Fréttablaðið - 14.04.2010, Síða 10
14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
10
„Varla þarf að ræða það að
Jón Ásgeir Jóhannesson,
Björgólfur Guðmundsson
og Bakkabræðurnir réðu
ekki við eignarhald á bönk-
unum. Sjálfir voru þeir í
fararbroddi við hömlulausa
þenslu útlána sem felldu
bankana.“
Þannig kemst danski banka-
sérfræðingurinn Jørn Astrup
Hansen að orði í greinargerð sem
hann vann fyrir rannsóknarnefnd
Alþingis um mat á starfsemi bank-
anna.
Fyrirtæki Jóns Ásgeirs og tengd-
ir aðilar var sá fyrirtækjahópur
sem var umfangsmestur í viðskipt-
um við íslensku bankana. Voru þau
veruleg í öllum þremur bönkun-
um. Í upphafi árs 2005 var Lands-
bankinn með hæst útlán til hóps-
ins, Kaupþing með litlu minna en
Glitnir með áberandi lægst útlán.
Á seinni hluta árs 2007 voru allir
bankarnir með hátt í eða yfir
tveggja milljarða evra útlán til
samstæðunnar. Þá var Jón Ásgeir
orðinn ráðandi hluthafi í Glitni.
Samtals námu lánin þá 5.740 millj-
ónum evra (660 milljörðum króna
samkvæmt miðgengi). Það var
meira en helmingur af saman-
lögðum eiginfjárgrunni bankanna
þriggja og ellefu prósent af öllum
útlánum móðurfélaga bankanna.
Félögin skipta tugum en á tíma-
bili námu lán bara til Baugs og FL
Group 2,3 milljörðum evra eða 21
prósenti af samanlögðum eiginfjár-
grunni stóru bankanna. Í framhaldi
eigendaskipta í Glitni margfölduð-
ust lánveitingar bankans til félaga
Jóns Ásgeirs og tengdra aðila. Í
byrjun árs 2008 fara útlán Glitn-
is til Baugs og FL yfir 40 prósent
af eiginfjárgrunni. Við fall Glitn-
is námu lán til Baugs og tengdra
félaga tæpum tveimur milljörð-
um evra (rúmlega 250 milljörðum
króna). Var það um 70 prósent af
eiginfjárgrunni bankans.
Það er til marks um hve mikil
umsvif Jóns Ásgeirs og fjölskyldu
hans í bankakerfinu voru að rann-
sóknarnefndin kemst svo að orði:
„Fjölskyldan í heild myndar svo
stóra áhættu hjá bankakerfinu að
fullyrða má að enginn bankanna
hafi haft efni á að gjaldfella lán á
aðila tengdum þeim, vegna hugs-
anlegra keðjuverkandi áhrifa.“
Baugur hafði tangarhald á bönkunum
Fyrri hluta september 2008 var Glitnir að vinna í því að
bæta stöðu sína gagnvart fasteignafélaginu Landic Prop-
erty. Í því fólst að bankinn sóttist eftir auknum áhrifum
í stjórnun fyrirtækisins til þess að tryggja hámarksendur-
heimtur bankans af lánum til Landic. Magnús Arnar
Arngrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs á Íslandi,
sendi tölvubréf hinn 12. september 2008 til Skarphéðins
Bergs Steinarssonar, þáverandi forstjóra Landic Property,
um að bréf myndi berast um þessar aðgerðir bankans.
Svar kom fyrir hönd Landic frá Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni sem hófst á orðunum: „Sæll Magnús. Sem
aðaleigandi Stoða sem er stærsti hluthafi í Glitni langar
mig að vita hvernig svona bréf á að þjóna hagsmunum
bankans.“ Í tölvubréfinu setti Jón Ásgeir fram nokkrar
spurningar um málið til Magnúsar. Sú síðasta var eftir-
farandi: „Gera stjórnendur sér grein fyrir því að Stoðir
aðaleigandi Landic er jafnframt með leyfi FME að fara
með ráðandi eignarhlut í Glitni hvernig heldur að þetta
bréf líti út frá því sjónarmiði?“
Ekki er annað að sjá en að Jón Ásgeir hafi talið sig
bæran um að koma fram bæði af hálfu stjórnar FL og
Baugs. Í því ljósi verður ekki annað séð en félögin hafi
verið tengd í þeirri merkingu sem hér er miðað við.
Bréfið ber einnig vitni því umboði sem fulltrúar stærstu
hluthafa bankans, sem ekki sátu í bankaráði, töldu sig
hafa til að hlutast til um daglegan rekstur bankans.
Úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Glitnir grípur til aðgerða gagnvart Landic Property
Félög tengd
Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni
skipta tugum
og lánveitingar
til þeirra nema
hundruðum
milljarða
króna. Rann-
sóknarnefnd
Alþingis tengir
Jón Ásgeir við
fjórar fyrirtækjasamstæður: Gaum,
Stoðir/FL Group, Landic Property
og Mosaic Fashions. Í meðfylgj-
andi tölum má sjá skuldastöðu
félaganna/fyrirtækjanna við sex
stærstu banka Íslands í október
2008. Tölur í töflunum hér að
neðan eru í milljörðum króna.
Gaumur
(T.d.101 Capital, 1998, Baugur, BG
Holding, Styrkur)
Jan 07 okt 08
Landsbankinn 47,8 96,4
Kaupþing 71,6 103,0
Glitnir 19,8 54,8
Straumur 23,5 22,7
Spron 1,0 0,7
Sparisjóðabankinn 0,7 1,4
Samtals 164,4 279,1
Samtals í millj. evra 1.737,5 1.918,2
Stoðir/FL Group
(T.d. FL Group hf., FI fjárfestingar, Mater-
ia Invest, Þyrping)
Jan 07 okt 08
Landsbankinn 28,5 83,8
Kaupþing 22,6 43,8
Glitnir 4,4 38,0
Samtals 55,5 165,6
Samtals í millj. evra 586,5 1.138,1
Landic Property
(T.d. 101 Skuggahverfi, Landic Property
hf., Landic Property A/S, Landsafl)
Jan 07 okt 08
Landsbankinn 0 42,0
Kaupþing 0 49,8
Glitnir 0 40,7
Straumur 2,5 7,8
Sparisjóðabankinn 0,7 1,1
Samtals 3,2 141,4
Samtals í millj. evra 34,2 972,1
Mosaic Fashions
Jan 07 okt 08
Kaupþing 72,2 78,7
Samtals 72,2 78,7
Samtals í millj. evra 763,5 541,1
Félög tengd Jóni Ásgeiri
skulduðu bönkunum 660
milljarða við hrunið
Það þýðir að þegar félög í eigu fjöl-
skyldunnar stóðu frammi fyrir
að geta ekki greitt af lánum voru
þeim veitt ný lán til að greiða af
þeim gömlu. Enginn gat hætt á að
Baugur og fyrirtæki honum tengd
færu í þrot. Útlánaskuldbinding-
ar fyrirtækjahópsins voru orðnar
of stórar fyrir allt íslenska banka-
kerfið og leiðir rannsóknarnefnd-
in líkur að því að Baugur Group og
tengd félög hafi haft „tangarhald“
á bönkunum.
Lög segja til um hve mikið bank-
ar mega lána til einstakra við-
skiptamanna og tengdra aðila.
Ljóst er að lán til fyrirtækja í eigu
Jóns Ásgeirs og tengdra aðila fóru
langt yfir þau mörk. Skýrist það
af ólíku mati á túlkun laganna og
ólíku mati á hagsmunum. Til langs
tíma voru til dæmis Jón Ásgeir og
Ingibjörg S. Pálmadóttir, sambýlis-
kona hans, ekki metin sem tengdir
aðilar. Sama á við um Baug og FL
Group og um tíma Baug og Landic
Property.
Bönkunum sjálfum bar að hafa
eftirlit með tengslum viðskiptavina
en þeir virðast hafa lagt sig í fram-
króka við að skera frekar á slík
tengsl fremur en að meta tengda
aðila og haga útlánum í samræmi
við það. Í samantekt sem starfs-
maður Fjármálaeftirlitsins gerði
2004 komst hann að þeirri niður-
stöðu að Kaupþing og Landsbank-
inn hefðu ekki tengt stórar áhættu-
skuldbindingar Baugs og tengdra
aðila. Málunum var ekki fylgt eftir
gagnvart bönkunum og döguðu þau
uppi. bjorn@frettabladid.is
JÓN ÁSGEIR OG NOKKRIR VIÐSKIPTAFÉLAGAR Á myndinni, sem tekin var á aðalfundi FL Group 2006, eru Hannes Smárason,
Skarphéðinn Berg Steinarsson, Þorsteinn Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Smári S. Sigurðsson og Magnús Ármann.
Aðalfundur SA 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar.
Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og hefst opin dagskrá kl. 15.00.
Fundarstjóri er Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
15.00 OPIN DAGSKRÁ í aðalsal Nordica:
Ræða Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins
Ræða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra
ÍSLAND AF STAÐ:
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprota fyrirtækja
16:30 Fundarlok - Vetur kvaddur
Skráning á www.sa.is
DAGSKRÁ
ÍSLA
N
D
A
F STA
Ð
!
Vilmundur Jósefsson Jóhanna Sigurðardóttir Grímur Sæmundssen Birna Einarsdóttir Stefán Friðriksson Svana Helen Björnsdóttir Ingimundur Sigurpálsson
Á næstu dögum verður fjallað um
helstu viðskiptablokkirnar á grundvelli
skýrslu rannsóknarnefndarinnar.