Fréttablaðið - 21.04.2010, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 17
AF NETINU
Í almennum ritum um sögu Frakklands á þriðja og fjórða
áratug síðustu aldar greinir frá
því að þá var andúð á lýðræði
útbreidd í landinu, uppivöðslu-
samir flokkar geystust um með
hávaða og látum, haldnir voru
mótmælafundir sem lyktaði
stundum með óeirðum. Í febrúar
1934 var jafnvel reynt að ráðast
á franska þinghúsið, og lágu þá
margir í valnum; mikill ótti var
við valdarán. Æ síðan hafa þess-
ir óeirðaseggir og forsprakkar
þeirra fengið mjög slæma pressu,
þeir eru kenndir við „fasisma“,
umsvif þeirra eru tengd við það
sem gerðist á þessum árum víða
annars staðar í álfunni, og Frakk-
ar hafa jafnan prísað sig sæla
fyrir að ekki skuli neitt verra hafa
hlotist af, þeir hafi sloppið við ein-
ræði af því tagi sem ruddi sér þá
til rúms á Ítalíu, í Þýskalandi, á
Spáni og víðar. En það var þó ekki
stjórnmálamönnum að þakka, ef
betur er rýnt í sögu þessara ára
kemur í ljós að stór hluti ábyrgð-
arinnar á þessu ófremdarástandi
lá hjá þeim; stundum liggur við
að maður hugsi, að þeir hafi verið
heppnir að sleppa eins vel og þeir
gerðu eftir allt saman.
Á þessum tíma virtist stjórn-
málamannastéttin nánast alveg
ráðvillt og duglaus. Það var eins
og hún gæti ekki ráðið við neitt af
þeim vandamálum sem þá steðj-
uðu að landsmönnum, enda virt-
ust stjórnmálamenn naumast
hafa neina stefnuskrá eða sann-
færingu. Hins vegar tók hvert
fjármálahneykslið við af öðru, og
teygðu þau sig oft upp í æðstu stig
stjórnmálanna. Þekktast þeirra
er e.t.v. „Staviski-málið“ svo-
kallaða; því lauk á þann hátt að
svikahrappurinn Staviski stytti
sér aldur, en sá orðrómur gekk
þó fjöllunum hærra að honum
hefði verið komið fyrir kattarnef
til að bjarga þeim mörgu pípu-
höttum sem flæktir voru í málið.
Sem dæmi um andrúmsloftið í
landinu má nefna að sagt var um
þingmenn róttæka flokksins að
þeir væru „eins og radísur, rauðir
að utan en hvítir að innan og allt-
af við hliðina á smjörinu“. Þegar
„þriðja lýðveldið“ lagði upp laup-
ana voru þeir færri sem syrgðu
það.
Síðan eru liðin ár og dagur. Og
nú fyrir skömmu, 14. og 21. mars,
voru haldnar héraðsstjórnarkosn-
ingar í Frakklandi, en þeirra var
beðið með nokkurri eftirvæntinu,
því þetta voru fyrstu kosningarn-
ar í landinu síðan Sarkozy var
kjörinn forseti. Samkvæmt öllum
fjölmiðlum varð niðurstaðan sú
að vinstri flokkarnir unnu stór-
sigur en stjórnarflokkarnir biðu
nánast afhroð. Í fyrri umferð-
inni fengu sósíalistar tæp þrjátíu
af hundraði og voru langstærsti
flokkur landsins, „græningjar“
með Daniel Cohn-Bendit og Evu
Joly í broddi fylkingar fengu rúm
tólf af hundraði og kommúnist-
ar ásamt bandamönnum sínum
rúm sex af hundraði, og þótti það
allmerkilegt “come back”. Sam-
anlagt fengu allir vinstri flokk-
arnir nálægt fimmtíu af hundr-
aði. Flokkur Sarkozys fékk hins
vegar aðeins rúm tuttugu og sex
af hundraði, og hafði engan stór-
an bandamannaflokk að styðja
sig við. Þetta fannst fréttaskýr-
endum hranaleg hirting.
En þó var eitt sem skyggði
dálítið á gleði sósíalista, án þess
að vera nokkur huggun fyrir Sar-
kozy: fleiri sátu nú hjá en nokk-
urn tíma áður í sambærileg-
um kosningum. Reyndar hefur
kosningaþátttaka í Frakklandi
verið að minnka jafnt og þétt,
eina undantekningin var forseta-
kosningin 2007 þegar frambjóð-
andanum Sarkozy tókst að skapa
spnnu, en ef undanskildar eru
„Evrópukosningarnar“ sem eng-
inn tekur alvarlega, hefur tala
þeirra sem sitja hjá aldrei áður
farið yfir helming manna á kjör-
skrá, a.m.k. ekki um langt skeið:
nú var hún rúmlega fimmtíu og
þrjú af hundraði. Við þetta bætt-
ist annað: „þjóðernisfylking“ hins
illræmda Le Pen, sem sumir voru
á leiðinni að jarða, reis nú aftur
upp eins og Þorgeirsboli og fékk
tæp tólf af hundraði. Þetta þótti
þeim mun merkilegra fyrir þá
sök að sjálfur er Le Pen úr leik
fyrir aldurs sakir, þótt hann virð-
ist furðu ern, og er flokkurinn í
höndum dóttur hans sem enn er
ekki föst í sessi.
Í rauninni var ekki hægt að
skýra þetta nema á einn hátt:
fremur en að vera „sigur“ vinstri
manna sýndu þessi kosningaúrslit
djúpstætt vantraust og kannske
andúð á stjórnmálamönnum yfir-
leitt. Kannske var atkvæðatala
sósíalista einnig mótmæli fremur
en stuðningur við leiðtoga flokks-
ins, sem eru ekki einu sinni rauð-
ir að utan. Þetta heyrir maður
alls staðar ef maður gefur gaum
að hvíslingum fólksins, menn
hafna þeim stjórnmálamönn-
um sem standa ráðalausir gagn-
vart atvinnuleysi og versnandi
lífskjörum en boða þær umbæt-
ur í heilbrigðismálum að loka
sjúkrahúsum (einkum fæðingar-
deildum), þær umbætur í skóla-
málum að fækka kennurum og
draga úr kennslu, og annað eftir
því. Þótt ekki geysi neinir flokk-
ar óeirðaseggja um götur að svo
stöddu, eru þessi þöglu mótmæli
síst betri.
Radísurnar
Einar Már Jónsson
sagnfræðingur
Í DAG
Landsmenn standi saman
Það er óendanlega dapurlegt að sjá bæina og jarðirnar
undir Eyjafjöllum þar sem allt er á kafi í ösku. Það þarf
ofurmannlegt þrek til að lifa og búa í svörtum öskumekki
dag eftir dag. Taki gosið sig upp af nýjum krafti er hætt
við að ein fegursta sveit landsins, byggðin undir Eyja-
fjöllum, fari í eyði. Ekki er vafi á að landsmenn munu þá
standa saman, allir sem einn, að hjálpa þeim sem tapa
öllu sínu. Við Íslendingar kunnum það.
http://blog.eyjan.is/hjalmarsveinsson/2010/04/20/
veruleikasjokk/
Hjálmar Sveinsson
Reiða fólkið í návígi
Fólk er mjög reitt og sumir reiðari en aðrir. Skil þá, sem
lýsa reiði sinni í návígi við heimili afbrotafólks í pólitík.
Tel, að svar afbrotafólks sé rangt. Ekki má veifa börnum
sínum eða afa þeirra framan í mótmælendur. [...] Hins
vegar tel ég rangt að fara svona að fólki, sem hefur rænt
bankana. Á þessu stigi málsins. Uppgjörið við fortíðina er
annars staðar og hefur sinn gang. Þegar dómstólar byrja
hins vegar að sýkna afbrotafólk, má fjandinn verða laus
mín vegna.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Hafðu samband
sími
Ert þú í Vildarþjónustu
Arion banka?
Arion banka arionbanki.is
ávinning
á
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Uppþvottavélar
frá Siemens.
Hraðvirkar,
hljóðlátar
og vinnusamar.