Fréttablaðið - 14.04.2010, Síða 12
14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
12
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
fékk sömu upplýsingar og
þeir ráðherrar sem taldir
voru sýna vanrækslu í
starfi. Meiri raunar en
viðskiptaráðherrann. Þar
sem efnahagsmál eru ekki
á hennar verksviði telst hún
ekki hafa sýnt vanrækslu í
starfi.
Fjórir ráðherrar fengu tækifæri
til andmæla við rannsóknarnefnd-
ina: Árni M. Mathiesen, Björgvin G.
Sigurðsson, Geir H. Haarde og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir. Þeir þrír
fyrstnefndu teljast hafa sýnt van-
rækslu í starfi. Það á ekki við um
Ingibjörgu Sólrúnu.
Við lestur skýrslunnar kemur í
ljós að sú staðreynd sýnir ekki að
Ingibjörg Sólrún hafi hegðað sér á
annan hátt en hinir þrír. Þar sem
hún gegndi stöðu utanríkisráðherra
voru efnahagsmálin hins vegar ekki
á hennar könnu. Skiptir þá engu þótt
hún hafi setið ráðherrafundi um þau
mál, fundi sem Björgvin G. Sigurðs-
son, ráðherra viðskiptamála, fregn-
aði af eftir á.
Í skýrslunni er bent á muninn
á því hvort ráðherrar „fóru stöðu
sinnar vegna með beinar skyldur og
ábyrgð á sviði fjármálamarkaðar og/
eða efnahagsmála, eins og Geir og
Árni, eða áttu yfirleitt hlut að máli
vegna pólitískrar stöðu sinnar innan
ríkisstjórnar en ekki á grundvelli
lagalegrar stöðu sinnar sem ráð-
herra, líkt og Ingibjörg Sólrún“.
Ingibjörg Sólrún bendir á þessa
staðreynd í sínum andsvörum. Þar
fer hún yfir verkaskiptinguna og
bendir á undir hvaða ráðuneyti fjár-
málin og eftirlitsstofnanir heyra.
Oddvitum ríkisstjórnarflokkanna
sé ekki markað sérstakt hlutverk.
„Ég verð því ekki sökuð um að
hafa á einhvern hátt brugðist hlut-
verki mínu sem oddviti Samfylk-
ingarinnar með vísan til reglna sem
gilda um ábyrgð í slíku starfi.“
Mistök í stjórnarsáttmála
Í rannsóknarskýrslunni eru stjórn-
völd almennt átalin fyrir að fara
ekki fram á athuganir á stöðunni. Á
það bæði við um síðasta árið fyrir
hrun, en einnig fyrr.
Samfylkingin myndaði ríkis-
stjórn með Sjálfstæðisflokknum í
maí 2007 og var sambandið innsigl-
að með frægum kossi á Þingvöllum.
Í stjórnarsáttmálanum eru ákvæði
sem nefndin telur að hafi beinlínis
hamlað gegn aðgerðum sem dregið
hefðu úr áhættunni.
Er þar fyrst og fremst átt við þá
stefnu stjórnarinnar að fjármála-
starfsemi gæti áfram vaxið hér á
landi og sótt inn á ný svið í sam-
keppni við önnur markaðssvæði.
Þessari stefnu er ekki opinberlega
breytt fyrr en með falli bankanna í
október 2008. Nefndin telur hins
vegar augljóst að ástæður „fyrir sér-
stökum vandræðum íslensku bank-
anna þegar að kreppti á fjármála-
markaði, væri að verulegu leyti
að leita í áhættusækni og óheftum
erlendum vexti þeirra“ líkt og segir
í skýrslunni.
Tekið skal fram að hér er ekki
verið að vísa til hrunsins 2008, þegar
rætt er um fjármálakreppu, heldur
„minni-kreppuna“ svokölluðu árið
2006. Að mati nefndarinnar mátti
oddvitum stjórnarflokkanna því
vera ljóst að þetta ákvæði ýtti undir
áhættusækni bankanna.
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokk-
urinn settu sér einnig þá stefnu,
vorið 2007, að bankarnir hefðu áfram
höfuðstöðvar sínar hér á landi. Það
hafi komið mönnum í koll, enda efna-
hagsreikningar bankanna margföld
þjóðarframleiðsla landsins.
Stjórn Geirs og Ingibjargar hafi
þannig unnið gegn tveimur helstu
leiðunum til að minnka áhættuna:
flytja hina tröllvöxnu banka úr
landi og minnka efnahagsreikning
þeirra.
Bankarnir mærðir
Meðal þess sem nefndin átelur í
starfi Ingibjargar Sólrúnar sem
utanríkisráðherra, er að hún hafi
mært bankana án þess að fyrir því
hafi verið innistæða. Meðal annars
er þar vísað til ráðstefnu, sem ráðu-
neytið stóð fyrir í febrúar 2008. Heiti
hennar var „Umfjöllun um íslenska
fjármálageirann – hlutverk utan-
ríkisþjónustunnar“. Þar var brýnt
fyrir starfsmönnum utanríkisþjón-
ustunnar að leggjast á árarnar með
fjármálageiranum.
Einnig er vísað til ræðu sem hún
hélt í Danmörku í mars 2008 og við-
tals við Politiken þar í kjölfarið. Þar
sagði hún mat dönsku bankanna á
þeim íslensku vera rangt og skýr-
ast af því að þeir væru í samkeppni.
Íslensku bankarnir stæðu vel.
Spurningum nefndarinnar hvort
ekki hefði verið ráð að fara ítarlega
yfir skýrslur greiningardeildar
Danske Bank og kanna hvort hætta
væri á ferðum, svaraði Ingibjörg
Sólrún rannsóknarnefndinni:
„Eflaust hefði verið full ástæða
til þess að gera það, en ég held að
menn hafi kannski svolítið afgreitt
það með Danske Bank að þetta væri
samkeppnisaðili við íslensku bank-
ana og svona áhöld um það hvað ætti
að taka það, ég veit ekki hvað ég á
að segja, alvarlega, eða kannski hver
væri trúverðugleiki þeirrar úttekt-
ar.“
Í athugasemdum sínum segir
Ingibjörg ræðuna vera byggða á
upplýsingum fagráðuneytanna og
minnir á að Moody’s hafði nýverið
gefið íslensku bankakerfi góða ein-
kunn.
Vissi en gerði ekkert
Helsta gagnrýni nefndarinnar lýtur
að því sama hjá Ingibjörgu Sólrúnu
og öðrum ráðherrum; hún hafi vitað
um slæma stöðu bankanna en ekkert
aðhafst. Hún hafi til að mynda setið
fundi þar sem Seðlabankinn upp-
lýsti um hættuna á Icesave-reikn-
ingunum. Þrátt fyrir að málið félli
ekki undir hennar verksvið hefði
hún, sem oddviti í ríkisstjórn, átt að
biðja um frekari upplýsingar, enda
væri málið af þeirri stærðargráðu
að gæti, líkt og raunin varð, skaðað
íslenskan efnahag. Það ætti að vera
næg ástæða til að grípa til aðgerða.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vildi
ekki tjá sig um efni skýrslunnar
þegar eftir því var leitað í gær.
kolbeinn@frettabladid.is
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
COCA COLA - 33 CL
69
www.europris.is
Landsvirkjun | Háaleitisbraut 68 | sími 515 9000 | www.landsvirkjun.is
Staða og framtíðarsýn
Grand Hótel Reykjavík
Föstudaginn 16. apríl 2010
kl. 13.00–15.00
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
0
07
39
Ársfundur Landsvirkjunar verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík,
föstudaginn 16. apríl kl. 13.00–15.00. Á fundinum verður kynnt
afkoma, fjárhagsstaða og framtíðarsýn fyrir Landsvirkjun. Einnig
verður fjallað um stöðu, horfur og þróun á innlendum og alþjóðlegum
raforkumarkaði.
Fundurinn er öllum opinn og allir velkomnir
Vinsamlegast skráið þátttöku fyrir 15. apríl nk. á www.landsvirkjun.is/skraning,
eða hjá Soffíu Þórisdóttur, soffia@lv.is.
Dagskrá
Skráning kl. 12.30–13.00
Ávarp stjórnarformanns Landsvirkjunar
Ræða fjármálaráðherra
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
Ársreikningur Landsvirkjunar 2009
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Þróun íslensks raforkumarkaðar og framtíðarsýn fyrir Landsvirkjun
Hörður Arnarson forstjóri
Spurningar og umræður
Fundarstjóri: Ragna Sara Jónsdóttir,
yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar
Sömu mistök en ekki sama ábyrgð
Samkvæmt lögum ber utanrík-
isráðherra ekki sömu ábyrgð og
hinir og leiða gjörðir hans því
ekki til vanrækslu í starfi. Tryggvi
Gunnarsson, fulltrúi í rann-
sóknarnefndinni, útskýrði það á
blaðamannafundi nefndarinnar,
en minnti um leið á að til væri
annars konar ábyrgð.
„Það er hins vegar alveg ljóst
að þarna er ráðherrann fyrrver-
andi í pólitísku hlutverki og það
verða þá aðrir að takast á við
það.“
Pólitíska ábyrgðin
„Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og oddviti annars stjórnar-
flokksins, kannast ekki við að rætt hafi verið um hættuna sem kynni að stafa
af Icesave fyrir ríkið: „[Þ]að hafði aldrei komið til tals á þessum vettvangi, m.a.
með Seðlabankanum. Ég leit svo á að þetta væri aðferð til þess að afla sér fjár-
magns rétt eins og að afla sér lánsfjár og kannski tiltölulega kostnaðarminna
fyrir bankann. Ég gerði mér ekki grein fyrir þeirri hættu sem þessu fylgdi.“
Þetta vekur athygli því að Ingibjörg Sólrún var ásamt forsætisráðherra á
fundi með bankastjórn Seðlabanka Íslands 1. apríl 2008 þar sem fram kom
að svo mikið útstreymi væri af Icesave-reikningum Landsbankans að bankinn
myndi einungis þola það í sex daga. Einnig kom fram að breska fjármálaeftirlit-
ið vildi að Landsbankinn færði Icesave-reikningana yfir í breskt dótturfélag.“
Úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar
Tvísaga varðandi Icesave?
SKORTI HEILDARSÝN Nefndin átelur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur fyrir að hafa ekki
brugðist við þegar viðvörunarbjöllurnar glumdu. Þar sem efnahagsmál voru ekki á
hennar verksviði telst hún ekki hafa vanrækt starf sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON