Fréttablaðið - 04.05.2010, Síða 2
2 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Valdís, þurftirðu að toga í
marga spotta?
„Já, ég togaði í marga spotta og
kom einum hrafni fyrir í tónlistar-
húsinu.“
Valdís Viðarsdóttir, forstöðumaður Menn-
ingarmiðstöðvarinnar í Listagili, hefur
hannað hrafna sem blaka vængjunum
þegar togað er í spotta.
UMHVERFISMÁL Eyþór Arnalds, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Árborg, gagnýnir uppbyggingu í
fuglafriðlandi við Ölfusá og að sett
skuli hafa verið út hræ af skörfum
til að fóðra erni.
„Það er furðulegt að raska ró
fuglafriðlandsins með því annars
vegar að dreifa þar fuglshræjum til
að lokka erni í varplandið og hins
vegar með því að reisa þar kaffi-
hús og leggja út í malbikunarfram-
kvæmdir,“ segir Eyþór.
Nýlega gerði Árborg nýjan samn-
ing við Fuglavernd um umsjón með
friðlandinu í Flóa og uppbyggingu
þar. Jóhann Óli Hilmarsson, for-
maður félagsins, hafnar algerlega
fullyrðingum Eyþórs um að fram-
kvæmdirnar eða það að leggja út æti
fyrir erni raski lífríkinu í friðland-
inu. Þær séu aðeins „pólitískt mold-
viðri“ í aðdraganda kosninga.
„Ég held að hann ætti að einbeita
sér að sellóinu bara og láta það í
friði sem hann hefur ekki hundsvit
á og veit ekkert um og er að blaðra
um eins og vitleysingur úti um allar
jarðir,“ segir Jóhann Óli sem kveð-
ur alvanalegt að ernir
séu fóðraðir.
Það sé víða
gert þegar
harðindi
séu mest
á vetr-
um.
Jóhann segist sjálfur hafa lagt út
skarfahræin með félögum sínum
og hann hafi oft gert það áður.
Það hafi þó ekki borið tilætlaðan
árangur í þetta skipti heldur ein-
göngu laðað að sér hrafna og máva.
Hætt sé að bera æti í ernina áður
en varp annarra fugla hefst. Hann
hafi ætlað að vera búinn að fjar-
læga skarfahræin fyrir vígslu
nýs fuglaskoðunarhúss. „En
það kom þarna eitthvert fólk
degi of snemma og sá þetta
– annars hefði aldrei neinn vitað af
þessu,“ segir hann.
Eyþór gagnrýnir einnig að
Jóhann Óli, sem fulltrúi Vinstri
grænna í umhverfisnefnd Árborg-
ar, hafi setið beggja vegna borðs-
ins í samningum sveitarfélags-
ins og Fuglaverndar, þar sem
Jóhann er formaður eins og fyrr
segir. Jóhann sat fund umhverfis-
nefndar þegar samningur Árborg-
ar við Fuglavernd var samþykkt-
ur. „Mér finnst alltaf heppilegra
að menn víki sæti þegar fjallað
er um mál sem eru þeim tengd,“
segir Eyþór.
Jóhann segir það aðeins hafa
verið hugsunarleysi hjá sér að
sitja fundinn þegar samningurinn
var samþykktur. „Ég var kallaður
þarna inn sem varamaður á einn
fund. Þessi samningur er búinn að
vera tilbúinn í þrjú ár og hann var
ekkert ræddur efnislega á
þessum fundi,“ ítrekar
Jóhann.
gar@frettabladid.is
Mávar átu skarfahræ
ætluð örnum í Flóa
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Árborg segir það ógna lífríki í fuglafriðlandi
í Flóa að leggja þar út skarfahræ fyrir erni. Hann gagnrýnir einnig fulltrúa
Vinstri grænna fyrir að sitja beggja vegna borðs í samningum við sveitarfélagið.
Ég held að hann ætti
að einbeita sé að sell-
óinu bara og láta það í friði
sem hann hefur ekki hunds-
vit á og veit ekkert um og er
að blaðra um eins og vitleys-
ingur út um allar jarðir.
JÓHANN ÓLI HILMARSSON
FORMAÐUR FUGLAVERNDAR OG VARA-
MAÐUR Í UMHVERFISNEFND ÁRBORGAR.
HAFÖRN Þó að ernir verpi ekki á
flatlendinu í fuglafriðlandinu í
Flóanum lögðu velunnarar
þeirra í Fuglavernd út
æti fyrir þá síðla
vetrar.
DÓMSMÁL Uppákoman í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir helgi, þar
sem tveir voru handteknir í dómsal
eftir að hafa neitað að yfirgefa hann
að kröfu dómara, verður skoðuð í
dómsmálaráðuneytinu. Þetta segir
Ragna Árnadóttir, dómsmála- og
mannréttindamálaráðherra.
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi
eins þeirra nímenninga sem verið
var að rétta yfir fyrir árás á Alþingi,
hefur sagt að mannréttindi hafi
verið brotin á þeim sem lögregla bar
út úr dómsalnum enda skuli réttar-
höld vera opin öllum. Ragnar sendi
í kjölfarið bréf á dómstjóra Héraðs-
dóms Reykjavíkur og ráðherra þar
sem hann krefst þess að svona nokk-
uð komi aldrei fyrir aftur.
Ragna áréttar að dómari stýri
þinghaldi og hafi til þess ríkar
heimildir. „En ráðuneytið mun
skoða málið eins og lagaheimildir
leyfa,“ segir hún. „Til að afla gagna
í málinu mun dómsmálaráðuneytið
senda erindi lögmannsins til emb-
ættis Lögreglustjórans á höfuðborg-
arsvæðinu til umsagnar. Auk þess
munum við óska eftir því að vera
upplýst um viðbrögð dómstjóra
héraðsdóms við erindinu.“
Ragna bendir að lokum á það
að þeir sem telji að lögreglan hafi
brotið gegn sér eigi að beina kærum
sínum til ríkissaksóknara. - sh
Dómsmálaráðherra segir dómara hafa ríkar heimildir til að stýra réttarhöldum:
Mun skoða handtökurnar í dómsal
SKOÐAR MÁLIÐ Ragna Árnadóttir segir
að þeir sem telja að lögreglan hafi brot-
ið á sér eiga að kæra það. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN, AP Tony Hayward, framkvæmdastjóri olíu-
félagsins BP, segir að fyrirtækið muni greiða kostnað-
inn við að hreinsa upp olíu frá olíuborpallinum Deep-
water Horizon, sem sökk í Mexíkóflóa.
„Við berum ábyrgð, ekki á slysinu, heldur á olíunni,“
sagði Hayward. Hann segir að tækjabúnaður í olíubor-
pallinum hafi bilað og þess vegna hafi olían lekið út.
Olían er byrjuð að berast á strandir Mexíkóflóa, en með
flotgirðingum og öðrum aðgerðum er reynt að draga úr
tjóninu.
Líklegt þykir að olía haldi áfram að streyma úr olíu-
lindinni í að minnsta kosti viku.
Unnið er að því að smíða 74 tonna stál- og steypukassa
sem reyna á að láta síga niður á hafsbotninn, en þar eiga
þeir að taka við olíunni sem síðan verður leidd úr þeim
upp í olíuflutningapramma á yfirborði sjávar.
Þangað til má búast við að nærri fjórar milljónir lítra
streymi út í hafið til viðbótar við þær tíu milljónir lítra
sem þegar hafa lekið út. - gb
Olíufélagið BP viðurkennir að hluta ábyrgð á olíulekanum við Mexíkóflóa:
BP greiðir kostnað við hreinsun
VEIÐAR BANNAÐAR Ostruveiðimenn við Mexíkóflóa taka saman
búnað sinn.
NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, AP Lögreglan í
Bandaríkjunum leggur engan
sérstakan trúnað á yfirlýsingu
frá pakistanskri talibanahreyf-
ingu, sem sagðist bera ábyrgð
á sprengjuárás á Times-torgi í
New York.
Sprengjan hefði getað valdið
miklu tjóni ef sprengibúnaður
hennar hefði ekki klikkað, þegar
henni hafði verið komið fyrir á
torginu á laugardagskvöld.
Lögregluyfirvöld vilja ná tali
af manni, sem sást í öryggis-
myndavélum skipta um skyrtu
skammt frá árásarstaðnum.
Einnig var eigandi sendibifreið-
ar yfirheyrður. - gb
Árásin á Times-torgi:
Yfirlýsingu tali-
bana ekki trúað
SKIPTI UM SKYRTU Lögregla vill ná tali
af manni, sem mynd náðist af.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hundrað störf skapast
Grindavíkurbær og Carbon Recycling
International skrifuðu í gær undir
samning um byggingu á sambyggðri
jarðvarma- og eldsneytisverksmiðju
að Eldvörpum við Grindavík. Í til-
kynningu kemur fram að verksmiðjan
muni framleiða allt að hundrað millj-
ón lítra af eldsneyti og að hundrað
störf muni skapast.
GRINDAVÍK
ÞÝSKALAND, AP Yvo de Boer, frá-
farandi loftslagsstjóri Sameinuðu
þjóðanna, segir enga von til þess
að nýr alþjóðasamningur um
loftslagsmál verði að veruleika á
þessu ári.
Á fyrirhugaðri ráðstefnu í
Mexíkó í desember verði einung-
is hægt að leggja línurnar um
takmörkun á útblæstri gróður-
húsalofttegunda.
„Eftir það getum við farið að
taka ákvörðun um samning,“
sagði hann á fundi loftslagsfræð-
inga í Þýskalandi í gær.
Á loftslagsráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í
desember síðastliðnum tókst ekki
að ná samkomulagi. - gb
Yvo de Boer ekki bjartsýnn:
Enginn samn-
ingur á árinu
YVO DE BOER Fráfarandi loftslagsstjóri
Sameinuðu þjóðanna. NORDICPHOTOS/AFP
FÉLAGSMÁL, AP Þeir Árni Páll
Árnason, félags- og trygginga-
málaráðherra, og Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
hafa undirritað samning um að
nýtt hjúkrunarheimili verði reist á
Völlunum í Hafnarfirði.
Stefnt er að því að heimilið verði
tilbúið til notkunar árið 2012 og
þar verði 60 hjúkrunarrými. Bær-
inn mun leggja heimilinu til lóð og
annast hönnun og byggingu þess,
en ráðuneytið mun greiða Hafnar-
firði hlutdeild í húsaleigu í fjörutíu
ár, og verður það metið sem ígildi
stofnkostnaðar. - gb
Samningur undirritaður:
Nýtt hjúkrun-
arheimili rís
MEXÍKÓ, AP Vopnaðir menn óku
upp að fótboltavelli í borginni
Acapulco í Mexíkó fyrrinótt og
skutu fimm manns sem voru þar
að leik. Mennirnir fimm létu lífið
samstundis, en talið er að árásin
tengist átökum fíkniefnagengja
sem staðið hafa yfir þar í landi
misserum saman.
Ekki er vitað hvers vegna
mennirnir voru að spila fótbolta
svo seint um kvöld, en á þessum
slóðum er hiti oft það mikill að
fólk bíður fram á nótt til að æfa
íþróttir eða sinna störfum. - gb
Fíkniefnastríðið í Mexíkó:
Fimm myrtir á
knattspyrnuleik
SPURNING DAGSINS
www. tengi.is
Gæði,þjónusta og ábyrgð
- það er TENGI
IFÖ
INNRÉTTING
EINFALDAR Í UPPSETNINGU - KOMA SAMSETTAR!
29.900.-
Tilboðsverð