Fréttablaðið - 26.04.2010, Side 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
SÖLUMIÐSTÖÐ með vörum frá hönnuðum og hand-
verksmönnum á Íslandi verður að öllum líkindum opnuð
á Egilsstöðum í byrjun júní. Þar verður til sölu vöruhönnun,
nytjalist, gæðahandverk, skartgripir, föt, keramik og margt
fleira þjóðlegt og gott. www.honnunarmidstod.is
Eftir að hafa gengið upp á Fimm-
vörðuháls og skoðað eldgosið sem
hófst hinn 20. mars fékk glerhand-
verkskonan Sigríður Sigurðardótt-
ir þá hugmynd að búa til verk með
vísun í gosið. „Þegar gosinu lauk
ætlaði ég hins vegar að hætta við
en um leið og gosið í Eyjafjalla-
jökli hófst flaug ég aftur í gang,“
segir Sigríður sem hefur búið
til kertastjaka, glasamottur og
klukkur eftir mynd sem hún tók
á Fimmvörðuhálsi. Verkin sýna
einnig staðsetningu gossins á
landakortinu og er meðal annars
ætlað að höfða til ferðamanna.
Verkin er að finna í Handverks-
húsinu í Mosfellsbæ sem Sigríður
rekur ásamt sjö öðrum handverks-
konum en einnig í Gullfosskaffi
þar sem ferðamenn eru tíðir gest-
ir. Sigríður segir allt eins von á
því að hún geri fleiri útgáfur og
jafnvel verk með vísun í gosið í
Eyjafjallajökli. „Svo lengi sem ég
fæ hugmyndir þá held ég áfram,“
segir Sigríður sem hefur unnið við
glerlist frá árinu 2003.
Hún gerir allt frá skartgrip-
um og upp í heilu matarstellin og
segir starfið afar skemmtilegt.
En hvernig skyldi vera umhorfs
heima hjá henni, eru verk eftir
hana sjálfa uppi um alla veggi?
„Nei, það get ég nú ekki sagt en
hins vegar tek ég nýja hluti með
mér heim og hef þá á borðinu hjá
mér á meðan ég er að meðtaka
þá.“ vera@frettabladid.is
Eldsumbrot mótuð í gler
Eldgosið á Fimmvörðuhálsi kveikti hugmyndir að nýjum verkum hjá glerhandverkskonunni Sigríði Sig-
urðardóttur en hún hefur gert kertastjaka, glasamottur og klukku með vísun í gosið.
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu
Takmarkað magn af IQ-Care heilsudýnum
og Proflex stillanlegum rúmum
á sértilboði frá framleiðanda
Proflex 2x80x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 339.900 - verð áður kr. 429.000
Proflex 2x90x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 349.900 - verð áður 459.000
Listh
Fermingartilboð
sjá
www.svefn.is
Söluaðilar.: Garðheimar - Húsasmiðjan www.weber.is
Gas og kolagrill ásamt
úrvali af aukahlutum
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Sigríður á allt eins von á því
að verkin verði fleiri en hún
heldur áfram svo lengi sem
hún fær hugmyndir. Verk
hennar má skoða nánar á
glerkunst.com.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R