Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2010, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 14.04.2010, Qupperneq 46
30 14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM „Búllan er klárlega besti bitinn í bænum! Tilboð aldarinnar, kokteilsósa með frönskunum, bernaise með borgaranum og tvær kók til að skola þessu niður.“ Anna Rakel Róbertsdóttir, grafískur hönn- uður, fyrirsæta og plötusnúður. Hópur listamanna setti upp verkið Nei, Dorrit í Iðnó á mánudagskvöld. Verkið er byggt á frægu tímaritsviðtali sem birtist í mars í fyrra. Á meðal gesta voru leikar- inn Ólafur Darri, mynd- listarmennirnir Ragnar Kjartansson og Halli Jóns og prófessorinn Guðmundur Oddur – oftast kallaður Goddur. Sigga á Boston mætti einnig á svæðið ásamt sjálfstæð- iskonunni Áslaugu Friðriksdóttur. Forsetafrúin Dorrit Moussaieff mætti ekki á sýninguna. Gamanleikritið 39 þrep hefur slegið í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur. Alls hafa verið sýndar 45 sýningar og ekkert lát virðist vera á aðsókn Leikstjóri sýningar- innar er leikhússtjór- inn sjálfur, María Sigurðardóttir, en leikarar í sýning- unni eru Jóhann G. Jóhannsson, Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson og Þrúð- ur Vilhjálmsdóttir. Nú berast þær fregnir að norðan að 39 þrep verði sett upp í Borgar- leikhúsinu í maí og ætti margur að gleðjast yfir því. Óðum styttist í að sjónvarpsþulur RÚV hverfi af skjáum landsmanna. Eva Sólan, ein sú reyndasta í bransanum, er greinilega farin að huga að nýjum starfsvettvangi því hún hefur tekið sæti á lista fram- sóknarmanna fyrir komandi bæj- arstjórnarkosningar í Hafnarfirði. Eva skipar fjórða sæti listans. Það er þó á brattann að sækja fyrir þuluna því Framsókn náði ekki manni inn í síðustu sveitarstjórn- arkosning- um. - afb, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI Síðasti þáttur Spaugstofunnar í bili verður á laugardaginn. Það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart að sá þáttur verði að mestu leyti helgaður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var á blaðamannafundi á mánudagsmorgun í Iðnó. Pálmi Gestsson, einn af forkólfum Spaugstofunnar, segir þá félaga hafa aðeins verið að rýna í skýrsluna á Netinu og fréttir af henni. „Við erum svona að velta því fyrir okkur hvernig við tökum á þessu. Við erum ekki komnir með neinar skýr- ar línur fyrir þáttinn á laugardaginn, hann er í vinnslu,“ útskýrir Pálmi og bætir við að þeir þurfi kannski ekkert að skrifa neitt handrit, sum ummælanna í skýrslunni geti bara vel staðið á eigin fótum í Spaugstofunni. Pálmi segir skýrsluna hafa komið sér á óvart. „Hún er svo afdráttarlaus og skýr og staðfesti í raun þá hluti sem alla grunaði en höfðu ekki hugmynd um að væri fótur fyrir,“ segir Pálmi. „Sárast í þessu öllu er kannski að ég hélt að ég byggi í vestrænu og óspilltu landi en vakna upp, á miðjum aldri, í drullupolli.“ Þegar talið berst hins vegar að framtíð Spaugstofunnar sjálfrar segir Pálmi að þeir viti ekki betur en að þessi þáttur verði þeirra síðasti. Páll Magnússon útvarpsstjóri tekur ekki undir þau orð. Hann segir enga ákvörðun hafa verið tekna um framhaldið, hún ætti þó að liggja fyrir í maí. Stöðugar sögusagnir hafa verið á kreiki um að Spaugstofan hætti eftir þetta ár en hún hefur verið í loftinu síðasta 21 ár. „Við setjum niður haustdagskrána í maí og þá kemur þetta allt í ljós,“ segir Páll. - fgg Kveðja með rannsóknarskýrsluspaugi SÍÐASTI OG ÞÓ Á laugardaginn fer 381. þáttur Spaug- stofunnar í loftið. Ekki liggur fyrir hvort það verði svanasöngur fjórmenninganna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Ég er mjög leiður og sorgmæddur yfir þessu. Þetta fór algjörlega úr böndunum,“ segir Már Vilhjálms- son, skólameistari menntaskólans við Sund. Hann mætti ásamt nokkr- um kennurum skólans á skólalóð Verslunarskóla Íslands í gærmorg- un til að moka upp skít sem nokkrir nemendur MS höfðu dreift við inn- gang Versló en skólarnir mætast í úrslitum ræðukeppninnar Morfís á föstudaginn í stóra sal Háskóla- bíós. Már segir rannsókn málsins í fullum gangi innanhúss og hann búist við því að niðurstaða í því verði klár í dag. Finnur Ágúst Ingimundarson, formaður Málfundarfélagsins í Versló, hvatti nemendur í skólan- um til að sýna stillingu og grípa ekki til hefndaraðgerða. „Nei, skömmin er þeirra. Við fengum að hjálpa til við að skila skítnum aftur og dreifa honum á túnin, með góðfúslegu leyfi skólameistarans,“ segir Finnur. Hefð hefur myndast fyrir því að skólar sem mætast í úrslitum Morfís reyni að gera andstæð- ingum sínum lífið leitt í úrslita- vikunni með léttum hrekkjum en Már segir hins vegar að þarna hafi menn farið rækilega yfir strikið. „Menn hafa látið spennuna hlaupa með sig í gönur. Auðvitað er mikill taugatitringur vegna úrslitanna en þetta var ósmekklegt og leiðinlegt fyrir okkur og ekki síst leiðinlegt fyrir Versló,“ segir Már sem mok- aði skítinn upp með skóflur og hjól- börur einar að vopni því ekki gafst tími til að finna aðra menn í djobb- ið. „Ég er heldur ekkert of góður til að moka skít og maður ber ábyrgð á sínum nemendum. Mér þótti hins vegar vænst um að ný stjórn nem- endafélagsins okkar mætti líka og hjálpaði okkur, henni var ekki skemmt yfir þessu.“ Skólameistarinn bætir því við að nú sé rétti tíminn til að bera á og að skíturinn sem var við inngang Versló hafi verið nýttur til góðs. „Við notuðum hann til að bera á hjá okkur, það var alger óþarfi að henda honum,“ útskýrir Már og tekur fram að hann sé í góðu sam- bandi við yfirstjórn Verslunarskól- ans og hrósar henni fyrir bæði þolinmæði og skilning. „Það gætu verið skemmdir í anddyrinu en við munum bara bæta það.“ freyrgigja@frettabladid.is FINNUR ÁGÚST INGIMUNDARSON: VERSLINGAR SÝNI STILLINGU Skólameistari MS fjarlægði skít af lóð Verzlunarskólans TONN AF SKÍT Már Vilhjálmsson, skólameistari MS, mætti sjálfur með skóflu og mokaði upp skítinn sem nemendur hans höfðu sturtað við inngang skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Hæfasti maðurinn sem tekinn var í viðtal var ráðinn,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fram- kvæmdastjóri Útflutningsskrif- stofu íslenskrar tónlistar, Útón. Greint var frá því í gær að Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð, hefði verið ráðinn framkvæmda- stjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves en Útón tók nýverið við rekstri hátíðarinnar. Alls sóttu 18 manns um starfið og voru nokkr- ir af þeim boðaðir í viðtöl í gær og fyrradag. Anna Hildur vill ekki upplýsa hverjir sóttu um starfið, né heldur hversu margir voru boð- aðir í viðtal. „Ástæðan fyrir því að Grím- ur er ráðinn er sú að hann hefur mikla reynslu af tónleikahaldi, hann hefur séð um tónleikahátíð- ir og hefur líka reynslu af rekstri og starfsmannahaldi,“ segir Anna Hildur. Grímur Atlason hættir sem sveitarstjóri í Dalabyggð eftir kosningar í vor og var á fundi í sveitinni þegar Fréttablaðið náði í hann. „Það er búið að byggja upp alveg feikilega öfluga hátíð sem allir þekkja,“ segir Grímur. „Ég er með ákveðnar áherslur í tónleika- haldi sem þeir sem mig þekkja vita hvernig eru. Mér finnst tækifærin vannýtt.“ Grímur hefur sótt tónleikahátíðir stíft síðustu ár og segir að ýmislegt megi læra af þeim. Samstarf milli hátíða sé til dæmis mikilvægt til að koma hljómsveitum á framfæri og hann segist vilja auka mögu- leika íslensku hljómsveitanna á því að vera bókaðar erlendis í kjöl- far hátíðarinnar. „Senan á Íslandi er svo lífleg og öflug,“ segir Grím- ur. „Þess vegna er Airwaves og það er það sem ég vil halda áfram að byggja og styrkja.“ - hdm, afb Grímur tekur við Airwaves GRÍMUR ATLASON Flytur í bæinn og tekur við starfi framkvæmdastjóra Ice- land Airwaves. LÁRÉTT 2. teikning af ferli, 6. ógrynni, 8. fiskur, 9. flan, 11. kusk, 12. spergill, 14. bóla, 16. samtök, 17. tæki, 18. þangað til, 20. ullarflóki, 21. köttur. LÓÐRÉTT 1. áræða, 3. slá, 4. heilmikill, 5. skor- dýr, 7. fuglategund, 10. forsögn, 13. sigað, 15. vingjarnleiki, 16. í viðbót, 19. vörumerki. LAUSN LÁRÉTT: 2. graf, 6. of, 8. áll, 9. ras, 11. ló, 12. aspas, 14. hátta, 16. aa, 17. tól, 18. uns, 20. rú, 21. kisi. LÓÐRÉTT: 1. þora, 3. rá, 4. allstór, 5. fló, 7. fashani, 10. spá, 13. att, 15. alúð, 16. auk, 19. ss.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.