Fréttablaðið - 14.04.2010, Síða 42
26 14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Seljum síðustu eintökin
á gömlu gengi!
Frábær
kaup
Galia
Frábærir skemmtibátar fyrir vötn og sjó. Galia bátarnir eru einstaklega vel
hannaðir, mjög sterkbyggðir, stöðugir og ráða yfir mikilli sjóhæfni. Galia
bátarnir eru allir í hönnunarflokki C og henta því mjög vel til notkunar við
Íslenskar aðstæður. Mjög rúmgóðir bátar, gott skjól fyrir þann sem siglir,
hentar einstaklega vel til veiða, eða allra almennra skemmtisiglinga.
Fossháls 5-7
110 Reykjavík
Sími 551 5600
Fax 551 5601
utilegumadurinn.is
Galia 440
Bátur með 40 hestafla
Yamaha utanborðs-
mótor og kerra
Tilboð
2.498.000.-
Galia 515
Bátur með 100 hestafla
Yamaha utanborðs-
mótor og kerra
Tilboð
3.998.000.-
Galia 610
Bátur með 115 hestafla
Yamaha utanborðs-
mótor og kerra
Tilboð
5.998.000.-
> Ragna, Helgi og Magnús keppa á EM
Evrópumótið í badminton hefst í dag í Manchester í
Englandi en þátttökurétt á mótinu öðlast keppendur
með þátttöku í mótum í Evrópumótaröðinni. Ísland
á þrjá keppendur á mótinu en TBR-fólkið Ragna Ing-
ólfsdóttir, Helgi Jóhannesson og Magnús Ingi Helga-
son keppa fyrir hönd Íslands. Ragna
keppir í einliðaleik og tvenndarleik
með Helga. Helgi keppir í einliða-
leik, tvíliðaleik með Magnúsi Inga
og svo í tvenndarleik með Rögnu.
„Ég set hrikalega mikla pressu á mig með því að
koma heim. Ég tel mikilvægt að ég sýni hvað ég get
því mér finnst ég skulda það. Ég hef verið lengi frá
vegna meiðsla en er núna að sækja þetta hungur
sem hefur dáið inni í mér í meiðslunum,“ segir hand-
boltastjarnan Logi Geirsson sem er kominn aftur í
uppeldisfélagið FH.
Hverjar eru væntingar hans með heimkomunni?
„Auðvitað get ég farið að tala um titla og svona en
ég á eftir að ræða við þjálfara og stjórnarmenn um
hvernig allt fer fram. Ég er ekki kominn hingað til að
fela mig, ég ætla að blómstra. Svo er maður með
konu og við eigum von á barni í sumar, maður
er að skrifa bók og svo er það einkaþjálfunin.
Það eru margir hlutir sem tvinnast saman í þá
ákvörðun að koma heim,“ segir Logi.
„Mörgum finnst þessi ákvörðun mín furðuleg og ég fæ
þúsund spurningar í sms-um. En ég ætla mér að blómstra
næsta vetur.“
Logi hefur síðustu ár leikið með Lemgo í Þýskalandi. Hann
gerir tveggja ára samning við FH en félagið ætlar ekki að
standa í vegi fyrir því að hann fari aftur út eftir næsta tímabil
ef eitthvað spennandi kemur upp.
Hann neitaði tilboði frá liði í Dúbaí. „Ég var mjög stutt
frá því að stökkva á það, var farinn að sækjast í ævintýra-
mennsku. Ég var kominn með leið á þessu hjá Lemgo og
vildi prófa eitthvað nýtt,“ segir Logi sem mun vera í
treyju númer tíu hjá FH.
“Ég er fæddur 10.10. og það er árið 2010. Ég er að
skrifa bók sem heitir 10.10.10. Svo spilaði faðir minn
númer 10 og ég vil heiðra hann sem leikmann. Þessi
tala er bara fullkomin í mínum augum,“ segir Logi.
Iceland Express deild karla
Undnaúrslit, 4. leikur
Njarðvík-Keflavík 83-89 (39-47)
Stig Njarðvíkur: Nick Bradford 20 (6 frák.,
7 stoðs.), Magnús Þór Gunnarsson 17, Jóhann
Árni Ólafsson 11, Friðrik Stefánsson 7 (8 frák.),
Egill Jónasson 7, Rúnar Ingi Erlingsson 7, Páll
Kristinsson 7 (7 fráköst), Kristján Sigurðsson 3,
Guðmundur Jónsson 2, Hjörtur Einarsson 2.
Stig Keflavíkur: Draelon Burns 21, Hörður Axel
Vilhjálmsson 20 (5 stoðs.), Uruele Igbavboa 20,
Gunnar Einarsson 12, Sigurður Gunnar Þorsteins
son 11 (14 frák.), Sverrir Þór Sverrisson 3, Jón
Nordal Hafsteinsson 2.
Enska úrvalsdeildin
Chelsea-Bolton 1-0
1-0 Nicolas Anelka (43.).
STAÐA EFSTU LIÐA
Chelsea 34 24 5 5 85-30 77
Man. United 34 23 4 7 77-27 73
Arsenal 33 22 5 6 75-34 71
Man. City 33 17 11 5 69-41 62
Tottenham 32 17 7 8 58-32 58
Liverpool 34 16 8 10 54-33 56
Aston Villa 32 14 12 6 44-32 54
Everton 33 13 11 9 52-44 50
Enska b-deildin
Reading-Newcastle 1-2
Gylfi Þór Sigurðsson og Brynjar Björn Gunnarsson
spiluðu allan leikinn.
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Chelsea náði fjögurra
stiga forskoti á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar með 1-0
heimasigri á Bolton í gær. Leikn-
um hafði áður verið frestað þar
sem Chelsea var að spila í undan-
úrslitum ensku bikarkeppninnar
um helgina.
Chelsea hafði unnið síðustu
fjóra deildarleiki sína og skorað í
þeim 17 mörk og það bjuggust því
margir við stórsigri en svo fór nú
ekki. Chelsea náði þó öllum stig-
unum í hús og er komið í lykil-
stöðu í baráttu um enska meist-
aratitilinn.
Nicolas Anelka skoraði eina
mark leiksins þegar hann skall-
aði inn frábæra fyrirgjöf Didiers
Drogba á 43. mínútu. Þetta var
fyrsta mark Frakkans síðan 30.
janúar. Chelsea-menn voru ljón-
heppnir að fá ekki á sig tvö víti í
þessum leik en John Terry varði
boltann með hendi á marklínu á
62. mínútu leiksins.
„Þetta voru tvö greinileg víti.
Það er engin smá öxl á John
Terry ef þetta hefur farið í öxl-
ina á honum,“ sagði Owen Coyle,
stjóri Bolton eftir leikinn. -óój
Enska úrvalsdeildin í gær:
Chelsea náði 4
stiga forskoti
MIKILVÆGT MARK Nicolas Anelka fagnar
sigurmarki sínu í gærkvöldi. MYND/AFP
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar eru komn-
ir í úrslitaeinvígið um Íslands-
meistaratitilinn í sjötta sinn á síð-
ustu níu árum eftir sex stiga sigur
á nágrönnum sínum í Njarðvík, 89-
83 í Ljónagryfjunni í gær. Kefla-
vík vann einvígið þar með 3-1 og
mætir annaðhvort KR eða Snæfelli
í úrslitaeinvíginu.
Keflvíkingar voru skrefinu á
undan allan leikinn og þrátt fyrir
hetjulega baráttu heimamanna
þá náðu þeir aldrei að vinna upp
slæman kafla í upphafi annars
leikhluta þar sem Njarðvíkurlið-
ið skoraði ekki í fjórar mínútur og
Keflavík komst þrettán stigum yfir
með því að skora 11 stig í röð.
Njarðvíkingar náðu að minnka
muninn niður í tvö stig í loka-
leikhlutanum en tókst aldrei
að jafna leikinn eða komast
yfir. Nick Bradford og Magn-
ús Þór Gunnarsson reyndu allt
sem þeir gátu í lokin en Kefl-
víkingar voru bara of sterk-
ir. Draelon Burns inn-
siglaði sigurinn með
þriggja stiga körfu
af Njarðvíkurmerk-
inu, langt fyrir
utan, þegar 20 sek-
úndur voru eftir af
leiknum og Hörð-
ur Axel Vilhjálms-
son kláraði síðan
leikinn á vítalín-
unni.
„Þetta tókst
en þetta var erf-
itt. Þetta var hörkulið
sem við vorum að
leggja að velli.
Dre kláraði leik-
inn með því að
hitta þristinum
tveimur metrum
fyrir utan. Þetta
hefði getað farið
hvernig sem
er. Sem betur
fer hitti hann
úr þessu skoti,“
sagði Keflvíking-
urinn Hörður Axel
Vilhjálmsson í við-
tali við Guðjón Guð-
mundsson, í útsend-
ingu Stöð 2 Sport.
Hörður Axel var með 20 stig og 5
stoðsendingar og átti frábært ein-
vígi bæði í sókn og ekki síst í vörn-
inni.
„Við erum að toppa á hárréttum
tíma. Það er enginn búinn að tala
um okkur í allan vetur. Við skilj-
um það ekki að enginn sé búinn að
tala um okkur í einhverri titlabar-
áttu en ég held að við séum að sýna
fram á annað núna,“ sagði Hörður.
Hörður átti mjög flottan leik alveg
eins og Draelon Burns, Gunnar
Einarsson og Uruele Igbavboa.
Njarðvíkingar grófu sér of djúpa
gröf í fyrri hálfleiknum og tókst
ekki að komast upp úr henni þrátt
fyrir að gefa allt í seinni hálfleik-
inn. Nick Bradford og Magnús Þór
Gunnarsson fóru á kostum í seinni
hálfleik þar sem þeir voru með 28
af 37 stigum sínum en það var ekki
nóg. Það vóg sennilega þyngst að
reynsluboltarnir Friðrik Stef-
ánsson og Páll Kristinsson hittu
aðeins úr 5 af 18 skotum sínum en
flest þeirra voru tekin úr dauða-
færi undir körfunni. Rúnar Ingi
Erlingsson og Jóhann Árni Ólafs-
son áttu hins vegar sinn besta leik
í seríunni og liðið hefði verið í allt
annarri stöðu fyrir leikinn í gær
ef þeir hefðu spilað jafnvel í fyrstu
leikjunum. Þegar upp er staðið er
það örugglega svekkjandi fyrir
Njarðvíkurliðið að horfa upp á
fjóra síðustu heimaleiki sína tap-
ast á tímabilinu. Það kemst ekk-
ert lið langt með slíkan árangur á
heimavelli.
„Við vorum nálægt en þeir geta
þakkað Kananum sínum fyrir
þetta stóra skot. Þeir geta þakkað
honum og hinum útlendingnum því
þeir björguðu þeim,“ sagði Sigurð-
ur Ingimundarson, þjálfari Njarð-
víkinga í viðtali á Stöð 2 Sport.
„Við spiluðum ekki illa en það
voru of margir hjá mér sem voru
að gera of lítið í sókninni. Það
dugði ekki í svona leik. Það vant-
aði helvíti lítið upp á hjá okkur
og við vorum nálægt þessu. Við
byrjuðum bara of seint og töpin
í fyrstu tveimur leikjunum voru
bara of mikið fyrir okkur,“ sagði
Sigurður.
Keflavík mætir annaðhvort
Íslandsmeisturum KR eða bik-
armeisturum Snæfells sem spila
algjöran úrslitaleik um sætið í
DHL-höllinni annað kvöld.
ooj@frettabladid.is
Keflvíkingar komnir í lokaúrslitin
Njarðvíkingum mistókst að tryggja sér annað líf og eru komnir í sumarfrí eftir 83-89 tap á heimavelli.
Njarðvík tapaði fjórum síðustu heimaleikjum sínum. Keflavík mætir KR eða Snæfelli í úrslitaeinvíginu.
RISAKARFA Draelon Burns
innsiglaði sigur Keflvíkinga
í gær.
FLOTTUR Í EINVÍGINU Á MÓTI NJARÐVÍK Hörður Axel Vilhjálmsson spilaði
mjög vel í gær sem og öllum fjórum leikjunum á móti Njarðvík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LOGI GEIRSSON: KOMINN HEIM ÚR ATVINNUMENNSKUNN OG SPILAR MEÐ UPPELDISFÉLAGINU NÆSTA VETUR
Ekki kominn til að fela mig heldur til að blómstra