Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 50
34 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Eggert Gunnþór Jónsson hefur staðið sig afar vel með skoska liðinu Hearts í vetur og var í gær valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum félagsins. Bakfallsspyrnu- mark Eggerts gegn Aberdeen var þess utan valið mark ársins. Eggert hefur þurft að leysa margar stöður hjá félaginu í vetur og skilað þeim öllum með miklum sóma. Var stöðugur í sínum leik í allan vetur. „Það var mjög gott að fá þennan titil og frábær viðurkenning fyrir mig. Ég er greinilega að gera eitthvað rétt,“ sagði Eggert Gunnþór ánægður er Fréttablaðið heyrði í honum í gær en hann var einnig valinn besti ungi leikmaðurinn. „Þetta mark er líka eitt af mínum betri. Ég hafði reynt þetta nokkrum sinnum á æfingum en ekki tekist. Það tókst samt í leiknum og gerist líklega ekki aftur,“ sagði Eggert og hló við. Það gekk á ýmsu hjá Eggerti á tímabilinu en hann segist vera nokkuð sáttur þegar upp er staðið. „Það hefur verið stígandi í mínum leik í allan vetur. Ég meiddist strax í öðrum leik og kom fimm vikum seinna til baka. Þá datt ég inn í hinar og þessar stöður vegna meiðsla annarra leikmanna. Svo fór ég á miðjuna í 2-3 mánuði. Svo meiddust fleiri og þá fór ég í miðvörðinn og síðar einnig í bakvörðinn. Ég reyndi því ýmislegt,“ sagði Eggert Gunn- þór sem kann þó alltaf best við sig á miðri miðjunni. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Hearts og segist ekkert vera að íhuga að fara eitthvað annað. „Það er ekkert annað í gangi og ég er bara nokkuð ánægður hér. Gekk vel í vetur og mér líst vel á nýja stjórann sem kom í janúar,“ sagði Eggert en hann hefur ekkert leikið með A-landsliðinu í rúmt ár. „Ég hef auðvitað metnað fyrir landsliðinu og verð bara að halda áfram að standa mig vel og vona að þjálfarinn velji mig.“ EGGERT GUNNÞÓR JÓNSSON: VALINN LEIKMAÐUR ÁRSINS AF STUÐNINGSMÖNNUM SKOSKA LIÐSINS HEARTS Ég er greinilega að gera eitthvað rétt HANDBOLTI Haukar og Valur eig- ast við í sínum þriðja leik í úrslita- einvíginu um Íslandsmeistaratit- il karla í handbolta í kvöld. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1, en liðin mætast nú á Ásvöllum, heimavelli Hauka. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, reiknar með heimasigri í kvöld. „Valsarar náðu að klára síð- asta leik og þeir vita að þeir þurfa að vinna einn leik á útivelli til að ná titlinum,“ sagði Patrekur við Fréttablaðið. „En ég held að Haukar taki þennan leik á seig- lunni. Engu síður var ég búinn að spá því að úrslitin í rimmunni myndu ráðast í oddaleik og ég held mér við það.“ Hann segir þó liðin tvö mjög svipuð að styrkleika og að bæði lið spili sterkan varnarleik. „Fannar [Þór Friðgeirsson] er svo algjör lykilmaður í sóknarleik Vals og hefur staðið sig virkilega vel. Haukarnir þurfa að hafa gætur á honum, rétt eins og að Valsvörnin þarf að passa Sigurberg [Sveins- son]. Mér finnst þó Valsararnir jafnari að styrkleika fyrir utan í sínum sóknarleik.“ Patrekur segir að þó svo að Haukarnir hafi virst vera þung- ir í síðustu leikjum megi ekki vanmeta liðið. „Aron [Kristjáns- son] er afar fær þjálfari og hefur sjálfsagt verið að miða við að liðið toppi núna í úrslitakeppninni. Það kemur væntanlega mjög fljótlega í ljós hvort það tekst. Stundum finnst manni þó að liðið hafi ekki verið að spila neitt sérstaklega vel en samt hafa þeir verið að vinna sína leiki. Það segir bara sitt um hvað Haukar eru sterkir.“ Hann vonast einnig til að sjá fleiri áhorfendur á leiknum í kvöld en hingað til í úrslitakeppn- inni. „Ég sakna þess að sjá að það sé uppselt á þessa leiki. Ég vona innilega að stuðningsmenn þess- ara tveggja liða fari að taka sig til og fylli húsið í kvöld.“ - esá Patrekur Jóhannesson um þriðja leik Hauka og Vals í úrslitaeinvíginu: Reiknar með Haukasigri í kvöld FANNAR ÞÓR FRIÐGEIRSSON Verður væntanlega í strangri gæslu Haukavarn- arinnar í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI N1 Deildin KARLAR Þriðjudagur Ásvellir Haukar - Valur 19:30 2009 - 2010 ÚRSLIT - LEIKUR 3 > Gylfi orðaður við fjölda félaga Gylfi Sigurðsson var í gær orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni en hann sló í gegn með Reading í ensku B-deildinni í vetur. Fulham, Bolton og New- castle eru öll sögð hafa áhuga á honum en Brian McDermott, stjóri Reading, á von á því að fá tilboð í Gylfa í sumar. „Við munum reyna að halda eins mörgum leikmönn- um og við getum í okkar röðum en við ætlum að sjá til hvað gerist í sumar,“ sagði McDermott. „Við ætlum ekki að hvetja önnur félög til að eltast við leikmenn okkar en munum takast á við þau mál sem koma upp.“ N1-deild karla, umspil 2. leikur í úrslitaeinvígi umspilsins: Afturelding - Grótta 33-25 (16-9) Mörk Aftureldingar (skot): Jón Andri Helgason 7 (13/1), Aron Gylfason 5 (9), Magnús Einarsson 5 (10), Hrafn Ingvarsson 4 (5), Ásgeir Jónsson 3 (4), Bjarni Þórðarson 3 (5), Þrándur Gíslason 2 (2), Kristófer Guðmundsson 1 (1), Jóhann Jóhannsson 1 (1), Daníel Jónsson 1 (3), Þorlákur Sigurjónsson 1 (3) Varin skot: Smári Guðfinnsson 18/2. Fiskuð víti: 2 (Bjarni, Daníel). Utan vallar: 6 mín. Mörk Gróttu (skot): Anton Rúnarsson 5 (8/1), Árni B. Árnason 3 (3), Matthías Ingimarsson 3 (3), Atli R. Steinþórsson 3 (4), Jón Karl Björnsson 3/1 (6/2), Arnar Theodórsson 2 (4), Heiðar Aðal- steinsson 2 (4), Viggó Kristjánsson 2 (5), Ægir Hrafn Jónsson 1 (1), Hjalti Pálmason 1 (6) Varin skot: Gísli Guðmundsson 10, Magnús Sigmundsson 9/1. Fiskuð víti: 3 (Arnar 2, Atli). Utan vallar: 8 mín. Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Flott frammistaða. Enska úrvalsdeildin Blackburn - Arsenal 2-1 0-1 Robin van Persie (13.), 1-1 David Dunn (43.), 2-1 Christopher Samba (68.). Wigan - Hull 2-2 1-0 Victor Moses (30.), 1-1 Will Atkinson (41.), 1-2 Mark Cullen (64.), 2-2 Steve Gohouri (90.). STAÐA EFSTU LIÐA Chelsea 37 26 5 6 95-32 83 Man. United 37 26 4 7 82-28 82 Arsenal 37 22 6 9 79-41 72 Tottenham 36 20 7 9 64-37 67 Man. City 36 18 12 6 72-43 66 Aston Villa 37 17 13 7 52-38 64 Liverpool 37 18 8 11 61-35 62 Danska úrvalsdeildin SönderjyskE - OB 2-0 Sölvi Geir Ottesen skoraði fyrra mark Sönder- jyskE. Hann og Ólafur Ingi Skúlason léku allan leikinn með liðinu. Rúrik Gíslason lék allan leikinn í liði OB. Sænska úrvalsdeildin GAIS - Helsingborg 0-0 Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jónasson léku allan leikinn í liði GAIS. Mjällby - IFK Gautaborg 0-0 Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku allan leikinn í liði Gautaborgar og Theodór Elmar Bjarnason kom inn á sem varamaður á 56. mín. ÚRSLIT FÓTBOLTI Í gær varð það endan- lega ljóst hvaða þrjú lið falla úr ensku úrvalsdeildinni þetta tíma- bilið. Hull gerði 2-2 jafntefli við Wigan en liðið átti þó aðeins töl- fræðilegan möguleika á að bjarga sér fyrir leikinn. Hull, ásamt Burnley og Portsmouth, leikur í ensku B-deildinni á næstu leiktíð. Hull var reyndar á góðri leið með að vinna leikinn en Steve Gohouri jafnaði metin fyrir Wigan í uppbótartíma. Þá vann Blackburn 2-1 sigur á Arsenal með marki Christophers Samba í síðari hálfleik. Arsen- al hefði getað gulltryggt þriðja sætið í deildinni með sigri en þarf nú að bíða eftir leik Totten- ham eða Manchester City til að sjá hvort annað þeirra liða eigi möguleika á þriðja sætinu. Það eru þó litlar líkur á því að Arsenal tapi þriðja sætinu úr þessu en það mætir Fulham í lokaumferðinni um næstu helgi. - esá Fallbaráttunni lokið: Endanlega ljóst hvaða lið falla SVEKKTIR Iain Dowie og nokkrir leik- menn Hull eftir leikinn í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Daninn Jacob Neestrup mun vera til reynslu hjá FH næstu dagana en hann er 22 ára miðjumaður sem lék síðast í Nor- egi. Þá greindi Bjarki Gunnlaugs- son frá því í gær að hann myndi að öllu óbreyttu spila með FH- ingum í sumar. - esá Leikmannamál FH: Dani til reynslu HANDBOLTI Afturelding komst í gær upp í efstu deild eftir tveggja ára fjarveru með því að leggja Gróttu örugglega að velli 33-25. Mosfellingar unnu því einvígi lið- anna í umspili um laust sæti 2-0 en um helgina unnu þeir útisigur á Seltjarnarnesi. „Það var smá stress í okkur sóknarlega í byrjun. Þegar vörnin okkar smellur saman er erfitt að eiga við okkur og sú varð raunin núna. Það er langt síðan við töpuð- um á heimavelli og við náðum upp góðri vörn og hraðaupphlaupum með því. Það telur mikið í svona leikjum,“ sagði Gunnar Andrésson, þjálfari Aftureldingar, eftir leik. Grótta byrjaði leikinn betur og skoraði þrjú fyrstu mörkin, en það reyndist skammgóður vermir fyrir gestina frá Seltjarnarnesinu. Aft- urelding náði betri tökum á sínum leik og þegar staðan var orðin 10-7 ákvað Geir Sveinsson, þjálf- ari Gróttu, að taka leikhlé. Ræða hans fór eitthvað rangt í menn því heimamenn skoruðu þrjú fyrstu mörkin eftir hana. Stemningin var öll með Aftur- eldingu sem var með leikinn algjörlega í sínum höndum. Leik- menn liðsins voru mun grimm- ari og virkuðu betur stemmdir. Í seinni hálfleiknum var þetta aldrei spurning. Heimamenn hleyptu gestunum aldrei nálægt sér og unnu á endanum með átta marka mun. Grótta átti einfaldlega engin svör gegn Aftureldingu í gær. „Við náðum forskoti í fyrri hálf- leik sem var erfitt að vinna upp. Markvörðurinn [Smári Guðfinns- son] stóð sig frábærlega en fyrst og fremst er þetta liðsheildin sem vinnur. Þessi hópur leggur sig mikið fram á æfingum og menn hafa unnið fyrir þessu. Svo eigum við einstaka áhorfendur og það kom ekki til greina að bregðast þeim,“ sagði Gunnar. Stemningin í Mosfellsbæ var hreint mögnuð, allt troðið og hefur undirritaður aldrei svitnað eins mikið við störf sín sem blaðamaður enda hitastigið í húsinu nær óbæri- legt. Stuðningsmenn Afturelding- ar eiga hrós skilið fyrir frumleg- an stuðning. Þeir voru mættir vel fyrir leik og voru standandi, hvetj- andi allan tímann og sköpuðu bestu stemningu sem verið hefur á hand- boltaleik á þessum vetri. Vonandi verður stemningin sú sama næsta vetur en Gunnar verð- ur áfram með liðið. „Við missum einhverja menn. Það eru einhverjir að fara í nám erlendis en við verð- um að styrkja liðið fyrir næsta tímabil, það er engin spurning.“ Jón Andri Helgason var marka- hæstur Mosfellinga. „Stemningin er hérna í þessu húsi. Þetta var það sem við ætluðum okkur að gera, klára þetta strax og ekkert bull. Löngunin var einfaldlega meiri hjá okkur, við erum lið sem á að vera í efstu deild.“ elvargeir@frettabladid.is Kjúklingabærinn snýr aftur Stemningin í Mosfellsbæ í gær þegar Afturelding tryggði sér sæti í deild þeirra bestu minnti á gamla tíma í íþróttahúsinu að Varmá. Grótta féll í 1. deildina. INNILEGUR FÖGNUÐUR Magnús Einarsson og félagar hans í Aftureldingu eru komnir upp í efstu deild á nýjan leik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.