Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 4
14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
16°
15°
14°
11°
15°
11°
10°
10°
21°
13°
18°
20°
27°
13°
15°
16°
8°
Á MORGUN
5-10 m/s.
FÖSTUDAGUR
Breytileg átt 3-10 m/s.
6
6
6
8
8
7
2
5
5 4
4
12
8
9
8
8
7
8
6
7
7
8
5
6
4
4
3 1 2
3
8
7
SKÚRIR EÐA
SLYDDUÉL Það
kólnar lítillega á
landinu í dag og
má því búast við
slydduéljum inn
til landsins vestan
til en annars smá-
skúrum. Á morgun
bætir heldur í
úrkomuna og síð-
degis má gera ráð
fyrir slyddu eða
snjókomu norðan-
lands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Íslendingar treystu sér
ekki til að sýna til hvaða
ráða yrði gripið kæmi
til fjármálaáfalls. FME
taldi ákvörðunina mistök.
Hræðsla við leka réð mestu.
Aðstæðurnar sem æfingin
byggði á voru nærfellt þær
sömu og í hruninu.
Ingimundur Friðriksson, þáver-
andi seðlabankastjóri, og Baldur
Guðlaugsson, þáverandi ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, ákváðu upp á sitt einsdæmi
að kljúfa Ísland út úr sam-
nor rænni viðlagaæfingu þar sem
viðbrögð við fjármálaáfalli voru
greind og æfð. Ástæðan var að
þeir vildu ekki gefa vísbending-
ar um viðbrögð íslenskra stjórn-
valda kæmi til erfiðleika á fjár-
málamarkaði.
Æfingin fór fram réttu ári áður
en íslensk stjórnvöld ákváðu að
þjóðnýta Glitni. Að æfingunni
komu stjórnvöld á Norðurlöndun-
um og seðlabankar Eystrasalts-
ríkjanna.
Í skýrslu Baldurs Guðlaugs-
sonar fyrir rannsóknarnefnd
Alþingis skýrir hann ákvörðun-
ina þannig: „Við töldum að það
væri skynsamlegt að hafa ekkert
á endanum sagt af eða á um það
hvort ríkið mundi ætla að koma
þarna þessum banka til aðstoðar
við þessar aðstæður eða ekki.“
Eins kemur fram að þeir hafi
óttast, þrátt fyrir að æfingin hafi
verið unnin í trúnaði, að ef ákvörð-
un yrði tekin, og æfingin kláruð,
myndi hún leka út. Ef beiðni banka
um aðstoð hefði verið hafnað hefði
það skapað ólgu en vilyrði hefði
skapað „freistnivanda“, sem felst
í því að bankarnir hefðu fengið
undirstrikað að þeim yrði hjálpað.
„Af þeim sökum hefðu menn talið
rétt að taka enga ákvörðun.“
Í vitnisburði annarra embættis-
manna SÍ og ráðuneyta fyrir nefnd-
inni kemur fram að Ingimundur og
Baldur hafi talið nóg komið. Áslaug
Árnadóttir, skrifstofustjóri við-
skiptaráðuneytisins, segir Bald-
ur hafa verið þeirrar skoðunar að
hægt yrði að taka nauðsynlegar
ákvarðanir á „nokkrum klukku-
stundum þegar þar að kæmi“.
Fulltrúar Fjármálaeftirlitsins
(FME) voru mjög óánægðir með
ákvörðun Ingimundar og Baldurs.
Þeir töldu hana hafa verið alvarleg
mistök og Íslandi til minnkunar.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME,
sagði í skýrslutöku ári seinna að
ákvörðunin hefði reynst afdrifarík
þegar stjórnvöld voru ófær um að
taka nauðsynlegar ákvarðanir.
Önnur lönd en Ísland kláruðu
æfinguna og viðbrögð þeirra við
fjármálaáfallinu ári síðar voru í
fullkomnu samræmi við niðurstöðu
æfingarinnar.
svavar@frettabladid.is
Þorðu ekki að
klára norræna
krísuæfingu
Andrew Gracie, breskur sérfræðingur í fjármálastöðugleika, sem fenginn
var til að skipuleggja æfinguna, mun hafa furðað sig á ákvörðun íslenskra
stjórnvalda og gagnrýnt hana. Ekki furðaði hann sig síst á því að fulltrúar
Íslands hófu að tala á móðurmálinu sín á milli nokkru áður en ákveðið
var að hætta leik. Þetta var gert þrátt fyrir að enska væri fyrirfram ákveðið
tungumál á æfingunni til að auðvelda samskipti.
Hættu að tala ensku til að fela ákvörðun
Ólíklegt er talið að frekar verði
aðhafst vegna mála þeirra fjög-
urra fyrrverandi embættismanna
sem Rannsóknarefnd Alþingis
telur að hafi vanrækt starfsskyld-
ur sínar.
Þar er um að ræða fyrrverandi
forstjóra Fjármálaeftirlitsins og
bankastjórn Seðlabankans.
Sérstök þingmannanefnd hefur
það hlutverk að ákveða hvort
látið verði reyna á ábyrgð þeirra
þriggja ráðherra, sem nefndin
taldi hafa vanrækt starfsskyld-
ur sínar, með málshöfðun fyrir
Landsdómi. Ef af verður gætu
ráðherrarnir fyrrverandi fengið
allt að því tveggja ára fangelsis-
dóm.
Hvað varðar embættismennina
fjóra er réttarstaðan allt önnur.
Þeir hafa allir látið af störfum.
Landsómur fjallar aðeins um
meint brot ráðherra og Rannsókn-
arnefndin vísaði málum fjórmenn-
inganna ekki til ríkissaksóknara.
Heimildarmenn Fréttablaðsins
telja að hvorki löggjöf landsins né
skýrsla rannsóknarnefndar svari
því hvort aðhafast eigi frekar
vegna mála embættismannanna.
Atli Gíslason, formaður þing-
mannanefndar sem fjallar um
viðbrögð við skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis sagði að spurn-
ingar um ábyrgð væru óræddar
en verði teknar fyrir í nefndinni
á föstudag. - pg
Þingmannanefnd um viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis:
Ólíklegt að framhald verði á
málum embættismanna
ATLI GÍSLASON Formaður þingmanna-
nefndarinnar segir að spurningar um
ábyrgð verði ræddar í nefndinni á
föstudaginn.
Gervimaður í útlöndum virð-
ist aðsópsmikill eignamaður í
íslensku viðskiptalífi, samkvæmt
skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis.
Gervimaðurinn er hópur fólks
sem í sumum tilvikum er skráður
erlendis, en í öðrum tilvikum lítið
vitað um, en eigendur að minnsta
kosti tíu prósenta hlutar eða meira
í fyrirtækjum og viðtakendur arð-
greiðslna. Í skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar kemur fram að ekki
sé um íslenskar kennitölur að
ræða.
Gervimaðurinn átti hlut í 410
fyrirtækjum á árabilinu 2006 til
2008 og fékk 5,5 milljarða króna
í arð á árabilinu. Fram kemur í
skýrslu rannsóknarnefndar, að
gervimaðurinn í útlöndum hafi
samkvæmt opinberum gögnum,
ekki þegið arðgreiðslur fyrr en
2006. Skrifast það á breytingar á
skilum á hlutafjármiðum, sem þá
urðu að fullu rafræn og því ekki
lengur hægt að skila inn auðum
kennitölum eða kennitölum sem
eru ekki til á hlutafjármiðum.
Stærsti hlutur arðgreiðslna
gervimannsins er vegna hlutar
hans í Kaupþingi. Á meðal eigna
hans á umræddu tveggja ára tíma-
bili er helmingshlutur í 365, 83,7
prósent í Askar Capital og McDon-
ald‘s á Íslandi.
Gervimaður í útlöndum skuld-
aði bönkunum 101 milljarð króna
í lok september 2008. - jab
Gervimaður í útlöndum átti hlut í 410 fyrirtækjum og skuldar hundrað milljarða:
Gervimenn fengu 5,5 milljarða arð
Um helmingur þingmanna hefur
þegar sett sig á mælendaskrá
um skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Hún er til umræðu á
Alþingi þessa viku og var rædd
fram á kvöld í gær.
Einar K. Guðfinnsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að það ærði
og særði „réttlætiskennd venju-
legs fólks að sjá í skýrslunni
hvernig eigendur bankanna hafa
misnotað þá“. Tilteknir eigendur
bankanna hafi ryksugað til sín
peninga. Einn og sami aðilinn,
Baugur, hafi fengið 53% af eig-
infé bankanna að láni.
„Við verðum að taka skýrslunni
alvarlega,“ segir Árni Þór Sig-
urðsson, VG. Hann vill að horf-
ið verði frá auðhyggju og því
afskiptaleysi um almannahags-
muni sem einkennt hafi íslensk
stjórnmál.
Gunnar Bragi Sveinsson, Fram-
sóknarflokki, sagði nauðsynlegt
að læra af mistökum síðustu ára
og áratuga varðandi löggjöf og
stjórnsýslu en ekki mætti gleyma
að „það voru bófar og ribbaldar“
sem rændu og tæmdu sjóði bank-
anna. „Þessa menn þarf að finna
og gera upp sakir við þá.“
Þór Saari, Hreyfingunni, hvatti
þau sem enn sitja á þingi og sátu
áður í ríkisstjórn eða fengu
styrki frá bönkunum til að segja
af sér. Hann skoraði enn fremur á
þingið að efna til nýrrar umræðu
um skýrsluna þegar gefist hefði
tími til að kynna sér efni hennar
betur. - pg
Langar umræður á Alþingi um skýrslu rannsóknarnefndar:
Ærir og særir réttlætiskennd
GLUGGAÐ Í SKÝRSLU Þingmenn byrjuðu
að glugga í níu binda skýrslu rannsókn-
arnefndar. Umræður hófust samdægurs
og munu standa út vikuna.
„VIÐ ERUM HÆTTIR ÞESSU“ Baldur
Guðlaugsson ráðuneytisstjóri tilkynnti
erlendum kollegum sínum fyrirvaralaust
að Íslendingar væru hættir þátttöku í
æfingunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
HANNAÐ AF FAGFÓLKI - Á VERÐI FYRIR ÞIG
LYFTINGU
Sérhönnuð hárvörulína fyrir aukna
Ýkir lyftingu, mótar og gefur glans
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx