæta þeim aftur
í úrslitakeppninni,” sagði Pavel.
„Pavel er ofboðslega góður og
það er gjörsamlega út úr kortinu
að hann skuli vera hérna. Hann
er alltof góður fyrir þessa deild
en hann er hérna og það er frá-
bært fyrir boltann,“ sagði Ingi
Þór Steinþórsson, þjálfari Snæ-
fells, en hann var ekki sáttur við
leik sinna manna og þá sérstaklega
með öll sóknarfráköst KR-inga.
„Við fáum vonandi aftur tækifæri
á móti KR og þá tökum við þá. Við
erum búnir að spila á móti Grinda-
vík áður og getum alveg gert betur
en við gerðum á móti þeim síðast í
deildinni. Við erum að fara erfiða
leið, það hefur ekkert lið í sjötta
sæti gert einhverjar rósir í úrslita-
keppninni þannig að það er áskor-
un fyrir okkur. Við tökum bara á
þessu,“ sagði Ingi Þór.
Leikur ÍR og Grindavíkur
kláraðist nokkuð á undan leiknum
í Hólminum og fréttir af sigri ÍR-
inga voru fljótar að berast í Fjár-
húsið. „Við vissum að ÍR hafði
unnið þegar tvær og hálf mínúta
var eftir. Það er hundleiðinlegt að
tapa og taka á móti bikar og við
vildum klára þetta á okkar for-
sendum. Það gekk eftir,“ sagði KR-
ingurinn Brynjar Þór Björnsson
sem kallaði strax á sína menn að
halda einbeitingu þegar liðið vissi
af úrslitunum í Seljaskólanum.
Brynjar skoraði gríðarlega mikil-
væga þriggja stiga körfu skömmu
síðar og kom KR-liðinu sex stig-
um yfir, 82-76. Snæfell náði ekki að
vinna þann mun á síðustu tveimur
og hálfri mínútu leiksins.
ooj@frettabladid.is
Hundleiðinlegt að tapa og
taka síðan á móti bikar
KR-ingar eru deildarmeistarar í körfubolta annað árið í röð eftir 90-86 sigur
á Snæfelli í æsispennandi leik í Stykkishólmi í gær. Pavel Ermolinskij tók af
skarið í lokin og skoraði 12 af 23 stigum sínum í fjórða leikhlutanum.
FRÁBÆR Pavel Ermolinskij hefur komið afar sterkur inn í lið KR og hann átti enn einn
stórleikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓÓJ